27. ágúst 2013
FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 17. sinn. Að þessu sinni urðu dagarnir 6. til 10. september fyrir valinu, en á því tímabili fara m.a. fram landsleikir um allan knattspyrnuheiminn. Háttvísidagarnir eru haldnir hátíðlegir á ýmsan hátt í öllum aðildarlöndum FIFA.
27. ágúst 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp fyrir 2 vináttulandsleiki gegn Skotum sem fram fara 3. og 5. september. Átján leikmenn eru valdir í hópinn og fara leikirnir fram á Forthbank Stadium í Stirling.
26. ágúst 2013
Úrtakshópur hefur verið valinn yfir æfingar hjá U15 karla og fara æfingarnar fram um komandi helgi.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni Ólympíuleika ungmenna en þar munu fjórar þjóðir, Ísland, Finnland, Armenía og Moldóva, keppa um eitt sæti.  Ólympíuleikar æskunnar fara svo fram í Nanjing í Kína, dagana 16. - 28. ágúst 2014.
23. ágúst 2013
Ísland mætir Noregi í undankeppni HM 2014, þriðjudaginn 15. október næstkomandi.  Leikið verður á Ullevaal vellinum í Noregi og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.  Panta þarf miða í síðasta lagi, fimmtudaginn 12. september, með því að senda póst á Ragnheiði Elíasdóttur
23. ágúst 2013
Ísland mætir Sviss í undankeppni HM 2014, föstudaginn 6. september næstkomandi.  Leikið verður á Stade de Suisse í Bern og hefst leikurinn kl. 20:30 að staðartíma eða 18:30 að íslenskum tíma.
23. ágúst 2013
Skipulag og vinnureglur leyfiskerfis KSÍ fá toppeinkunn í árlegri gæðaúttekt UEFA, sem fram fór í vikunni. Það er alþjóðlega matsfyrirtækið SGS sem framkvæmir úttektina í öllum aðildarlöndum UEFA. Í umsögn fulltrúa SGS um leyfiskerfi KSÍ segir að það sé uppsett og rekið á „framúrskarandi“ hátt.
21. ágúst 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Tindastóls gegn Gróttu í leik félaganna í 3. flokki karla 7 manna sem fram 15. ágúst síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða hjá Gróttu.
21. ágúst 2013
Vegna leiks Breiðabliks og KR í Pepsi-deild karla sem flautaður var af sl. sunnudag hefur stjórn KSÍ tekið ákvörðun til að eyða óvissu vegna leikbanns Hannesar Þórs Halldórssonar, leikmanns KR, en leikmaðurinn átti að taka út leikbann í umræddum leik.
20. ágúst 2013
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið æfingahóp sem æfir um komandi helgi. Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir forkeppni EM en riðill Íslands verður leikinn í Búlgaríu, dagana 21. - 26. september.
20. ágúst 2013
Í tengslum við úrslitaleikinn í Borgunarbikarkeppni kvenna mun Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu. Úrslitaleikur Borgunarbikarkeppni kvenna fer fram laugardaginn 24. ágúst kl. 16:00 en þar mætast Breiðablik og Þór/KA. Ráðstefnan hefst kl. 12:00 og er öllum opin.
19. ágúst 2013
Ransin N. Djurhuus mun dæma leik Víkings og Leiknis í 1. deild karla sem fram fer á morgun, þriðjudaginn 20. ágúst., á Víkingsvelli og hefst kl. 19:00. Ransin kemur frá Færeyjum eins og annar aðstoðardómaranna, Kristian Sofus Petersen. Þriðji maðurinn í þríeykinu er hinsvegar alíslenskur, Birkir Sigurðarson.
16. ágúst 2013
Íslenskt dómarateymi verður að störfum í Tallinn, höfuðborg Eistlands, fimmtudaginn 22. ágúst næstkomandi. Þá fer fram fyrri leikur JK Nomme Kalju og úkrainska liðsins FC Dnipro Dnipropetrovsk í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.
16. ágúst 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram sem þjálfari A-landsliðs kvenna. Sigurður tók við liðinu í árslok 2006 og var því þjálfari liðsins í 7 ár, í 78 leikjum alls, og leiddi liðið til besta árangurs þess frá upphafi í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í sumar.
15. ágúst 2013
Hvort var það Birkir Bjarnason eða Kolbeinn Sigþórsson sem skoraði sigurmark Íslands í vináttuleiknum gegn Færeyjum á miðvikudagskvöld? Á hvorn á að skrá markið? Reglurnar um þetta tiltekna atvik eru skýrar.
15. ágúst 2013
Dregið hefur verið í milliriðla fyrir EM U17 kvenna, en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag, fimmtudag.  Ísland verður í milliriðli með Rúmeníu, Írlandi og Spáni og fer riðillinn fram í Rúmeníu um mánaðamótin september/október.
14. ágúst 2013
A landslið karla vann í kvöld, miðvikudagskvöld, 1-0 sigur á Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum, að viðstöddum 4.815 áhorfendum. Íslenska liðið réði lögum og lofum í leiknum, en Kolbeinn Sigþórsson skoraði eina mark leiksins á 65. mínútu eftir góða sendingu frá Eiði Smára Guðjohnsen og skot frá Birki Bjarnasyni sem hafði viðkomu í Kolbeini á leið sinni í markið.
14. ágúst 2013
U21 landslið karla vann í dag, miðvikudag, frábæran 4-1 sigur á liði Hvít-Rússa í undankeppni EM 2015, enliðin mættust á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda. Emil Atlason gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu - hefur nú skorað 6 mörk í 3 leikjum í keppninni. Ísland er efst í riðlinum með fullt hús stiga.
14. ágúst 2013
Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Þróttar auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfurum sem eru tilbúnir til að vinna skv. stefnu félagsins. Einnig er auglýst eftir markmannsþjálfurum.