13. janúar 2010
"Sækjum styrk í hvítt og blátt, stefnum öll í sömu átt, hvikum hvergi þar til marki er náð". Þetta er úr texta Framherjalagsins, lagi stuðningsmanna Fram. Framarar hafa nú skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.
13. janúar 2010
"Komnir til að sigra, komnir til að vera ..." sungu Páll Rósinkranz og Haukakórinn um árið. Haukar hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010. Þar með hefur helmingur leyfisumsækjenda í efstu tveimur deildum karla skilað.
13. janúar 2010
Í gær fengu Breiðablik, Fjarðabyggð/Leiknir og KR afhent grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA og um leið vakin athygli á mikilvægi grasrótarstarfs félaganna.  Heimasíðan hitti fulltrúa félaganna á vettvangi en það var hinn lagvissi Dagur Sveinn Dagbjartsson sem tók viðtölin.
13. janúar 2010
Breiðablik og Njarðvík, sem bæði leika í grænum búningum, hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.  Þar með hafa alls 11 félög af 24 skilað.  Lokaskiladagur þessara gagna er föstudaginn 15. janúar.
13. janúar 2010
Knattspyrnusamband Íslands og Vífilfell (Coca Cola) undirrituðu í gær samkomulag um áframhaldandi samstarf til næstu fjögurra ára.  Í samningnum felst stuðningur Vífilfells við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands af báðum kynjum.
12. janúar 2010
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur boðað 21 leikmann á úrtaksæfingu, miðvikudaginn 20. janúar og fer hún fram í Fjarðabyggðahöllinni.  Leikmennirnir koma frá fjórum félögum og verður fundur með leikmönnum á eftir æfingunni.
12. janúar 2010
Í dag voru afhent grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA og var athöfnin haldin í höfuðstöðvum KSÍ.  Þrjú félög fengu viðurkenningar að þessu sinni en veittar eru viðurkenningar í nokkrum grasrótarflokkum.  Breiðablik, Fjarðabyggð/Leiknir og KR fengu grasrótarviðurkenningar að þessu sinni.
12. janúar 2010
KSÍ tók virkan þátt í verkefninu "Heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis" á árinu sem leið.  Markmið Heimsgöngunnar er að skapa vitundarvakningu sem hafnar öllu ofbeldi hvernig sem það birtist.
12. janúar 2010
Þeir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfarar U17 og U19 karla,  hafa valið úrtakshópa fyrir æfingar um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni.
12. janúar 2010
Leyfiskerfi í aðildarlöndum UEFA eru öll byggð upp á sama hátt og fylgja sömu reglum í grunninn. Í sumum löndum hefur verið starfrækt leyfiskerfi til fjölda ára, en flest lönd í Evrópu tóku upp leyfiskerfi þegar UEFA setti sitt leyfiskerfi á fót árið 2003.
12. janúar 2010
Framkvæmdastjórn UEFA hefur ákveðið að sérstakur grasrótardagur UEFA verði haldinn þann 19. maí næstkomandi. UEFA mun þá vekja athygli á grasrótarstarfi í aðildarlöndum sínum í samstarfi við aðildarþjóðirnar og nota til þess "Meistaradeildarvikuna" en leikið verður til úrslita í Meistardeild kvenna 20. maí og Meistaradeild karla 22. maí.
12. janúar 2010
Helgina 15.-17. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands 3. stigs þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. KSÍ hélt slíkt námskeið einnig um síðustu helgi þar sem Lars Lagerback, fyrrverandi A-landsliðsþjálfari Svíþjóðar, heimsótti landann og tók út námskeiðið.
12. janúar 2010
Í dag kl. 14:30 verða afhentar grasrótarviðurkenningar KSÍ og UEFA fyrir knattspyrnuárið 2009. Grasrótarstarf getur verið af margvíslegum toga og eru það aðildarfélög KSÍ sem bera þungann af þessu starfi með margvíslegum hætti í hreyfingunni.
8. janúar 2010
Viðburðarríku ári er nú lokið og framundan eru spennandi verkefni hvort heldur sem er á innlendum eða erlendum vettvangi. Landslið Íslands verða í eldlínunni og góðir möguleikar á góðum árangri á mörgum vígstöðvum
8. janúar 2010
Náðst hefur samkomulag á milli Knattspyrnusambands Íslands og Knattspyrnusambands Kýpurs um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Kýpur, miðvikudaginn 3. mars næstkomandi.
7. janúar 2010
Nú er komið að styrktaræfingum í 11+ upphitunaræfingunum sem FIFA hefur gefið út.  Æfingarnar eru alhliða upphitunaræfingar ætlaðar til forvarna gegn meiðslum.  Hér að neðan má sjá myndband með þessum æfingum sem og textalýsingu með hverri æfingu fyrir sig.
7. janúar 2010
Unglingadómaranámskeið hjá HK verður haldið í Fagralundi  mánudaginn 11. janúar   kl. 19:00.  Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
6. janúar 2010
Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 21. mars. Þetta er þriðja árið í röð sem að þjóðirnar leika vináttulandsleik í Kórnum í marsmánuði.