15. desember 2009
Í dag var dregið í riðla í undankeppni EM 2010/2011 hjá U17 kvenna en dregið er í höfuðstöðvum UEFA. Ísland leikur í riðli með Búlgaríu, Ítalíu og Litháen og verður riðillinn leikinn í Búlgaríu dagana 16. - 21. september.
15. desember 2009
Keflavíkingar skiluðu í dag fylgigögnum með umsókn sinni um þátttökuleyfi í Pepsi-deild akrla 2010. Gögnin sem skilað er nú snúa að öllum þáttum leyfiskerfisins öðrum en fjárhagslegum. Þar með hafa þrjú Pepsi-deildarfélög skilað.
15. desember 2009
Í lok september fór fram víðtækt gæðamat á skipulagi leyfiskerfis KSÍ og því starfi sem unnið er við rekstur þess.  Matið er framkvæmt árlega af fulltrúum SGS, sem er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki.  Annað árið í röð var gæðavottun staðfest án athugasemda. 
15. desember 2009
Í dag var einnig dregið í undankeppni fyrir EM 2010/2011 hjá U19 kvenna. Stelpurnar í U19 munu leika í Búlgaríu, rétt eins og stöllur þeirra í U17. Mótherjarnir verða, ásamt heimastúlkum, Úkraína og Ísrael og verður leikið dagana 11. - 16. september.
14. desember 2009
Líkt og í fyrra býðst þjálfurum hér á landi að senda inn umsókn á UEFA Pro þjálfaranámskeið í Englandi. Pro þjálfaragráðan er viðurkennd í öllum löndum Evrópu, er æðsta stig þjálfaramenntunar sem UEFA samþykkir og veitir réttindi til að þjálfa öll lið í öllum deildum í Evrópu.
14. desember 2009
FIFA hefur staðfest íslenskar tilnefningar á FIFA-lista yfir dómara og aðstoðardómara fyrir árið 2010.  Einnig hefur FIFA staðfest tilnefningu á fyrsta íslenska alþjóðlega Futsal dómaranum.  Íslenskir FIFA dómarar fyrir árið 2010 eru eftirfarandi:
11. desember 2009
Næstkomandi þriðjudag verður dregið í undankeppni U17 og U19 kvenna fyrir EM 2010/2011 og verður dregið í höfuðstöðvum UEFA. Á miðvikudaginn verður svo dregið í milliriðla fyrir keppnir 2009/2010 þessara aldurflokka en Ísland er í pottinum hjá U19 kvenna.
10. desember 2009
Heimildarmyndin Stelpurnar okkar er nýkomin út á DVD.  Stelpurnar okkar fjallar um baráttu íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta um að komast á Evrópumeistaramót, fyrst allra íslenskra landsliða. Í myndinni kynnumst við litríkum stelpum, draumum þeirra og metnaði. 
9. desember 2009
Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið úrtakshóp til æfinga um komandi helgi.  Freyr velur að þessu sinni 36 leikmenn af suðvesturhorninu og verður æft tvisvar sinnum um helgina í Kórnum.
8. desember 2009
64. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið í húsakynnum KSÍ laugardaginn 13. febrúar 2010. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi efnisatriði tengd þinghaldinu:
8. desember 2009
Helgina 18. - 20. desember mun Knattspyrnusamband Íslands halda KSÍ II þjálfaranámskeið í Vestmannaeyjum. Dagskrá námskeiðsins er hér að neðan. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir sem lokið hafa KSÍ I þjálfaranámskeiði
7. desember 2009
Í dag var einnig dregið í undankeppni fyrir EM 2010/2011 hjá U19 karla en einnig var dregið í sömu keppni hjá U17 karla og er greint frá þeim drætti annars staðar hér á síðunni.  Strákarnir í U19 munu leika í riðli með Kazakstan, Tyrklandi og Wales og verður riðillinn leikinn í Wales, dagana 20. - 25. október.
7. desember 2009
Í dag var dregið í riðla fyrir undankeppni EM 2010/2011 hjá U17 karla en dregið var í höfuðstöðvum UEFA.  Ísland er í riðli með Tyrkjum, Tékkum og Armenum og verður riðillinn leikinn hér á landi dagana 22. - 27. september.
7. desember 2009
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar í aldursflokki U16 kvenna.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og verður æft tvisvar sinnum um komandi helgi.
7. desember 2009
Í dag verður dregið í undankeppni EM 2011 hjá aldursflokkum U17 og U19 í karlaflokki og verður dregið í Nyon í Sviss.  Drátturinn hjá U17 hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma en kl. 16:30 hjá U19 karla.
4. desember 2009
Upphitun fyrir æfingar og leiki er sjálfsagður hluti hjá öllum alvöru knattspyrnumönnum. Góð upphitun bætir ekki aðeins frammistöðu þína heldur minnkar einnig líkur á meiðslum. „The 11+“ veitir alhliða upphitun sem sniðin er að þörfum fótboltamanna og auðvelt er að færa þessar æfingar inn í daglegar æfingar.
4. desember 2009
KR-ingar hafa skilað fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2010 og eru þar með fjórða félagið til að gera það. Áður höfðu ÍR og KA úr 1. deild og Valur úr Pepsi-deild skilað sínum gögnum. Félögin eru tímanlega í því.
3. desember 2009
Upphitun fyrir æfingar og leiki er sjálfsagður hluti hjá öllum alvöru knattspyrnumönnum. Góð upphitun bætir ekki aðeins frammistöðu þína heldur minnkar einnig líkur á meiðslum. „11+“ æfingar FIFA eru nýjar upphitunaræfingar frá Rannsóknarmiðstöð FIFA á sviði íþróttalæknisfræði.