29. ágúst 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari stelpnanna okkar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir lokaleik liðsins í úrslitakeppni EM, gegn Þjóðverjum á sunnudag.  Þjóðirnar mætast á Tampere-leikvanginum og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. 
29. ágúst 2009
Dómarinn í leik Þýskalands og Íslands á sunnudag er finnskur og heitir Kirsi Heikkiinen, en hún dæmdi úrslitaleik EM U19 landsliðs kvenna þegar keppnin fór fram á Íslandi árið 2007.  Annar aðstoðardómarinn er einnig finnskur, en hinn aðstoðardómarinn er frá Frakklandi.
29. ágúst 2009
Keppni í A-riðli EM kvennalandsliða í Finnlandi lauk í dag. Finnar höfðu þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og misstu það ekki þrátt fyrir tap í lokaleiknum, 0-1 gegn Úkraínumönnum. Úkraína kemst þrátt fyrir þetta ekki upp úr neðsta sætinu þar sem þær úkraínsku höfðu áður tapað fyrir Dönum.
29. ágúst 2009
Það voru einungis markmenn kvennalandsliðsins sem voru á séræfingu í morgun, en útileikmenn fengu frí.  Guðmundur Hreiðarsson, markmannsþjálfari, fór með þær Þóru, Guðbjörgu og Söndu á æfingu á Hervanta-vellinum. 
28. ágúst 2009
Það virðist vera samdóma álit allra þeirra sem fylgjast með EM kvennalandsliða í Finnlandi að íslensku stuðningsmennirnir séu þeir langbestu í keppninni.  Íslendingar hafa fjölmennt á leiki íslenska liðsins í Tampere og Lahti og haldið uppi frábærri stemmningu.
28. ágúst 2009
Leikið var í C-riðli í úrslitakeppni EM kvennalandsliða í Finnlandi í dag.  Englendingar lögðu Rússa 3-2 eftir að hafa lent 2-0 undir, en svarað með þremur mörkum fyrir hlé.  Svíar eru komnir í 8-liða úrslit eftir öruggan 2-0 sigur á Ítölum, sem áttu ekki möguleika í sænska liðið.
28. ágúst 2009
Dóra María Lárusdóttir lék sinn 50. A-landsleik fyrir Íslands hönd þegar kvennalandsliðið mætti Noregi í Lahti í úrslitakeppni EM í Finnlandi á fimmtudag.  Dóra María lék sinn fyrsta leik árið 2003, gegn Pólverjum í 10-0 metsigri.
27. ágúst 2009
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli KSÍ gegn Selfoss/KFR vegna leik liðsins gegn Aftureldingu í 3. flokki karla B liða sem fram fór 18. júní síðastliðinn.  Úrskurður hljómar m.a. upp á að þjálfari Selfoss/KFR er dæmdur í tímabundið bann.
27. ágúst 2009
Knattspyrnusambandið á marga góða granna í Laugardalnum og er Laugarnesskóli einn af þeim. Í dag komu þrjár stúlkur úr 6. bekk skólans í heimsókn og fræddust um starfsemi sambandsins.
27. ágúst 2009
Íslensku stelpurnar töpuðu í kvöld gegn Norðmönnum í öðrum leik liðsins í úrslitakeppni EM sem fram fer í Finnlandi. Lokatölur urðu 0 - 1 og kom sigurmark leiksins á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Úrslitin þýða að íslenska liðið á ekki lengur möguleika á því að komast í átta liða úrslit.
27. ágúst 2009
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn er leikur í riðlakeppni EM.  Riðillinn fer fram hér á landi dagana 4. - 9. september og ásamt Íslendingum leika í riðlinum Þýskaland, Frakkland og Ísrael.
27. ágúst 2009
Næstu tvo sunnudaga, 30. ágúst og 6. september, heldur Sparkvallaverkefni Íþróttasambands fatlaðra og Knattspyrnusambands Íslands áfram með tveimur æfingum við Laugarnesskóla. Tilgangur þessa verkefnis er að auka áhuga og þátttöku fatlaðra karla og kvenna í knattspyrnu.
27. ágúst 2009
Önnur umferð í A riðli Evrópumóts kvenna fór fram í gær og eru heimastúlkur í góðum málum fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. Finnar lögðu Hollendinga með tveimur mörkum gegn einu og sama markatala var uppi á teningnum þegar að Danir lögðu Úkraínu.
26. ágúst 2009
Það verður rúmenskur dómari við stjórnvölinn þegar að Ísland og Noregur mætast á morgun í úrslitakeppni EM í Finnlandi.  Leikið verður í Lahti og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu
26. ágúst 2009
Knattspyrnudeild Gróttu óskar eftir að ráða til sín þjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Um er að ræða karlaflokka og kvennaflokka. Við leitum að metnaðarfullum einsaklingi sem er tilbúinn í að leggja sitt af mörkum til að efla yngri flokkana hjá félaginu og vinna skv. stefnu félagsins.
26. ágúst 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Noregi.  Leikkerfið er hefðbundið og óbreytt frá síðasta leik, en þó er ein breyting gerð á byrjunarliði íslenska liðsins.  Dóra Stefánsdóttir kemur inn á miðjuna í stað Katrínar Ómarsdóttur.
25. ágúst 2009
Svíar byrjuðu EM með sannfærandi 3-0 sigri á Rússum í 1. umferð riðilsins. Rússar sáu aldrei til sólar í leiknum og ljóst er að sænska liðið er gríðarsterkt. Englendingar töpuðu nokkuð óvænt fyrir Ítölum 1-2.
25. ágúst 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, var vitanlega ósáttur með tap liðsins gegn Frökkum í lokakeppni EM. Hann segir þó í viðtali við heimasíðu KSÍ að tapið breyti litlu um fyrirætlanir og markmiðum liðsins í keppninni.