14. febrúar 2009
Keflavík fékk afhenta Drago-styttuna svokölluðu fyrir Landsbankadeild karla 2008 og Haukar fengu styttuna afhenta í 1. deild karla. Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik
14. febrúar 2009
Fylkir hlaut kvennabikarinn fyrir árið 2008 og var hann afhentur á 63. ársþingi KSÍ. Það var Guðrún Hjartardóttir sem tók við bikarnum fyrir hönd félagsins úr hendi Geirs Þorsteinssonar, formanns KSÍ..
14. febrúar 2009
Ársþing KSÍ, það 63. í röðinni, var sett kl. 11:00 í dag í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Fylgst verður með framvindu þingsins hér á síðunni en framundan eru m.a. afgreiðsla tillagna og kosningar aðalfulltrúa landsfjórðunga.
13. febrúar 2009
Valur er fyrsta félagið til að skila fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2009. Skiladagur er föstudagurinn 20. febrúar, þannig að Valsmenn eru viku á undan áætlun.
13. febrúar 2009
Keflavík varð í dag þriðja félagið til að skila fjárhagslegum leyfisgögnum, viku fyrir skiladag. Félögin virðast vera snemma á ferðinni í ár, en áður höfðu Valsmenn og Stjörnumenn skilað. Ekkert félag í 1. deild hefur þó enn skilað.
13. febrúar 2009
Stjarnan í Garðabæ hefur skilað fjárhagslegum leyfisgögnum vegna umsóknar félagsins um þátttökuleyfi í efstu deild karla 2009. Þar með hafa tvö félög skilað gögnum, viku áður en lokafrestur rennur út.
12. febrúar 2009
Laugardaginn 14. febrúar kl. 11:00 verður 63. ársþing KSÍ sett í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal. Fylgst verður með framvindu þingsins, afgreiðslu tillagna, kosningum og annarra mála hér á heimasíðunni.
12. febrúar 2009
Á ársþingi KSÍ, sem haldið verður í höfuðstöðvum KSÍ 14. febrúar næstkomandi, verður kosning um landshlutafulltrúa Suðurlands. Fjórir bjóða sig fram í aðalstjórn KSÍ og þrír í varastjórn og eru allir þeir aðilar sjálfkjörnir.
12. febrúar 2009
Vert er að vekja athygli á því að á safnanótt, föstudaginn 13. febrúar, verður fluttur fyrirlestur í Borgarskjalasafni kl. 21.00 sem nefnist "Í knattspyrnu á kúskinnsskóm".
12. febrúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá ÍR verður haldið í ÍR heimilinu fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20:00. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.
11. febrúar 2009
Á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag, fer íslenska karlalandsliðið upp um þrjú sæti. Ísland er nú í 77. sæti listans en Spánverjar eru efstir sem fyrr. Engar breytingar eru á meðal efstu 10 þjóðanna á listanum.
11. febrúar 2009
Unglingadómaranámskeið hjá Fylki. verður haldið í Fylkisheimilinu miðvikudaginn 18. febrúar kl. 17:00. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna.
11. febrúar 2009
Í dag mætast Ísland og Liechtenstein í vináttulandsleik og fer leikurinn fram á La Manga á Spáni. Þetta er fyrsti landsleikur íslenska karlalandsliðsins á þessu ári en liðið lék síðast 19. nóvember. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.
11. febrúar 2009
Íslendingar lögðu landslið Liechtenstein að velli í dag í vináttulandsleik sem leikinn var á La Manga. Lokatölur urðu 2 - 0 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 1 - 0 í hálfleik. Þeir Arnór Smárason og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk Íslendinga.
11. febrúar 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Liechtenstein í vináttulandsleik í dag. Leikurinn fer fram á La Manga á Spáni og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma. Fylgst er með leiknum hér á heimasíðunni.
11. febrúar 2009
Laugardaginn 14. febrúar næstkomandi fer fram 63. ársþing KSÍ í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Alls hafa 132 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 107 fulltrúa.
10. febrúar 2009
Knattspyrnusambönd Íslands og Georgíu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 9. september næstkomandi.
10. febrúar 2009
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, mætast Ísland og Liechtenstein í vináttulandsleik og verður leikið á La Manga. Hópurinn mun æfa tvisvar sinnum í dag en fyrsta æfingin fór fram í gær.