Verslun
Leit
SÍA

2. febrúar 2009

Fyrri yfirferð leyfisgagna lokið

Leyfisstjórn hefur nú lokið fyrri yfirferð leyfisgagna.  Ýmsar athugasemdir hafa verið gerðar við gögnin eins og venja er og hefur félögunum verið gefinn frestur til 20. febrúar til að ganga frá lausum endum.

Leyfiskerfi

2. febrúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá HK í Fagralundi

Unglingadómaranámskeið hjá HK verður haldið í Fagralundi miðvikudaginn 4. febrúar  kl. 18:00.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

30. janúar 2009

Æfingar hjá U17 karla færðar fram um helgi

Æfingahelgi U17 karlalandsliðsins sem átti að vera 14. og 15. febrúar hefur verið færð fram um eina helgi og verður dagana 7. og 8. febrúar.  U19 karla mun æfa 14. og 15. febrúar eins og áður var ákveðið.

Landslið

30. janúar 2009

Tillögur á ársþingi KSÍ 2009

Ársþing KSÍ, það 63. í röðinni, verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 14. febrúar næstkomandi.&nbsp; Hér að neðan má sjá þær tillögur er liggja fyrir þinginu sem og dagskrá þingsins sem sett verður kl. 11:00.</

Ársþing

30. janúar 2009

KSÍ aðili að dómarasáttmála UEFA

Á fundi framkvæmdarstjórnar UEFA í gær var samþykkt að&nbsp;KSÍ yrði aðili að dómarasáttmála UEFA.&nbsp;Sjö nýjar þjóðir voru samþykktar á þessum fundi og verður aðild KSÍ staðfest formlega með undirskrift síðar.

Fræðsla

30. janúar 2009

Knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR

Mánudaginn 2.febrúar nk.&nbsp;munu hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaða hjá KR.&nbsp; Æfingatímar verða eftirfarandi: mánudagar kl. 20:30 fyrir eldri hóp (13 ára og eldri) og laugardagar kl. 15:30 fyrir yngri hóp (12 ára og yngri).&nbsp;

Fræðsla

29. janúar 2009

Mike Riley dæmir leik Íslands og Færeyja

Enski dómarinn Mike Riley mun dæma vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer sunnudaginn 22. mars í Kórnum.&#160; Aðstoðardómarar leiksins sem og fjórði dómari leiksins munu verða íslenskir.

Dómaramál
Landslið

28. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá KS á Siglufirði

Unglingadómaranámskeið hjá KS verður haldið í efra skólahúsinu sunnudaginn 1.febrúar &nbsp;kl. 10:00.&nbsp; Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

28. janúar 2009

Riðlarnir klárir á Norðurlandamóti U17 kvenna

Dregið hefur verið í riðla á Norðurlandamóti U17 kvenna en mótið fer fram í Värmaland í Svíþjóð dagana 29. júní til 4. júlí.&nbsp; Ísland er í riðli með Þýskalandi, Hollandi og Noregi.

Landslið

26. janúar 2009

Úrtaksæfingar hjá stelpunum í U17 og U19

Um helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og verður æft í Kórnum og Egilshöllinni.&nbsp; Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna og Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hafa valið hópa til þessara æfinga.

Landslið

26. janúar 2009

30 þjálfarar luku KSÍ VI þjálfaranámskeiði í Lilleshall

Dagana 16. - 23. janúar stóð Knattspyrnusamband Íslands fyrir 6. stigs þjálfaranámskeiði í Lilleshall á Englandi.&nbsp; 30 þjálfarar sátu námskeiðið.&nbsp; Ferðin þótti heppnast ágætlega en þrír erlendir kennarar héldu fyrirlestur á námskeiðinu.

Fræðsla

26. janúar 2009

Kvennalandsliðið leikur gegn Englandi og Danmörku

Íslenska kvennalandsliðið&nbsp;leikur tvo vináttulandsleiki&nbsp;í júlí og má segja að þessir leikir verði lokahnykkurinn í undirbúningi fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi.&nbsp; Leikið verður við England16. júlí og Danmörku 19. júlí.&nbsp; Báðir leikirnir verða leiknir í Englandi.

Landslið

26. janúar 2009

Æfingar hjá U16 karla í Boganum um helgina

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp til úrtaksæfinga hjá U16 karla.&nbsp; Leikmennirnir koma frá félögum á Norðurlandi en æfingarnar fara fram í Boganum.

Landslið

26. janúar 2009

Þróttur auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka

Þróttur Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir í að leggja sitt af mörkum til að efla yngri flokkana hjá félaginu og vinna skv. stefnu félagsins. Reynsla af þjálfarastörfum og þjálfaramenntun frá KSÍ skilyrði.

Fræðsla

26. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Hvöt Blönduósi

Unglingadómaranámskeið hjá Hvöt verður haldið í Grunnskóla Blönduóss föstudaginn 30. janúar &nbsp;kl. 17:00.&nbsp; Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla

22. janúar 2009

Breytingar á Alþjóðlegu lyfjareglunum

Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands hefur kynnt nýjar alþjóðlegar lyfjareglur sem tóku gildi um síðastu áramót.&nbsp; KSÍ hvetur aðildarfélög sín til að halda vöku sinni í þessum málaflokki og minnir á ábyrgð þeirra að kynna þessi mál fyrir leikmönnum sínum.

Fræðsla

22. janúar 2009

Kvennalandsliðið á uefa.com

Á heimasíðu UEFA má finna viðtal við Sigurð Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfara, um árangur íslenska kvennalandsliðsins í ljósi þess að liðið tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í Finnlandi í ágúst.

Landslið

21. janúar 2009

Unglingadómaranámskeið hjá Þór Akureyri

Unglingadómaranámskeið hjá Þór verður haldið í Hamri þriðjudaginn 27. janúar &nbsp;kl. 17:00.&nbsp; Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Fræðsla