14. nóvember 2008
Samkvæmt Leyfishandbók KSÍ hefur þeim félögum sem hyggjast sækja um þátttökuleyfi í Landsbankadeild karla og 1. deild karla 2009 verið sendar nauðsynlegar upplýsingar, áður en vinna við Leyfisumsókn hefst.
14. nóvember 2008
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Möltu í vináttulandsleik þann 19. nóvember næstkomandi. Davíð Þór Viðarsson úr FH kemur inn í hópinn í stað Hallgríms Jónassonar sem er meiddur.
14. nóvember 2008
Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum Special Olympics á Kýpur en ráðstefnan var haldin í tengslum við Smáþjóðaleika Special Olypics í knattspyrnu. Guðlaugur Gunnarsson sótti ráðstefnuna fyrir hönd Íþróttasambands Fatlaðra.
13. nóvember 2008
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Möltu þann 19. nóvember næstkomandi. Eggert Gunnþór Jónsson úr Hearts kemur inn í hópinn í stað Grétars Rafns Steinssonar.
12. nóvember 2008
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir áfrýjun í máli Tindastóls gegn ÍH vegna leiks félaganna í 2. deild karla fyrr á þessu ári. Áfrýjunardómstóllinn staðfestir hinn áfrýjaða úrskurð.
12. nóvember 2008
Íslenska karlalandsliðið fer upp um 21 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag. Ísland er nú í 82. sæti listans en Spánverjar tróna á toppi listans sem fyrr og Þjóðverjar koma þar á eftir.
11. nóvember 2008
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag landsliðshópinn sem heldur til Möltu og leikur þar vináttulandsleik miðvikudaginn 19. nóvember. Einn nýliði er í hópnum að þessu sinni en það er Garðar Jóhannsson leikmaður með Fredrikstad í Noregi.
10. nóvember 2008
Þau Kristrún Lilja Daðadóttir og Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfarar U17 og U19 kvenna, hafa valið leikmenn til æfinga um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni og má sjá æfingahópana hér að neðan.
10. nóvember 2008
Fjögur þjálfaranámskeið eru framundan í nóvember. Helgina 14.-16. nóvember verður KSÍ II þjálfaranámskeið haldið í Reykjavík. Helgina 21.-23. nóvember verða tvö námskeið. Skráning á öll þessi námskeið er í fullum gangi.
7. nóvember 2008
Mótshaldarar EM kvenna 2009 sem fram fer í Finnlandi óska eftir sjálfboðaliðum til þess að starfa í kringum mótið. Leikið verður í fjórum borgum í Finnlandi, Helsinki, Lahti, Turku og Tampere. Mótið fer fram dagana 23. ágúst til 10. september.
7. nóvember 2008
Sporthúsið hefur ákveðið að gefa 40 manna æfingahópi A-landsliðs kvenna og starfsmönnum liðsins árskort í líkamsrækt. Katrín Jónsdóttir fyrirliði A-landsliðs kvenna veitti þessari gjöf móttöku í frá Þresti Jóni Sigurðssyni eiganda Sporthússins.
5. nóvember 2008
Valdir hafa verið æfingahópar til æfinga um helgina og fara fram æfingar hjá U17 og U19 karla. Landsliðsþjálfararnir Luka Kostic og Kristinn R. Jónsson hafa valið leikmenn til þessara æfinga.
5. nóvember 2008
Unglingadómaranámskeið hjá Val í Vodafonehöllinni verður haldið mánudaginn 10. nóvember kl. 20:00. Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
4. nóvember 2008
A landslið kvenna náði sl. fimmtudag þeim langþráða áfanga að vinna sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni EM. Aldrei fyrr hefur KSÍ átt landslið í úrslitakeppni A landsliða.
4. nóvember 2008
Vert er að minna á ákvæði um samningsskyldu leikmanna í Landsbankadeild karla eins og fram kemur í grein 23.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Ákvæði þetta verður virkt þann 1. janúar 2009.
3. nóvember 2008
Eysteinn Húni Hauksson, knattspyrnuþjálfari hjá Grindavík, hlaut á dögunum styrk KSÍ til fræðslumála og nýtti hann til að kynna sér knattspyrnuþjálfun hjá West Ham.
3. nóvember 2008
A-landslið kvenna mun leika í efri styrkleikaflokki á Algarve Cup 2009, sem fram fer í Portúgal í byrjun mars á næsta ári. Þetta þýðir að stelpurnar okkar munu leika gegn nokkrum af sterkustu landsliðum heims.
30. október 2008
Í nepjunni í Laugardalnum í kvöld tryggði íslenska kvennalandsliðið sér sæti í úrslitakeppni EM 2009 sem fram fer í Finnlandi. Frábær 3-0 sigur staðreynd og á köldum Laugardalsvelli var stiginn trylltur stríðdans í leikslok. Ísland er komið á EM!