Þrjú framboð til formanns KSÍ
78. ársþing KSÍ verður haldið í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal, Reykjavík 24. febrúar 2024. Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 17. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 10. febrúar sl. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests, sbr. grein 17.4 í lögum KSÍ.
Þrjú framboð hafa borist til formanns KSÍ:
- Guðni Bergsson
- Vignir Már Þormóðsson
- Þorvaldur Örlygsson
Sjö hafa boðið sig fram til stjórnar og keppast þar um fjögur sæti:
- Ingi Sigurðsson
- Pálmi Haraldsson
- Pétur Marteinsson
- Sigfús Ásgeir Kárason
- Sigurður Örn Jónsson
- Sveinn Gíslason
- Þorkell Máni Pétursson
Smellið hér til að skoða framkomin og staðfest framboð á ársþingsvef KSÍ.