4. mars 2019
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Skotlandi. Jón gerir sex breytingar frá liðinu sem mætti Kanada í fyrsta leik liðsins á Algarve Cup.
4. mars 2019
KSÍ, Heimir Hallgrímsson og Helgi Kolviðsson hafa náð samkomulagi varðandi árangurstengdar greiðslur vegna þátttöku A landsliðs karla í riðlakeppni fyrir HM 2018.
3. mars 2019
Ísland mætir Skotlandi á Algarve Cup á mánudaginn, en um er að ræða annan leik liðsins á mótinu. Leikurinn hefst klukkan 14:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með gangi leiksins á miðlum KSÍ.
3. mars 2019
U19 ára landslið kvenna tapaði 2-3 gegn Ítalíu í dag, en leikið var á La Manga. Bergdís Fanney Einarsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir skoruðu mörk Íslands.
3. mars 2019
U19 ára landslið kvenna mætir Ítalíu í dag í vináttuleik á La Manga, en liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Svíþjóð á föstudaginn.
1. mars 2019
U19 ára lið kvenna vann góðan 2-0 sigur gegn Svíþjóð, en leikurinn var fyrsti vináttuleikurinn af þremur sem liðið leikur á La Manga.
1. mars 2019
Drög að leikjaniðurröðun í mótum sumarsins hefur verið birt á vef KSÍ. Félög eru vinsamlegast beðin um að skoða vandlega sína leiki og koma athugasemdum á framfæri í síðasta lagi mánudaginn 11. mars
1. mars 2019
Ákveðið hefur verið að U21 landslið karla leiki vináttulandsleik við Katar í Doha þann 25. mars næstkomandi. Um er að ræða annan leik liðsins undir stjórn nýs þjálfarateymis, þeirra Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen.
1. mars 2019
U19 ára landslið kvenna leikur í dag fyrsta leik sinn á æfingamóti á La Manga þegar liðið mætir Svíþjóð. Leikurinn hefst klukkan 13:00 að íslenskum tíma.
28. febrúar 2019
A landslið karla leikur tvo heimaleiki í undankeppni EM 2020 í júní - gegn Albönum og Tyrkjum. Miðasala á þessa leiki hefst í byrjun mars, nánar tiltekið 5. og 6. mars.
28. febrúar 2019
Mjólkurbikarinn 2019 hefst þann 10. apríl næstkomandi með viðureign Kára og Hamars í Mjólkurbikar karla. Dagsetningar bikardrátta sumarsins hafa verið staðfestar.
27. febrúar 2019
Lið Þórs var ólöglega skipað í leik gegn Leikni R. í Lengjubikar karla þegar liðin mættust 23. febrúar síðastliðinn. Dino Gavric lék með Þór í leiknum, en er skráður í Fram.
27. febrúar 2019
Ísland gerði markalaust jafntefli við Kanada í fyrsta leik liðsins á Algarve Cup 2019, en leikið var í Parchal. Liðið mætir næsta Skotlandi 4. mars.
27. febrúar 2019
Ísland mætir Kanada í dag í fyrsta leik liðsins á Algarve Cup 2019 og hefur Jón Þór Hauksson, þjálfari liðsins, tilkynnt byrjunarliðið.
26. febrúar 2019
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að aðalþjálfara fyrir 6. flokk karla á því tímabili sem er í gangi. Krafist er viðeigandi þjálfaramenntunar og reynslu af þjálfun yngri flokka.
26. febrúar 2019
Vefur KSÍ hlaut Íslensku vefverðlaunin fyrir "bestu efnis- og fréttaveitu", en verðlaunin voru veitt á Hilton Hótel Nordica á föstudag. Advania sá um greiningu, hönnun og forritun á vefnum.
26. febrúar 2019
A landslið kvenna mætir Kanada á miðvikudag í fyrsta leik sínum á Algarve Cup. Leikurinn fer fram á Est. Bela Vista Parchal og hefst klukkan 13:15 að íslenskum tíma.
25. febrúar 2019
Um liðna helgi var haldið námskeið í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal, sem var sérstaklega sniðið að nýliðum í stjórnarstörfum, fólki sem situr í stjórnum knattspyrnudeilda.