22. febrúar 2019
Undanfarið ár hefur starfshópur á vegum knattspyrnusambandanna á Norðurlöndunum skoðað möguleikann á því að samböndin standi sameiginlega að umsókn um að halda úrslitakeppni HM kvennalandsliða 2017.
22. febrúar 2019
Á 133. ársfundi IFAB (Alþjóðanefndar knattspyrnusambanda), sem haldinn verður í Skotlandi 2. mars nk., verða lagðar fram til staðfestingar ýmsar athyglisverðar tillögur tækni- og ráðgjafarnefnda IFAB um breytingar á knattspyrnulögunum 2019/2020.
22. febrúar 2019
Í síðustu viku fóru Lúðvík Gunnarsson og Elías Örn Einarsson, þjálfarar í Hæfileikamótun N1 og KSÍ, í heimsókn til Vestmannaeyja.
22. febrúar 2019
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 1.-3. mars.
22. febrúar 2019
Leikdagar í undankeppni EM kvenna 2021 liggja nú fyrir og hafa verið staðfestir af UEFA. Ísland hefur keppnina á tveimur heimaleikjum og lýkur henni á tveimur viðureignum við Svía - fyrst á Laugardalsvelli og svo á útivelli.
21. febrúar 2019
Búið er að draga í undankeppni EM 2021 og er Ísland í riðli með Svíþjóð, Ungverjalandi, Slóvakíu og Lettlandi.
21. febrúar 2019
Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 1.-2. mars.
21. febrúar 2019
Sýn hf., fyrir hönd Stöðvar 2 sports, og Ölgerðin Egill Skallagrímsson hafa samið um nafnarétt efstu deilda karla og kvenna til næstu þriggja ára. Pepsi Max leysir Pepsi af hólmi og munu deildirnar bera nafnið Pepsi Max deildir karla og kvenna næstu þrjú árin.
21. febrúar 2019
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, kven- og karlkyns, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 1.- 15. júní n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið „Olympic Diplomacy and Peace?“
20. febrúar 2019
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur þurft að gera eina breytingu á hópnum fyrir Algarve. Sandra María Jessen getur ekki tekið þátt vegna meiðsla og hefur Ásta Eir Árnadóttir verið kölluð inn í hennar stað.
20. febrúar 2019
U17 ára landslið kvenna vann 5-2 sigur gegn Írlandi, en leikið var í Kórnum. Þetta var annar leikur liðanna, en þau mættust einnig á mánudaginn og endaði sá leikur með 3-0 sigri Íslands.
20. febrúar 2019
Dregið verður í undankeppni EM 2021 á fimmtudag og hefst drátturinn klukkan 12:30 að íslenskum tíma.
20. febrúar 2019
Þrír leikmenn léku ólöglega í Lengjubikar kvenna á dögunum í leik ÍBV og Vals. Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sara Suzanne Small og Mckenzie Grossmann léku allar með ÍBV en eru skráðar í erlend félög.
20. febrúar 2019
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 1.-2. mars.
20. febrúar 2019
Ellert Þórarinsson og Magnús Valur Böðvarsson voru sæmdir nafnbótinni vallarstjórar ársins 2018 á aðalfundi SÍGÍ, sem var haldinn í golfskála Keilis þann 15. febrúar síðastliðinn.
19. febrúar 2019
U17 ára landslið kvenna mætir Írlandi öðru sinni á miðvikudag. Leikur fer fram í Kórnum og hefst klukkan 12:00.
19. febrúar 2019
Dagana 7. og 8. mars fara fram vinnufundir um markaðsmál og framkvæmd leikja í Pepsi-deildum og Inkasso-deildum. Fjallað verður um Handbók leikja 2019, félög deila sinni reynslu af umgjörð heimaleikja og annarra verkefna, kynntar verða helstu niðurstöðu markaðsrannsóknar um aðsókn og umgjörð leikja, og fleira fróðlegt.
19. febrúar 2019
Þann 6. mars næstkomandi stendur KSÍ fyrir vinnufundi sem ber yfirskriftina "Samfélagsmiðlar - Notkun og miðlun efnis í kynningarstarfi". Á fundinum munu fulltrúar Breiðabliks og Vals kynna sína samfélagsmiðla og notkun þeirra í kynningarstarfi, auk þess sem KSÍ mun kynna miðla sína.