4. febrúar 2019
Á fundi stjórnar KSÍ, 31. janúar sl., samþykkti stjórn KSÍ breytingar á reglugerð KSÍ um knattspyrnuleikvanga, annars vegar, og reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, hins vegar.
4. febrúar 2019
Stjarnan og Valur mætast í fyrsta leik Lengjubikarsins 2019, en um er að ræða leik í A deild kvenna. Leikurinn átti að fara fram 29. mars, en fer nú fram fimmtudaginn 7. febrúar vegna æfingaferða félaga.
4. febrúar 2019
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra daglegum rekstri félagsins.
1. febrúar 2019
Rekstur KSÍ á árinu 2018 var hagstæðari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrartekjur sambandsins námu 2.431 mkr., en áætlun gerði ráð fyrir 2.419 mkr. Rekstrarkostnaður KSÍ var undir áætlun, eða 1.929 mkr, en áætlun gerði ráð fyrir 2.014 mkr. Rekstrarhagnaður ársins fyrir fjármagnsliði og ráðstöfun til aðildarfélaga nam 502 mkr.
1. febrúar 2019
Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Vesturlandi fer fram miðvikudaginn 6. febrúar á Akranesi. Lúðvík Gunnarsson, yfirmaður Hæfileikamótunar, stýrir æfingunum.
1. febrúar 2019
Dregið hefur verið í forkeppni Mjólkurbikars karla og kvenna, en um er að ræða fyrstu tvær umferðinar.
1. febrúar 2019
Drög að niðurröðun í 4. deild karla hefur verið birt á heimasíðu KSÍ, en um er að ræða fjóra riðla, og mæta fjögur ný lið til leiks.
1. febrúar 2019
Drög að niðurröðun í 2. deild kvenna hafa verið birt á heimasíðu KSÍ, en níu lið taka þátt að þessu sinni.
1. febrúar 2019
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla fer fram mánudaginn 4. febrúar, en þar mætast KR og Fylkir. Leikurinn hefst kl. 20:00 í Egilshöll og er sýndur beint á Sport TV.
31. janúar 2019
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum 1.-3. febrúar.
30. janúar 2019
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum dagana 8.-10. febrúar.
29. janúar 2019
Um komandi helgi fer fram hin árlega landsdómararáðstefna KSÍ en þar hittast landsdómarar til að undirbúa sig fyrir komandi tímabil.
29. janúar 2019
Æfingar fyrir Hæfileikamótun N1 og KSÍ og U15 karla og kvenna fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni 2. febrúar. Lúðvík Gunnarsson stýrir æfingunum.
28. janúar 2019
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests.
28. janúar 2019
Mannvirkjanefnd KSÍ var sett á laggirnar árið 1989 og fagnar því 30 ára afmæli um þessar mundir. Meðal helstu verkefna nefndarinnar eru að „efla þekkingu á sviði skipulags, rannsókna, framkvæmda og reksturs tengdum knattspyrnumannvirkjum“.
28. janúar 2019
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í úrtaksæfingum dagana 8.-10. febrúar.
28. janúar 2019
Undanúrslit Reykjavíkurmóts karla fara fram fimmtudaginn 31. janúar. Fjölnir og Fylkir mætast kl. 19:00 og KR og Valur kl. 21:00.
28. janúar 2019
U17 ára lið karla endaði í 5. sæti á móti í Hvíta Rússlandi, en þetta varð ljóst með 2-1 sigri liðsins gegn Tadsíkistan.