26. janúar 2019
U17 ára lið karla mætir Tadsíkistan í leik um 5. sætið á móti í Hvíta Rússlandi, en þetta varð ljóst eftir að Ísland vann Belgíu og Tadsíkistan knúði fram sigur eftir vítaspyrnukeppni gegn Búlgaríu.
26. janúar 2019
U17 ára landslið karla vann góðan sigur gegn Belgíu á móti í Hvíta Rússlandi.
25. janúar 2019
Helgi Mikael Jónasson fer á næstu dögum á nýliðaráðstefnu fyrir nýja FIFA dómara, en hún fer fram í Lissabon dagana 27.-30. janúar.
25. janúar 2019
Starf yngri landsliða er fjölbreytt, en í Hvíta Rússlandi stunda leikmenn U17 karla nám sitt af fullum krafti á milli leikja og æfinga.
24. janúar 2019
Ljóst er að U17 karla leikur um 5.-8. sætið á móti í Hvíta Rússlandi, en liðið lenti í þriðja sæti síns riðils.
24. janúar 2019
U17 ára landslið karla gerði 1-1 jafntefli gegn Ísrael í síðasta leik liðsins í riðlakeppni móts í Hvíta Rússlandi, en það var Danijel Dejan Djuric sem skoraði mark Íslands.
24. janúar 2019
Ákveðið hefur verið að U21 landslið karla mæti Tékklandi í vináttulandsleik á Spáni þann 22. mars næstkomandi. Um er að ræða fyrsta verkefni U21 karla undir stjórn nýs þjálfarateymis liðsins.
24. janúar 2019
KSÍ vekur athygli á viðburði sem haldinn verður í höfuðstöðvum KSÍ þann 30. janúar næstkomandi, þar sem fjallað er um lýsingu á íþróttaleikvöngum og æfingasvæðum.
24. janúar 2019
Miðasala á leiki Íslands gegn Andorra og Frakklandi, ytra, í mars hefst á föstudag klukkan 12:00 á tix.is.
24. janúar 2019
U17 ára lið karla mætir í dag Ísrael á móti í Hvíta Rússlandi. Leikurinn hefst klukkan 17:25 og verður sýndur í beinni útsendingu á Youtube rás knattspyrnusambands Hvíta Rússlands.
23. janúar 2019
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Keflavík á 2. hæð íþróttahússins við Sunnubraut þriðjudaginn 29 janúar kl. 19:30.
23. janúar 2019
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Haukum að Ásvöllum miðvikudaginn 30 janúar kl. 21:00.
22. janúar 2019
Þrír nýir umboðsmenn í knattspyrnu hafa verið skráðir hjá KSÍ í upphafi árs 2019 og hafa því öðlast réttindi til að koma fram fyrir hönd leikmanna og/eða félaga við gerð leikmannasamninga eða gerð samninga um félagaskipti.
22. janúar 2019
Að gefnu tilefni vill Knattspyrnusamband Íslands koma því á framfæri að sýningarleikir sem fyrirhugaðir eru á föstudag og laugardag eru hvorki skipulagðir af sambandinu né aðildarfélögum þess.
22. janúar 2019
U17 ára landslið karla vann 1-0 sigur gegn Moldóvu á móti í Hvíta Rússlandi, en það var Benedikt Tristan M. Axelsson sem skoraði mark Íslands.
22. janúar 2019
U17 ára landslið karla mætir Moldóvu í dag í öðrum leik liðsins á móti í Hvíta Rússlandi. Leikurinn hefst klukkan 11:10 að íslenskum tíma.
21. janúar 2019
Ísland vann flottan 2-1 sigur gegn Skotlandi, en leikið var á La Manga á Spáni. Elín Metta Jensen skoraði bæði mörk liðsins í byrjun síðari hálfleiks.
21. janúar 2019
Föstudaginn 11.janúar síðastliðinn voru æfingar í Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Suðurnesjum. Æfingarnar fóru fram við kjöraðstæður í Grindavík og voru þær bæði fyrir stráka og stelpur.