9. maí 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ verður á Norðurlandi 18. maí og fara æfingarnar fram á Húsavík. Það er Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, sem stýrir æfingunum.
9. maí 2018
Breyting hefur orðið á leikvelli í leik Fjölnis og FH í Pepsi deild karla. Leikurinn átti að fara fram á Extra vellinum í Grafarvogi, en fer nú fram í Egilshöll.
8. maí 2018
U15 ára landslið karla tapaði í dag 1-4 gegn Sviss, en leikurinn fór fram á Eimskipsvellinum í Laugardal. Liðin mætast aftur fimtudaginn 10. maí og hefst sá leikur klukkan 11:00, en hann fer einnig fram á Eimskipsvellinum í Laugardal.
8. maí 2018
A landslið karla mætir Gana á Laugardalsvelli í síðasta leik sínum fyrir HM í Rússlandi. Miðasala á leikinn er farin af stað á midi.is
8. maí 2018
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leik liðsins gegn Sviss í dag.
8. maí 2018
Tvær breytingar hafa orðið á leikjum í Pepsi deild karla, en um er að ræða leik KA og ÍBV annars vegar og leik Grindavíkur og KR hins vegar.
7. maí 2018
Tvær breytingar hafa orðið á leikjum í Pepsi deild kvenna, en um er að ræða leik FH og ÍBV annars vegar og Selfoss og KR hins vegar.
7. maí 2018
Ein breyting hefur orðið á leik í Pepsi deild karla, en um er að ræða leik Breiðabliks og Keflavíkur. Fer hann nú fram laugardaginn 12. maí klukkan 16:00 á Kópavogsvelli.
7. maí 2018
Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir pilta og stúlkur verður á Vestfjörðum laugardaginn 12. maí og fara æfingarnar fram á Ísafirði. Það er Þorlákur Árnason, yfirmaður Hæfileikamótunar, sem stjórnar æfingunum.
7. maí 2018
Heimir Hallgrímsson, þjálfari A landsliðs karla, og Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ, heimsóttu á dögunum FIFA safnið í Zurich og tóku þar þátt í pallborðsumræðum. Umræðuefnið var ótrúlegur árangur íslenska karlandsliðsins undanfarin ár.
7. maí 2018
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmdi leik Englands og Ítalíu á EM U17 karla, en mótið fer fram í Englandi. Það má með sanni segja að um var að ræða stórleik og er þetta mikil viðurkenning fyrir Vilhjálm Alvar.
6. maí 2018
U15 ára lið karla, undir stjórn Þorláks Árnasonar, mætir Sviss á þriðjudag og fimmtudag í vináttuleikjum og fara báðir leikirnir fram á Eimskipsvellinum í Laugardal.
4. maí 2018
Mjólkurbikar kvenna fór af stað um helgina með sex leikjum.
4. maí 2018
FIFA hefur staðfest í hvaða búningum íslenska landsliðið leikur í gegn Argentínu, Nígeríu og Króatíu í riðlakeppni HM í Rússlandi.
3. maí 2018
A landslið karla mætir Noregi á Laugardalsvelli í lokaundirbúning sínum fyrir HM í Rússlandi. Miðasala á leikinn gegn Noregi er í fullum gangi á midi.is
3. maí 2018
Dregið var í 16 liða úrslit Mjólkurbikars karla í höfuðstöðvum KSÍ, en leikirnir fara fram dagana 30. og 31. maí.
2. maí 2018
Hinn árlegi kynningarfundur Inkasso deildarinnar fór fram í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Kynntar voru spár forráðamanna félaganna og er Fylki spáð sigri kvennamegin, en ÍA karlamegin.
2. maí 2018
Vegna vallaraðstæðna á Alvogenvellinum hefur heimaleikjum KR og Stjörnunnar verð víxlað.