2. maí 2018
Inkasso og KSÍ hafa gert með sér nýjan samstarfssamning til þriggja ára vegna 1. deildar karla og kvenna í knattspyrnu. Samkomulagið gildir til ársloka 2020 og felur í sér að Inkasso-deildirnar verða tvær, kvenna og karla.
2. maí 2018
Í dag fór fram hinn árlegi kynningarfundur Pepsi deildar kvenna og fór hann fram í höfuðstöðvum KSÍ. Að venju var kynnt spá forráðamanna félaganna og er Íslandsmeisturum Þór/KA spáð titlinum og Val öðru sæti. HK/Víking og Grindavík er spáð falli niður um deild.
2. maí 2018
Pepsi deild kvenna fer af stað á morgun með stórleik Stjörnunnar og Breiðabliks á Samsung vellinum í Garðabæ, en leikurinn hefst klukkan 19:15.
2. maí 2018
Dregið verður í 16 liða úrslit í Mjólkurbikars karla í dag í höfuðstöðvum KSÍ, en 32 liða úrslitin kláruðust á dögunum. Bein útsending verður frá drættinum á miðlum KSÍ.
30. apríl 2018
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úr gildi úrskurð aga- og úrskurðarnefndar KSÍ frá 13. mars 2018 á hendur knattspyrnudeild Vals.
30. apríl 2018
Mótanefnd KSÍ hefur staðfest leiki í 2. deild kvenna og 4. deild karla. Þar með hefur leikjaskrá allra móta í meistaraflokki verið staðfest.
30. apríl 2018
Miðasala á leik Íslands og Slóveníu í undankeppni HM 2019 hefst þann 14. maí klukkan 12:00. Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik, en Ísland getur komist í efsta sæti riðilsins með sigri.
30. apríl 2018
Miðasala á leiki A landsliðs karla gegn Noregi og Gana í júní hefst á næstu dögum hjá www.midi.is.
30. apríl 2018
Dagskrá fyrir Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir árið 2018 er tilbúin og má sjá hana hér í fréttinni.
30. apríl 2018
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir í lokakeppni EM 2018 hjá U17 karla, en mótið er haldið í Englandi dagana 4.-20. maí næstkomandi.
29. apríl 2018
32 liða úrslit Mjólkurbikars karla fara af stað í gær með tveimur leikjum. Njarðvík og Þróttur R. mættust á Njarðtaksvellinum og Selfoss og ÍA á JÁVERK-vellinum. Aðrir leikir fara fram í dag
29. apríl 2018
Þór/KA vann í gær ÍBV 3-0 í Meistarakeppni KSÍ, en þar mætast deildar- og bikarmeistara síðasta tímabils, og fór leikurin fram á KA-velli á Akureyri. Það voru þær Stephany Mayor og Margrét Árnadóttir sem skoruðu mörk Akureyringa.
29. apríl 2018
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið hópinn sem leikur tvo leiki gegn Sviss, 8. og 10. maí næstkomandi. Leikirnir fara báðir fram á Eimskipsvellinum í Laugardal.
29. apríl 2018
Þór/KA og ÍBV mætast í dag í Meistarakeppni KSÍ kvenna í dag, en í keppninni mætast deildar- og bikarmeistarar síðasta tímabils. Leikurinn fer fram á KA-velli og hefst klukkan 14:00.
27. apríl 2018
Öll höfum við beðið knattspyrnusumarsins 2018 með mikilli eftirvæntingu og nú er þetta loks að bresta á. Íslandsmótið er að hefjast og það eru leikir framundan í Pepsi-, Inkasso- og öðrum deildum, auk þess sem Mjólkurbikarinn er kominn á fleygiferð.
27. apríl 2018
Í Handbók leikja 2018 er að finna ábendingar og tilmæli til félaga um framkvæmd leikja. Listaðar eru upp skyldur við samstarfsaðila, tilmæli og skyldur vegna umgjarðar aðstöðu á leikvöngum og þjónustu við fjölmiðla og aðra hópa. Að auki er stiklað á stóru um hlutverk lykilstarfsmanna leikja.
27. apríl 2018
Áhugi erlendra fjölmiðla á íslenskri knattspyrnu hefur aukist gríðarlega á síðustu árum og hingað til lands streymir fjölmiðlafólk frá öllum heimshornum til að kynna sér uppgang síðustu ára. Félög eru heimsótt, tekin viðtöl og myndefni og fréttaefni birt í miðlum í öllum heimshornum.
27. apríl 2018
Knattspyrnufélagið Valur og upplýsingatæknifyrirtækið Origo hafa gert með sér samstarfssamning sem snýr að uppbyggingu á Hlíðarendasvæðinu. Keppnisvöllur Vals mun bera nafnið Origo völlurinn Hlíðarenda næstu árin.