28. ágúst 2012
FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 16. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997. Að þessu sinni urðu dagarnir 7. til 11. september fyrir valinu, en á því tímabili fara m.a. fram landsleikir um allan knattspyrnuheiminn.
27. ágúst 2012
Úlfar Hinriksson, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur valið hóp 18 leikmanna fyrir undankeppni EM 2013. Riðill Íslands fer fram í Slóveníu í byrjun september og er Ísland í riðli með Slóveníu, Tékklandi og Eistlandi.
27. ágúst 2012
Norska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt þann landsliðshóp sem þjálfarinn Egil Drillo Olsen hafur valið fyrir leikinn gegn Íslandi á Laugardalsvellinum 7. september næstkomandi. Níu leikmenn í hópnum leika utan Skandinavíu.
22. ágúst 2012
Eins og öllum er kunnugt er íslenska kvennalandsliðið í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð 2013. Liðið er í efsta sæti riðilsins, einu stigi á undan Noregi, þegar tveir leikir eru eftir hjá liðunum í riðlinum.  Noregur tekur á móti Íslandi í lokaleiknum í riðlinum og hefur norska knattspyrnusambandið nú ákveðið, m.a. vegna mikilvægi leiksins, að leika hann í Osló, nánar tiltekið á Ulleval vellinum
20. ágúst 2012
Ísland og Noregur mætast á Laugardalsvellinum föstudaginn 7. september næstkomandi í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM 2014. Leikurinn hefst kl. 18:45 og má búast við mikilli stemmningu eins og venjan er þegar þessar frændþjóðir mætast. Mikil áhugi er á leiknum í Noregi en Norðmenn hafa rétt á 1.000 miðum á leikinn. Norska knattspyrnusambandið hefur þegar selt 700 miða á þennan leik.
17. ágúst 2012
A landslið kvenna fer upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem kom út í dag og er Ísland nú í 16. sæti listans. Ísland er í 9. sæti á meðal Evrópuþjóða. Hæsta staða Íslands frá upphafi á heimslistanum er 15. sæti
16. ágúst 2012
Ísland og Noregur mætast á Laugardalsvellinum 7. september í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM 2014. Leikurinn hefst kl. 18:45 og má búast við mikilli stemmningu eins. Miðasalan er hafin á midi.is og er fólk hvatt til að tryggja sér miða sem fyrst.
16. ágúst 2012
Leikmenn, þjálfarar og aðrir aðstandendur A landsliðs karla vilja koma á framfæri einlægum þökkum fyrir mætinguna og stuðninginn á leiknum við Færeyinga á miðvikudag.  Stuðningur áhorfenda var öflugur og Tólfan lét afar vel í sér heyra.
15. ágúst 2012
A landslið karla vann í kvöld góðan 2-0 sigur á Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum. Þetta far fyrsti heimaleikur liðsins undir stjórn Lars Lagerbäck og jafnframt fyrsti sigurleikurinn síðan hann tók við þjálfun liðsins.  Kolbeinn Sigþórsson gerði bæði mörk íslenska liðsins.
15. ágúst 2012
Fyrsti heimaleikur A landsliðs karla undir stjórn Lars Lagerbäck fer fram á laugardalsvellinum kl. 19:45 í kvöld, miðvikudagskvöld. Smellið hér að neðan til að skoða byrjunarlið Íslands og uppstillingu þess. Það þarf ekki að koma á óvart að leikkerfið sé 4-4-2.
14. ágúst 2012
Færeyski landsliðshópurinn sem mætir Íslendingum í vináttuleik á Laugardalsvellinum á miðvikudag kl. 19:45 er öflugur og tæplega helmingur leikmannanna er á mála hjá erlendum félagsliðum. Einn þeirra leikur á Íslandi.  Þjálfarinn Lars Olsen lék 84 landsleiki fyrir Danmörku.
14. ágúst 2012
A landslið karla mætir Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á miðvikudag kl. 19:45. Þetta er síðasti æfingaleikurinn áður en undankeppni HM 2014 hefst í september. Ísland teflir fram sterku liði og ljóst að menn vilja sanna sig fyrir þjálfaranum.
11. ágúst 2012
Hallgrímur Jónasson hefur neyðst til að draga sig úr landsliðshópnum sem mætir Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvellinum á miðvikudag. Haddi, eins og hann er jafnan kallaður, hefur því miður ekki náð sér fyllilega af meiðslum sem hann hefur verið að stríða við.
11. ágúst 2012
U17 landslið karla lék í dag lokaleik sinn á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Færeyjum. Leikið var gegn heimamönnum um 7.-8. sæti mótsins. Hvort lið um sig skoraði eitt mark í fyrri hálfleik og þar við sat í markaskorun. Færeyingar höfðu svo betur í vítakeppni.
10. ágúst 2012
U17 landslið karla mætir Færeyingum í leik um 7.-8. sæti Opna Norðurlandamótsins á laugardag kl. 11:00 að íslenskum tíma, en mótið fer einmitt fram í Færeyjum og þar taka m.a. þátt bæði U17 og U19 landslið heimamanna. Byrunarlið Íslands hefur verið opinberað.
10. ágúst 2012
Sölvi Geir Ottesen á við meiðsli að stríða og getur ekki verið með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum við Færeyinga á Laugardalsvellinum á miðvikudag. Ekki verður kallaður annar leikmaður í hópinn í stað Sölva Geirs
10. ágúst 2012
Úrtökumót drengja (árgangur 1997) fer fram helgina 17.-19. ágúst næstkomandi að Laugarvatni. Alls hafa á sjöunda tug leikmanna frá félögum víðs vegar af landinu verið boðaðir á úrtökumótið að þessu sinni.
10. ágúst 2012
Handhafar A-passa 2012 frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyjar afhenta þriðjudaginn 14. ágúst frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir eru afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.