10. ágúst 2012
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvelli miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 19:45. Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu KSÍ á mánudag og þriðjudag.
10. ágúst 2012
U17 landslið karla tapaði á fimmtudag lokaleik sínum í riðlakeppni Opna NM, sem fram fer í Færeyjum. Mótherjarnir voru Danir, sem unnu 2-0 sigur með mörkum á 8. og 39. mínútu, leiddu.  Ísland leikur við Færeyjar um 7.-8. sætið í mótinu.
9. ágúst 2012
KSÍ hefur ákveðið bjóða yngri flokkum og forráðamönnum flokka (3. flokkur og yngri) allra aðildarfélaga miða á vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fram fer á Laugardalsvelli miðvikudaginn 15. ágúst og hefst kl. 19:45.
8. ágúst 2012
Ísland er í 130. sæti á mánaðarlegum styrkleikalista FIFA fyrir A landslið karla og fellur um eitt sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Annars er almennt lítið um breytingar á listanum milli mánaða og þá sérstaklega við topp listans.
8. ágúst 2012
U17 landslið karla tapaði á þriðjudag gegn U19 liði Færeyinga á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Færeyjum. Lokatölur leiksins urðu 3-1 fyrir heimamenn, sem leiddu með einu marki í hálfleik. Mark Íslands kom undir lok leiksins.
8. ágúst 2012
Flestir þeir sem lagt hafa leið sína á Laugardalsvöllinn til að styðja við landsliðin okkar kannast við stuðningsmannahópinn Tólfuna. Nú þegar landsleikjahrina haustsins nálgast er Tólfan að vakna aftur til lífsins og hefur ný Facebook-síða Tólfunnar verið sett upp.
8. ágúst 2012
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn við Færeyinga á miðvikudag. Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Hallgrímur Jónasson bætast við áður tilkynntan leikmannahóp, en Björn Bergmann Sigurðarson á við meiðsli að stríða og verður því ekki með.
7. ágúst 2012
U17 landslið karla leikur annan leik sinn á Opna NM í dag og eru mótherjarnir U19 landslið Færeyinga, heimamanna. Sjö breytingar eru gerðar á á byrjunarliði Íslands frá tapleiknum gegn Svíum í gær, sem þýðir að allir þeir leikmenn sem ekki byrjuðu gegn Svíum byrja í dag.
7. ágúst 2012
Skotland og Ísland mættust í U23 landsliðum kvenna á sunnudag og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland teflir fram U23 liði. Lokatölur leiksins urðu 2-2 og kom jöfnunarmark Skota seint í leiknum.
6. ágúst 2012
Fyrsta umferð Opna NM U17 karla fór fram í dag, mánudag, og voru mótherjar Íslands Svíar, sem þykja hafa á sterku liði að skipa. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og hálfleiksstaðan 1-1 endurspeglaði þá stöðu.  Eina mark síðari hálfleiks kom svo á 46. mínútu, sigurmark Svía.
4. ágúst 2012
Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag vináttulandsleik gegn Skotum en leikurinn fer fram í Glasgow. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið og er einn nýliði sem hefur leikinn, Glódís Perla Viggósdóttir.
2. ágúst 2012
Knattspyrnusamband Evrópu hefur ákveðið að þau félög sem áttu leikmenn í landsliðum sem tóku þátt í Evrópukeppni landsliða 2012 fái hlutdeild í hagnaði keppninnar, alls 100 milljónir evra. Í fyrsta sinn fá félög sem áttu leikmenn í undankeppninni framlag
1. ágúst 2012
Framundan er úrtökumót stúlkna (fæddar 1997) sem fer fram helgina 10. - 12. ágúst næstkomandi á Laugarvatni. Hér að neðan má sjá dagskrá, nafnalista og ýmsar hagnýtar upplýsingar.
1. ágúst 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á U23 hópnum sem mætir Skotum í vináttulandsleik í Glasgow, sunnudaginn 5. ágúst. Guðmunda Brynja Óladóttir úr Selfossi kemur inn í hópinn í stað Sigrúnar Ellu Einarsdóttur sem er meidd.
1. ágúst 2012
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 15. ágúst kl. 19:45. Þetta er lokahnykkurinn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014 þar sem Norðmenn verða fyrstu mótherjarnir þann 7. september á Laugardalsvelli.
1. ágúst 2012
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið Hörpu Þorsteinsdóttur úr Stjörnunni í A landsliðshópinn er mætir Skotum í vináttulandsleik ytra þann 4. ágúst næstkomandi. Harpa kemur í stað Katrínar Jónsdóttur sem getur ekki tekið þátt í þessu verkefni vegna meiðsla.
25. júlí 2012
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur á Opna Norðurlandamótinu í Færeyjum, dagana 5. - 12. ágúst. Ísland er þar í riðli með Svíþjóð, Danmörku og U19 liði heimamanna. Fyrsti leikurinn verður gegn Svíum, mánudaginn 6. ágúst.
24. júlí 2012
Íslendingar taka á móti frændum sínum Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 15. ágúst, hefst kl. 19:45 og er miðasala á leikinn hafin. Þetta er lokahnykkurinn í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014 þar sem Norðmenn verða fyrstu mótherjarnir þann 7. september á Laugardalsvelli.