Verslun
Leit
SÍA

3. maí 2012

U17 karla hefja leik á morgun

Strákarnir í U17 hefja á morgun, föstudaginn 4. maí, leik í úrslitakeppni EM U17 sem leikin verður í Slóveníu. Ísland er í riðli með Georgíu, Þýskalandi og Frakklandi og verður síðastnefnda þjóðin fyrstu mótherjar Íslands í riðlinum.

Landslið

2. maí 2012

Knattspyrnuskóli KSÍ á Laugarvatni 2012

Eins og undanfarin ár starfrækir Knattspyrnusamband Íslands í sumar knattspyrnuskóla fyrir stúlkur og drengi. Í ár eru þetta iðkendur fæddir 1998.

Landslið

30. apríl 2012

Úrslitahópur U17 karla klár

Gunnar Guðmundsson, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir úrslitakeppni EM, sem fram fer í Slóveníu og hefst 4. maí. Ísland er í riðli með Frakklandi, Georgíu og Þýskalandi, og eru fyrstu mótherjarnir Frakkar.

Landslið

20. apríl 2012

Vináttulandsleikir gegn Skotum hjá A og U23 kvenna

Knattspyrnusambönd Íslands og Skotlands hafa komist að samkomulagi um vináttulandsleiki á milli þjóðanna hjá A landsliði kvenna og U23 kvenna. Leikirnir fara fram í Skotlandi 4. og 5. ágúst næstkomandi.  Stefnt er að því að Skotar endurgjaldi heimsóknina með A landsliði sínum sumarið 2013.

Landslið

20. apríl 2012

Samstarfssamningur við Icelandair framlengdur

Á miðvikudag undirritaði formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, framlengingu á samstarfssamningi KSÍ við Icelandair, og gildir samningurinn því út árið 2014. Samningurinn felur í sér víðtækt samstarf sem felst m.a. í því að öll knattspyrnulandslið Íslands ferðast með Icelandair.

Landslið

18. apríl 2012

U17 kvenna - Stelpurnar hársbreidd frá úrslitakeppninni

Stelpurnar í U17 voru hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppni EM hjá U17 kvenna en lokaumferð milliriðils þeirra fór fram í dag. Ísland lagði Belgíu með þremur mörkum gegn einu en á sama tíma vann Sviss England, 1 - 0. Sviss tryggði sér þar með efsta sætið í riðlinum og þátttökurétt í úrslitakeppninni í Sviss.

Landslið

18. apríl 2012

U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Belgum

Stelpurnar í U17 leika í dag lokaleik sinn í milliriðli EM sem fram fer í Belgíu. Mótherjarnir eru heimastúlkur og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma. Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

16. apríl 2012

U17 karla - Undirbúningshópur fyrir úrslitakeppni EM

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið undirbúningshóp fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Slóveníu 4. - 16. maí. Ísland mun þar leika í riðli með Frakklandi, Þýskalandi og Georgíu.

Landslið

15. apríl 2012

U17 kvenna - Tap gegn Sviss

Stelpurnar í U17 töpuðu gegn Sviss í dag með einu marki gegn engu og kom eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik. Í hinum leik riðilsins lögðu Englendingar Belga með sömu markatölu og er því mikil spenna fyrir síðustu umferðina í riðlinum.

Landslið

13. apríl 2012

U17 kvenna - Enskar lagðar í Leper

Stelpurnar í U17 lögðu England í dag í fyrsta leik liðsins í milliriðli EM. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og skoraði Sandra María Jessen markið á 14. mínútu leiksins en leikið var í Leper í Belgíu.  Næsti leikur Íslands er gegn Sviss og fer hann fram á sunnudag kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Landslið

13. apríl 2012

U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Englandi

Stelpurnar í U17 hefja í dag leik í milliriðli EM en leikið er í Belgíu. Mótherjarnir í dag eru Englendingar og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma. Á undan leika heimastúlkur gegn Sviss.  Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.

Landslið

11. apríl 2012

Karlalandsliðið í 131. sæti á styrkleikalista FIFA

A landslið karla er í 131. sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og hefur aldrei verið neðar á listanum. Liðið fellur um tíu sæti frá því listinn var síðast gefinn út. Spánn er sem fyrr í efsta sætinu, á meðan Þýskaland og Úrúgvæ fara upp fyrir Hollendinga í næst tvö sæti.

Landslið

11. apríl 2012

Þrjátíu leikmenn á úrtaksæfingar U16 og U17

Þrjátíu leikmenn frá átta félögum á Austurlandi, fæddir 1996 og 1997, hafa verið boðaðir á úrtaksæfingar vegna U16 og U17 landsliða karla. Æfingarnar fara fram í Fjarðabyggðarhöllinni sunnudaginn 15. apríl.  Sindri Hornafirði á flesta leikmenn í æfingahópnum.

Landslið

6. apríl 2012

U19 kvenna - Naumt tap gegn Frökkum í lokaleiknum

Stelpurnar í U19 töpuðu lokaleik sínum í milliriðli EM sem leikinn var Hollandi. Frakkar voru mótherjir í lokaleiknum og höfðu þeir betur, 1 - 0 en eina mark leiksins kom strax á 8. mínútu. Tómas Þóroddsson sendi okkur umfjöllun um leikinn og má sjá hana hér að neðan.

Landslið

5. apríl 2012

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Frökkum

Stelpurnar í U19 leika í dag lokaleik sinn í milliriðli EM en leikið er í Hollandi. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið byrjunarliðið fyrir leikinn sem hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Landslið

4. apríl 2012

U17 karla - Ísland í riðli með Frakklandi, Georgíu og Þýskalandi

Í dag var dregið í riðla í úrslitakeppni EM hjá U17 karla en dregið var í Slóveníu þar sem úrslitakeppnin fer fram, 4. - 16. maí. Átta þjóðir leika í úrslitakeppninni og er Ísland í A riðli ásamt: Frökkum, Georgíu og Þýskalandi.

Landslið

4. apríl 2012

U17 karla - Dregið verður kl. 14:00 í dag

Í dag verður dregið í riðla í úrslitakeppni U17 karla en dregið verður í Slóveníu þar sem keppnin fer dagana 4. - 16. maí. Drátturinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með honum á heimasíðu UEFA.

Landslið

4. apríl 2012

A landslið kvenna - Svekkjandi ósigur gegn Belgum í Dessel

Stelpurnar í A landsliði kvenna gengu niðurlútar af velli eftir svekkjandi tap gegn Belgum í Dessel í kvöld. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir heimastúlkur og kom eina mark leiksins á 66. mínútu en íslenska liðið sótti mun meira í leiknum. Belgíska liðið skaust því á toppinn á riðlinum með 14 stig eftir sjö leiki, Ísland hefur 13 stig eftir sex leiki og Noregur er með 12 stig eftir sex leiki.

Landslið