Verslun
Leit
SÍA

3. apríl 2012

A landslið kvenna - Byrjunarliðið gegn Belgum tilbúið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Belgum í undankeppni EM á morgun, miðvikudaginn 4. apríl. Leikurinn hefst kl. 18.00 að íslenskum tíma og þarna eigast við tvær efstu þjóðirnar í riðlinum en efsta sæti riðilsins gefur beint sæti í úrslitakeppninni í Svíþjóð 2013.

Landslið

3. apríl 2012

A landslið kvenna - Styttist í stórleikinn gegn Belgum

Það styttist í stórleikinn gegn Belgum í undankeppni EM en hann fer fram á morgun, miðvikudaginn 4. apríl og hefst kl. 18:00 að íslenskum tíma. Liðið hélt utan á sunnudagsmorgun og hefur æft vel úti og verður æft á keppnisvellinum í Dessel í dag.

Landslið

3. apríl 2012

U17 kvenna - Hópurinn er leikur í milliriðli í Belgíu

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn er heldur til Belgíu og leikur þar í milliriðli EM. Leikirnir fara fram dagana 13. - 18. apríl en auk heimastúlkna leika í riðlinum England og Sviss. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Englandi, föstudaginn 13. apríl.

Landslið

2. apríl 2012

U19 kvenna - Rúmenar höfðu betur í Hollandi

Stelpurnar í U19 léku í dag annan leik sinn í milliriðli EM en riðillinn er leikinn í Hollandi og voru Rúmenar mótherjarnir. Rúmenska liðið reyndist sterkara og fór með sigur af hólmi, 2 – 0.  Lokaleikur Íslands er gegn Frökkum á fimmtudaginn. Tómas Þóroddsson sendi okkur umfjöllun um leikinn og má sjá hana hér að neðan

Landslið

1. apríl 2012

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Rúmenum tilbúið

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Rúmenum í milliriðli EM sem fram fer í Hollandi. Leikið verður á morgun, mánudaginn 2. apríl, og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

31. mars 2012

U19 kvenna - Jafntefli gegn Hollandi í fyrsta leik

Stelpurnar í U19 léku í dag fyrsta leik sinn í milliriðli EM U19 en riðillinn er leikinn í Hollandi. Fyrstu mótherjarnir voru einmitt heimastúlkur og lauk leiknum með jafntefli, 1 - 1, eftir að Ísland hafði leitt í leikhléi. Lára Kristín Pedersen skoraði mark Íslands á 36. mínútu en heimastúlkur jöfnuðu á 78. mínútu. Hér að neðan má finna umfjöllun Tómasar Þóroddssonar um leikinn.

Landslið

31. mars 2012

A landslið kvenna - Stelpurnar halda til Belgíu í fyrramálið

Framundan hjá A landsliði kvenna er gríðarlega mikilvægur leikur í undankeppni EM 2013 en þá sækir íslenska liðið það belgíska heim. Leikið verður í Dessel í Belgíu en þarna mætast þjóðirnar í efstu tveimur sætum riðilsins.  Belgar hafa tilkynnt hópinn fyrir leikinn gegn Íslandi.

Landslið

31. mars 2012

U17 karla - Dregið í riðla úrslitakeppninnar á miðvikudaginn

Miðvikudaginn 4. apríl verður dregið í riðla í úrslitakeppni EM U17 karla en dregið verður í Slóveníu þar sem keppnin fer fram. Í dag varð ljóst hvaða þjóðir munu verða í hattinum en eins og kunnugt hefur íslenska liðið tryggt sér þátttökurétt í keppninni.

Landslið

30. mars 2012

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Hollandi

Stelpurnar í U19 leika á morgun, laugardaginn 31 mars, sinn fyrsta leik í milliriðli EM. Riðillinn er leikinn í Hollandi og eru heimastúlkur einmitt fyrstu mótherjar Íslands í riðlinum. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Ólafur Þór Guðbjörnsson  hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn

Landslið

30. mars 2012

Vináttulandsleikur við Færeyjar 15. ágúst

Samið hefur verið við Færeyinga um vináttulandsleik A liða karla þann 15. ágúst næstkomandi og er sá leikur lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir undankeppni HM 2014, sem hefst í september. Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum og verður þetta 24. viðureign þessara frændþjóða.

Landslið

27. mars 2012

U19 kvenna - Breyting á hópnum

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum sem leikur í milliriðli EM í Hollandi. Sóley Guðmundsdóttir, úr ÍBV, kemur inn í hópinn í stað Aldísar Köru Lúðvíksdóttir sem gefur ekki kost á sér.

Landslið

26. mars 2012

A kvenna - Hópurinn sem mætir Belgum í undankeppni EM

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari A kvenna tilkynnti í dag, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ, hópinn er mætir Belgum í undankeppni EM 2013. Leikurinn fer fram á KFC Dessel Sport vellinum í Dessel, miðvikudaginn 4. apríl kl. 18:00 að íslenskum tíma.

Landslið

25. mars 2012

Ísland í úrslitakeppni EM U17 karla!

U17 landslið karla vann í dag 4-0 stórsigur á Litháen í milliriðil fyrir EM, og á sama tíma vann Danmörk 3-2 sigur á Skotum. Þessi úrslit þýða að Ísland er komið í úrslitakeppnina, sem fram fer í Slóveníu í maí.  Frábær árangur sem sýnir enn og aftur hið öfluga starf í uppeldi ungra knattspyrnumanna hér á landi.

Landslið

24. mars 2012

Lokaumferð milliriðilsins hjá U17 á sunnudag

U17 landslið karla á möguleika á að komast í úrslitakeppni EM, en liðið leikur lokaleik sinn í milliriðli sem fram fer í Skotlandi á sunnudag. Mótherjarnir eru Litháar og hefur Gunnar Guðmundsson tilkynnt byrjunarlið sitt, sem er óbreytt frá síðasta leik.

Landslið

23. mars 2012

U19 landsliðshópur kvenna fyrir milliriðil

U19 landslið kvenna leikur í milliriðli fyrir EM í Hollandi um mánaðamótin. Ásamt heimamönnum og Íslendingum eru Frakkar og Rúmenar í riðlinum. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið hóp Íslands.

Landslið

22. mars 2012

U17 karla - Frækinn sigur á Skotum

Strákarnir í U17 unnu frækinn sigur á Skotum í kvöld í milliriðli EM en riðillinn er leikinn í Skotlandi. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Ísland og gerði Kristján Flóki Finnbogson eina mark leiksins í byrjun síðari hálfleiks.

Landslið

22. mars 2012

U17 karla - Byrjunarliðið gegn Skotum

Strákarnir í U17 karla leika í kvöld annan leik sinn í milliriðli EM en leikið er í Skotlandi. Mótherjarnir í kvöld eru einmitt heimamenn en leikurinn hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma.  Gunnar Guðmundsson landsliðsþjálfari U17 karla hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og er það skipað sömu leikmönnum og hófu leikinn gegn Dönum.

Landslið

21. mars 2012

Úrslitakeppni EM U17 kvenna haldin á Íslandi 2015

Framkvæmdastjórn UEFA ákvað á fundi sínum á þriðjudag að samþykkja umsókn KSÍ um að halda úrslitakeppni EM hjá U17 kvenna. Mun hún því fara fram hér á landi árið 2015.  UEFA hefur ákveðið að stækka úrslitakeppnina í þessum aldursflokki og verða þjóðirnar 8 sem leika þar frá og með 2014 en þá verður keppnin haldin í Englandi. Íslendingar verða svo gestgjafar 2015 og Hvíta Rússland 2016.

Landslið