7. september 2011
Fyrir leik Íslands og Kýpurs var Rúnar Kristinsson heiðraður af Knattspyrnusambandi Evrópu og fékk afhentan minnispening og húfu (cap) af því tilefni.  UEFA var þarna að heiðra þá knattspyrnumenn í Evrópu sem hafa náð 100 landsleikjamarkinu.  Það var Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sem heiðraði Rúnar.
6. september 2011
Íslendingar unnu langþráðan sigur í kvöld í undankeppni EM þegar Kýpverjar voru lagðir af velli á Laugardalsvelli í kvöld. Mark Kolbeins Sigþórssonar á 5. mínútu dugði til sigurs og eru Íslendingar með fjögur stig í fjórða sæti riðilsins.
6. september 2011
U21 landslið karla tapaði 0-2 gegn Noregi í undankeppni EM 2013, en liðin mættust á Kópavogsvellinum í dag. Eitt mark í hvorum hálfleik gerði út um leikinn og eru nú fjögur lið í riðlinum með 3 stig, en Englendingar og Norðmenn hafa reyndar aðeins leikið einn leik.
6. september 2011
Í hálfleik á viðureign Íslands og Kýpurs í undankeppni EM 2012 reyndu fimm heppnir vallargestir að spyrna knetti frá vítateigsboganummeð það fyrir augum að hitta þverslána. Ágústi Valves Jóhannessyni tókst verkið og fékk hann utanlandsferð fyrir tvo með Icelandair að launum.
6. september 2011
Byrjunarlið U21 landsliðs karla gegn Norðmönnum í undankeppni EM 2013 hefur verið tilkynnt. LIðin mætast á Kópavogsvelli í dag og hefst leikurinn kl. 16:15, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
6. september 2011
Sigmundur Þórðarson á Þingeyri sendi A landsliði karla góða gjöf og baráttukveðjur fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni EM 2012. Helgi Valur Daníelsson og Alfreð Finnbogason tóku við gjöfinni, sem var af veglegri gerðinni – alvöru vestfirskur harðfiskur.
6. september 2011
Ísland og Kýpur mætast kl. 18:45 í kvöld á Laugardalsvellinum. Þetta er síðasti heimaleikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2012 og strákarnir eru staðráðnir í að innbyrða fyrsta sigurinn og lyfta sér þér með af botninum og upp fyrir Kýpur.
5. september 2011
U19 landslið karla lagði Eistland öðru sinni íþegar liðin mættust að nýju í vináttulandsleik í Eistlandi í dag.  Úrslit leiksins voru 1-0 og var það Hólmbert Aron Friðjónsson sem skoraði eina mark leiksins.  Fyrri vináttuleik liðann lauk með 4-1 sigri Íslands.
5. september 2011
U21 landslið karla leikur annan leik sinn í undankeppni EM 2013 þegar það mætir Norðmönnum á Kópavogsvellinum kl. 16:15 á þriðjudag.  Íslenska liðið fór vel af stað í keppninni og vann 2-1 sigur á Belgum á Vodafone-vellinum í síðustu viku.
5. september 2011
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur kallað á markvörðinn Harald Björnsson og sóknarmanninn Björn Bergmann Sigurðarson inn í landsliðhópinn fyrir leikinn gegn Kýpverjum á þriðjudag. Liðin mætast á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 18:45.
5. september 2011
Kristinn Rúnar Jónsson, þjálfari U19 landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir seinni vináttuleikinn gegn Eistlendingum, en liðin mætast í dag og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma. Íslenska liðið vann góðan 4-1 sigur í fyrri leiknum.
3. september 2011
Íslensku strákarnir í U19 lögðu jafnaldra sína frá Eistlandi í vináttulandsleik sem leikinn var ytra í dag.  Lokatölur urðu 4 - 1 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 1 - 0 fyrir okkar stráka í leikhléi.  Þjóðirnar mætast í öðrum vináttulandsleik á mánudaginn.
3. september 2011
Það voru komnar 88 mínútur á klukkuna þegar Norðmenn skoruðu eina mark leiksins við Íslendinga í undankeppni EM 2012, en liðin mættust á Ullevaal-leikvanginum í Osló á föstudagskvöld. Markið kom úr vítaspyrnu.
1. september 2011
Strákarnir í U21 byrjuðu undankeppni EM 2013 á besta mögulega máta þegar þeir lögðu Belga í kvöld á Vodafonevellinum.  Lokatölur urðu 2 -1 Íslendingum í vil eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1 - 1.  Björn Bergmann Sigurðarson skoraði bæði mörk Íslendinga.
1. september 2011
Í dag, fimmtudaginn 1. september, leika strákarnir í U21 sinn fyrsta leik í undankeppni EM U21 karla.  Andstæðingarnir eru Belgar og hefst leikurinn á Vodafonevelli kl. 17:00.  Hægt er að kaupa miða á þennan leik á midi.is en einnig opnar miðasala á Vodafonevellinum kl. 16:00.  Miðaverð er 1.000 krónur fyrir 17 ára og eldri en frítt er inn yfir 16 ára og yngri.
31. ágúst 2011
Fyrir landsleik Íslands og Kýpurs 6. september mun Geir Þorsteinsson formaður KSÍ, fyrir hönd UEFA, afhenda Rúnari Kristinssyni sérstaka viðurkenningu fyrir að vera einn af þeim 109 leikmönnum innan aðildarlanda UEFA sem hefur leikið yfir 100 A-landsleiki fyrir þjóð sína.
31. ágúst 2011
Handhafar A-passa frá KSÍ 2011 fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Kýpur afhenta mánudaginn 5. september frá kl. 10:00 - 16:00.  Miðarnir eru afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
31. ágúst 2011
Handhafar A-passa 2011 frá KSÍ þurfa ekki að sækja miða fyrir landsleik Íslands og Belgíu í undankeppni EM U21 karla. Dugar að sýna passann við innganginn þegar mætt er á völlinn en leikið verður á Vodafonevellinum. Frjálst sætaval er á leiknum sem hefst kl. 17:00, fimmtudaginn 1. september.