Verslun
Leit
SÍA

2. apríl 2011

U19 kvenna - Góður sigur á Wales

Stelpurnar í U19 unnu í dag góðan sigur á Wales í milliriðli EM en leikið er einmitt í Wales.  Lokatölur urðu 2 - 0 Íslandi í vil og voru það Sóley Guðmundsdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir sem skoruðu mörkin, sitt í hvorum hálfleiknum.

Landslið

1. apríl 2011

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Wales

Stelpurnar í U19 leika sinn annan leik í milliriðlinum fyrir EM á morgun, laugardag.  Mótherjarnir eru heimastúlkur í Wales en Ísland beið lægri hlut gegn Tyrkjum í fyrsta leiknum, 1 - 3.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið og teflir hann m.a fram systrum á miðjunni.

Landslið

1. apríl 2011

Vináttulandsleikur gegn Ungverjum 10. ágúst

Knattspyrnusambönd Íslands og Ungverjalands hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik 10. ágúst.  Leikið verður í Ungverjalandi en í samkomulaginu er kveðið á um að þjóðirnar leiki svo á Laugardalsvelli á næsta eða þarnæsta ári.

Landslið

31. mars 2011

U19 kvenna - Tap gegn Tyrkjum í fyrsta leik

Stelpurnar í U19 töpuðu fyrsta leik sínum í milliriðli fyrir EM en leikið er í Wales.  Tyrkir reyndust sterkari aðilinn í dag og fór með sigur af hólmi, 3 - 1.  Það var Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem kom Íslendingum yfir á 13. mínútu með laglegu skallamarki. 

Landslið

31. mars 2011

U19 kvenna - Leikið við Tyrki í dag

Stelpurnar í U19 leika í dag fyrsta leik sinn í milliriðli EM en leikið er í Wales.  Mótherjarnir í dag eru Tyrkir en hinar þjóðirnar í riðlinum eru heimastúlkur og Þjóðverjar.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag og er það þannig skipað:

Landslið

30. mars 2011

U17 karla - Tap gegn Rússum í lokaleiknum

Strákarnir í U17 töpuðu lokaleik sínum í milliriðli EM en leikið var í Ungverjalandi.  Rússar voru mótherjarnir og lauk leiknum 2 - 0 Rússum í vil og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik.  Það voru Rúmenar sem að urðu efstir í riðlinum og tryggðu sér þar með sæti í úrslitakeppninni í sumar.

Landslið

29. mars 2011

U17 landslið kvenna sem leikur í milliriðlum EM í Póllandi

U17 landslið kvenna leikur í milliriðlum EM og fer riðill Íslands fram í Póllandi.  Í riðlinum, ásamt okkar stúlkum og heimamönnum, eru England og Svíþjóð.  Þorlákur Árnason, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið leikmannahóp sinn fyrir mótið.

Landslið

29. mars 2011

Byrjunarlið U17 karla gegn Rússum

Lokaumferð EM-milliriðils U17 karla fer fram í dag og hefjast báðir leikirnir í riðli Íslands kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Drengirnir okkar leika gegn Rússum og hefur Gunnar Guðmundsson, þjálfari liðsins, tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

28. mars 2011

Draumaleikur á Deepdale

Strákarnir okkar í U21 landsliði karla unnu í kvöld góðan 2-1 sigur á Englendingum í vináttulandsleik sem fram fór á Deepdale-leikvanginum.  Íslenska liðið lék vel í leiknum og er þessi sigur auðvitað gott veganesti fyrir liðið, sem leikur í úrslitakeppni EM í Danmörku í sumar.

Landslið

28. mars 2011

U21 karla - Byrjunarliðið tilbúið

Eyjólfur Sverrisson. landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Englendingum í vináttulandsleik í kvöld.  Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og er síðari hálfleikur í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

27. mars 2011

U21 karla - Fjórir leikmenn bætast við hópinn

Fjórir leikmenn bætast við hópinn hjá U21 karla fyrir vináttulandsleikinn gegn Englandi sem fram fer í Preston á morgun, mánudag.  Við hópinn bætast þeir Alfreð Finnbogason, Arnór Smárason, Birkir Bjarnason og Guðmundur Kristjánsson en þeir voru með A landsliðshópnum á Kýpur.  Þá mun markvörðurinn Haraldur Björnsson einnig koma í hópinn að nýju.

Landslið

26. mars 2011

Tveggja marka tap gegn Ungverjum

U17 landslið karla tapaði 0-2 fyrir Ungverjum í milliriðli EM í dag, en riðillinn er einmitt leikinn í Ungverjalandi.  Þetta tap þýðir því miður að drengirnir okkar eiga ekki möguleika á að komast áfram í úrslitakeppnina.  Aðeins efsta liðið fer áfram í keppninni.

Landslið

26. mars 2011

Fyrsta stigið komið í hús

A landslið karla náði fyrsta stigi sínu í höfn í undankeppni EM 2012 með markalausu jafntefli við Kýpur í Nicosia í dag, laugardag.  Heimamenn voru mun meira með boltann í leiknum, en náðu ekki að skapa sér afgerandi færi, ef undan er skilin vítaspyrna sem Stefán Logi Magnússon varði meistaralega.

Landslið

25. mars 2011

Byrjunarlið Íslands gegn Kýpur

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Kýpur í undankeppni EM á morgun, laugardaginn 26. mars.  Leikurinn hefst kl. 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Landslið

25. mars 2011

U21 karla - Hjörtur Logi inn í hópinn

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt Hirti Loga Valgarðssyni inn í hópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Englandi á mánudaginn.  Hinsvegar munu þeir Jósef Kristinn Jósefsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson ekki vera með gegn Englendingum vegna meiðsla.

Landslið

25. mars 2011

U19 kvenna - Breyting á hópnum sem fer til Wales

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum sem leikur í milliriðli EM í Wales.  Anna María Baldursdóttir úr Stjörnunni kemur inn í hópinn í stað Írunnar Aradóttur.

Landslið

25. mars 2011

U17 karla - Leikið gegn Ungverjum

Strákarnir í U17 leika á morgun, laugardaginn 27. mars, annan leik sinn í milliriðli EM en hann er leikinn í Ungverjalandi.  Leikið verður við heimamenn og hefst leikurinn kl. 14:00 og er hægt að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.  Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

25. mars 2011

Markverðir á ferð og flugi

Tveir af þremur markvörðum í A landsliðshópnum eiga við meiðsli að stríða og eru ekki leikfærir fyrir leikinn gegn Kýpur á morgun.  Þess vegna hefur Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, kallað í Harald Björnsson markvörð U21 karla.  Í stað Haraldar hefur Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21, kallað Óskar Pétursson  í U21 hópinn 

Landslið