24. mars 2011
Strákarnir í U21 biðu lægri hlut gegn Úkraínu í vináttulandsleik sem fram fór í kvöld í Kænugarði.  Lokatölur urðu 3 - 2 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 1 - 0.  Aron Jóhannsson og Björn Bergmann Sigurðarson skoruðu mörk Íslands í leiknum.
24. mars 2011
Strákarnir í U17 gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum í milliriðli fyrir EM en riðillinn er leikinn í Ungverjalandi.  Mótherjarnir í fyrsta leiknum voru Rúmenar og lauk leiknum með markalausu jafntefli.  Næsti leikur Íslands verður gegn Ungverjum á laugardaginn.
24. mars 2011
Íslenska karlalandsliðið mun æfa tvisvar í dag en liðið undirbýr sig nú fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni EM.  Liðið æfði í gær og í dag verða tvær æfingar.  Vel fer um hópinn og aðstæður hinar ágætustu þó svo að vel hafi rignt á æfingunni í gær.
24. mars 2011
Strákarnir í U17 hefja í dag leik í milliriðli fyrir EM en leikið er í Ungverjalandi.  Ísland leikur sinn fyrsta leik gegn Rúmenum og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma.  Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.
24. mars 2011
Strákarnir í U21 mæta í kvöld Úkraínu í vináttulandsleik kl. 17:30 og fer leikurinn fram á Valeriy Lobanovskyy vellinum í Kænugarði.  Þetta er fyrri vináttulandsleikur liðsins af tveimur á næstu dögum því Englendingar verða svo mótherjarnir, mánudaginn 28. mars og fer sá leikur fram á Deepdale vellinum í Preston.
22. mars 2011
Þrjú íslensk landslið héldu utan í morgun en þau verða öll í eldlínunni næstu daga.  A landslið karla leikur á Kýpur í undankeppni EM, laugardaginn 26. mars.  Þá leikur U21 karla tvo vináttulandsleiki, gegn Úkraínu 24. mars og gegn Englandi 28. mars.  Loks hélt U17 karla áleiðis til Ungverjalands þar sem það leikur í milliriðli EM. 
22. mars 2011
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum er mætir Kýpur í undankeppni EM á laugardaginn. Ólafur hefur valið Helga Val Daníelsson inn í hópinn í stað Ragnars Sigurðssonar sem á við veikindi að stríða.
21. mars 2011
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem leikur í milliriðli fyrir EM dagana 31. mars - 5. apríl.  Riðillinn verður leikinn í Wales og eru andstæðingarnir, auk heimastúlkna, Tyrkland og Þýskaland.
21. mars 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 19 leikmenn til æfinga um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni en liðið undirbýr sig nú fyrir keppni í milliriðlum EM sem fer fram í Póllandi, dagana 9. - 14. apríl.
21. mars 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á hópnum er leikur tvo vináttulandsleiki gegn Úkraínu og Englandi, 24. og 28. mars.  Eyjólfur hefur valið þá Eið Aron Sigurbjörnsson og Jóhann Laxdal í hópinn og koma þeir í stað Hjörts Loga Valgarðssonar og Skúla Jóns Friðgeirssonar sem eru meiddir.
20. mars 2011
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið Arnór Svein Aðalsteinsson í hópinn sem mætir Kýpur í undankeppni EM 26. mars næstkomandi.  Arnór kemur í stað Grétars Rafns Steinssonar sem á við meiðsli að stríða.
18. mars 2011
Íslenska kvennalandsliðið er í 16. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland fer upp um eitt sæti og deilir 16. sætinu með Suður Kóreu. Það eru Bandaríkin sem eru sem fyrr í efsta sæti styrkleikalistans.
16. mars 2011
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt úrtakshóp sem mun æfa um komandi helgi. Þessar æfingar eru fyrir hóp sem fæddur er árið 1995. Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum.
16. mars 2011
Knattspyrnusambönd Íslands og Eistlands hafa gert með sér samkomulag um að U19 karlalandslið þjóðanna mætist í tveimur vináttulandsleikjum. Leikirnir munu fara fram í Eistlandi, dagana 3. og 5. september.
15. mars 2011
"Mikil tilhlökkun fyrir leikinn gegn Kýpur" sagði Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, í viðtali sem tekið var við hann í dag.  Viðtalið var tekið í tilefni af blaðamannafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum KSÍ þar sem hópurinn fyrir Kýpurleikinn var tilkynntur.
15. mars 2011
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi landsliðshópinn er mætir Kýpur í undankeppni EM. Leikurinn fer fram ytra og fer fram laugardaginn 26. mars næstkomandi.
15. mars 2011
Í dag kl. 13:15 fer fram blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ þar sem Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnir hópinn sem leikur gegn Kýpur í undankeppni EM. Leikurinn fer fram ytra, laugardaginn 26. mars. Einnig verður tilkynntur hópurinn hjá U21 karla sem leikur vináttulandsleiki gegn Úkraínu og Englandi.
15. mars 2011
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn er tekur þátt í milliriðli EM en riðillinn verður leikinn í Ungverjalandi.  Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru: Rúmenía, Ungverjaland og Rússland.