15. mars 2011
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn er mætir Úkraínu í vináttulandsleik ytra þann 24. mars næstkomandi. Leikurinn er fyrri leikurinn af tveimur vináttulandsleikjum hjá U21 karla á næstu dögum.
14. mars 2011
Ísland er í riðli með Noregi í undankeppni fyrir EM 2013 en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í dag.  Ísland var í öðrum styrkleikaflokki og dróst í riðil með Noregi úr efsta styrkleikaflokknum.  Önnur lið í riðlinum eru: Belgía, Ungverjaland, Norður Írland og Búlgaría. Búið er að samþykkja leikdaga í riðlinum.
14. mars 2011
Í dag verður dregið í undankeppni Evrópumóts kvenna og fer drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon. Ísland er að sjálfsögðu í pottinum og er í 2. styrkleikaflokki. Úrslitakeppnin fer fram í Svíþjóð 2013 og verða 38 þjóðir í pottinum sem keppa um 11 sæti í úrslitakeppninni.
9. mars 2011
Karlalandslið Íslands féll um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Ísland er því í 115. sæti listans. Heimsmeistarar Spánar eru sem fyrr í efsta sæti listans og Hollendingar í öðru sæti.
9. mars 2011
Stelpurnar í íslenska landsliðinu báðu í dag lægri hlut gegn stöllum sínum frá Bandaríkjunum þegar leikið var til úrslita á Algarvemótinu. Lokatölur urðu 4 - 2 fyrir efsta liði styrkleikalista FIFA en staðan var jöfn í leikhléi, 2 - 2.
8. mars 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Bandaríkjunum kl. 17:00 á morgun.  Um er að ræða sjálfan úrslitaleikinn á Algarve Cup og er þetta í fyrsta skiptið sem Ísland kemst svo langt á þessu geysisterka móti.   Ein breyting er á byrjunarliðinu frá því í síðasta leik,
8. mars 2011
Landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, hafa valið hópa hjá U17 og U19 karla til æfinga um komandi helgi. Æfingarnar verða í Kórnum og Egilshöllinni en tveir hópar verða á ferðinni hjá U17 karla.
7. mars 2011
Íslenska kvennalandsliðið gerði sér lítið fyrir í dag og lagði það danska í síðasta leik liðsins á Algarve Cup.  Ísland tryggði sér þar með sigur í B riðli og í leiðinni sæti í úrslitaleik mótsins gegn Bandaríkjunum.  Þetta er besti árangur sem Ísland hefur náð til þessa á þessu móti.
6. mars 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Dönum á Algarve á morgun, mánudaginn 7. mars, kl. 15:00.  Sigurður gerir tvær breytingar frá því í sigurleiknum gegn Kína á föstudaginn.
4. mars 2011
Íslensku stelpurnar lögðu þær kínversku í dag í öðrum leik liðsins á Algarve Cup og urðu lokatölur þær sömu og gegn Svíum. 2 -1. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Íslands í leiknum. Síðasti leikur Íslands er gegn Dönum á mánudaginn og dugar Íslendingum jafntefli til þess að komast í úrslitaleikinn gegn Bandaríkjunum.
3. mars 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kínverjum á Algarve.  Þetta er annar leikur liðsins í keppninni en sigur vannst á Svíum í fyrsta leiknum, 2 - 1.  Sigurður gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik.
3. mars 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið Berglindi Björg Þorvaldsdóttur úr ÍBV inn í hópinn sem tekur nú þátt á Algarve Cup. Berglind fyllir skarðið sem Kristín Ýr Bjarnadóttir skilur eftir sig en hún á við meiðsli að stríða.
2. mars 2011
Íslendingar fengu sannkallaða óskabyrjun á Algarve Cup þetta árið en stelpurnar unnu frábæran sigur á Svíum í fyrsta leik sínum á mótinu.  Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir Íslendinga eftir að jafnt hafði verið í leikhléi, 1 - 1.  Það voru Margrét Lára Viðarsdóttir og fyrirliðinn, Katrín Jónsdóttir, sem skoruðu mörk Íslands í leiknum. Danir unnu Kínverja í hinum leik riðilsins í dag, 1 - 0. Þetta er fyrsti sigur A landsliðs kvenna á Svíum en þetta var 10. viðureign þjóðanna.
1. mars 2011
Kvennalandsliðið kom í nótt til Algarve en þar tekur það þátt í hinu geysisterka Algarve Cup.  Fyrsti leikur liðsins er á morgun, miðvikudag, gegn Svíum og hefst leikurinn kl. 15:00.  Aðstæðurnar á Algarve eru frábærar, hótelið glæsilegt í alla staði og æfingavellirnir í mjög góðu standi.
1. mars 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í fyrsta leik Íslands á Algarve Cup. Leikurinn hefst kl. 15:00 á morgun, miðvikudaginn 2. mars, en á sama tíma mætast hinar þjóðirnar í riðlinum, Kína og Danmörk.
28. febrúar 2011
Um komandi helgi verða æfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Egilshöllinni og Kórnum.  Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar og má sjá hópana hér að neðan.
25. febrúar 2011
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum sem tekur þátt á Algarve Cup nú í byrjun mars. Rakel Logadóttir kemur inn í hópinn í stað Guðnýjar Bjarkar Óðinsdóttur sem á við meiðsli að stríða.
24. febrúar 2011
Knattspyrnusamband Íslands hefur gert samning við Prozone um leikgreiningu á landsleikjum Íslands næstu 2 árin. Samningurinn felur í sér að Prozone leikgreinir 60 leiki á ári , næstu tvö árin, sem KSÍ óskar eftir að séu leikgreindir.