21. janúar 2011
Ísland mætti Lettlandi á Ásvöllum í Hafnarfirði í forkeppni EM 2012 í Futsal og það er ekki hægt að segja annað en að íslenska liðið hafi staðið sig með prýði, þrátt fyrir naumt 4-5 tap.  Leikurinn var hnífjafn allan tímann og hörkuspennandi, hraður og skemmtilegur og mikið um baráttu og flotta takta.
21. janúar 2011
Eins og kynnt hefur verið fer þessa dagana fram riðill í forkeppni EM í Futsal að Ásvöllum. Fyrri leik dagsins lauk nú fyrir stundu, en þar mættust Grikkir og Armenar, og lauk hörkuspennandi leik með 2-2 jafntefli. Seinni leikurinn er viðureign Íslands og Lettlands, í beinni á Haukar TV kl. 19:00.
21. janúar 2011
Í kvöld, föstudaginn 21. janúar, fer fram fyrsti landsleikur Íslands í Futsal og verða Lettar mótherjarnir.  Leikurinn er liður í forkeppni EM 2012 en riðill Íslands, B riðill, fer fram á Ásvöllum.  Riðillinn hefst með leik Grikkja og Armena kl. 16:30 en kl. 19:00 mætast Íslendingar og Lettar.  Leikur íslenska liðsins verður í beinni útsendingu á vefsjónvarpi Hauka - Haukar TV.
18. janúar 2011
Um komandi helgi fara fram æfingar hjá U16 og U17 karla og verða æfingarnar í Egilshöllinni og Kórnum.  Landsliðsþjálfararnir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson hafa valið hópa fyrir þessar æfingar en tveir hópar eru valdir fyrir æfingarnar hjá U17 karla.
18. janúar 2011
WIllum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari í Futsal, tilkynnti í dag hópinn sem tekur þátt í forkeppni EM dagana 21. - 24. janúar.  Keppnin verður haldin á Ásvöllum en þetta er í fyrsta skipti sem Ísland sendir landslið til þátttöku í þessari íþrótt.
13. janúar 2011
Knattspyrnusambönd Íslands og Úkraínu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna, skipuð leikmönnum 21 árs og yngri, leiki vináttulandsleik 24. mars næstkomandi. Leikurinn mun fara fram í Kænugarði en leikurinn er liður í undirbúningi liðanna fyrir úrslitakeppni EM sem fer fram í Danmörku 11. – 25. júní.
13. janúar 2011
Willum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari í Futsal, hefur valið hóp til æfinga nú um helgina en æft verður á Ásvöllum.  Alls eru 21 leikmaður í þessum hóp en þetta er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM sem fer fram á Ásvöllum 21. - 24. janúar.
12. janúar 2011
Íslenska karlalandsliðið fellur niður um eitt sæti á styrkleikalista FIFA en nýr listi var gefinn út í morgun. Íslands er í 113. sæti ásamt Wales en Spánverjar eru sem fyrr í toppsæti listans. Litlar breytingar eru á efstu sætum listans.
11. janúar 2011
Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa fyrir æfingar um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöllinni en hóparnir mætast í æfingaleik á sunnudaginn.
10. janúar 2011
Á laugardaginn fór fram æfingaleikur hjá Futsallandsliði Íslands og var leikið á Ásvöllum.  Landsliðshópnum var skipt upp í tvö lið sem öttu kappi og úr varð hörkuleikur.  Fór svo að "Bláir" höfðu betur, skoruðu sjö mörk gegn sex "Hvítra".
7. janúar 2011
Íslenska landsliðið í Futsal undirbýr sig nú af kappi fyrir undankeppni EM sem fram fer hér á landi dagana 21. - 24. janúar.  Á morgun, laugardaginn 8. janúar, fer fram æfingaleikur hjá liðinu þar sem hópnum er skipt upp í tvö lið sem mætast á Ásvöllum kl. 17:15.
6. janúar 2011
Í gær var lýst yfir kjóri á Íþróttamanni ársins fyrir árið 2010 en nafnbótina hlaut handknattleiksmaðurinn Alexander Peterson.  Annar varð Gylfi Þór Sigurðsson en litlaði munaði á tveimur efstu mönnum.  Knattspyrnukonan Hólmfríður Magnúsdóttir var einnig á meðal þeirra 10 efstu sem sérstaklega voru heiðraðir í gær en hún varð í níunda sæti.
5. janúar 2011
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 18 leikmenn á úrtaksæfingu sem fer fram miðvikudaginn 12. janúar næstkomandi. Leikmennirnir koma frá 6 félögum af Norðurlandi en æfingin verður í Boganum á Akureyri.
4. janúar 2011
Fyrstu landsliðsæfingar hjá U17 og U19 karla eru framundan og hafa þjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið leikmenn fyrir þessar æfingar.  Tveir hópar eru í gangi hjá U17 karla.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöllinni.
1. janúar 2011
Fyrsta landsliðsæfing nýs árs fer fram á Ásvöllum, sunnudaginn 2. janúar, en þá verður æfingahópur íslenska Futsallandsliðsins á ferðinni.  Willum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hóp fyrir þessa æfingu.
23. desember 2010
Samtök íþróttafréttamanna hafa tilkynnt hvaða tíu einstaklingar urðu í efstu sætunum í kjörinu á íþróttamanni ársins 2010.  Knattspyrnufólk er á meðal þessara tíu en Gylfi Þór Sigurðsson og Hólmfríður Magnúsdóttir eru á lista þessa frækna íþróttafólks.
21. desember 2010
Willum Þór Þórsson, landsliðsþjálfari í Futsal, hefur valið æfingahóp sem verður við æfingar 28. og 29. desember og fara æfingarnar fram á Ásvöllum. Ísland mun taka þátt í forkeppni Evrópkeppni landsliða í Futsal í janúar á næsta ári en þetta er í fyrsta skiptið sem Ísland sendir landslið til leiks í Futsal. Riðill Íslands verður leikinn á Ásvöllum dagana 21. - 24. janúar.
20. desember 2010
Knattspyrnusamband Íslands framlengdi í dag samning við Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem landsliðsþjálfara A landsliðs kvenna og gildir samningurinn til ársloka 2012. Nýr samningur þess efnis var undirritaður í dag í höfuðstöðvum KSÍ.