2. september 2010
Áfram Ísland stuðningmannaklúbburinn er búinn að skipuleggja upphitun fyrir leikinn Danmörk - Ísland í undankeppni fyrir EM 2012.  Leikurinn verður þriðjudaginn 7. september á Parken og byrjar kl 20:15 að staðartíma.
2. september 2010
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er fer til Búlgaríu til þess að leika í forkeppni fyrir EM 2011. Auk heimastúlkna leikur Ísland þar gegn Ísrael og Úkraínu. Leikirnir fara fram dagana 11. - 18. september.
1. september 2010
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt við tveimur leikmönnum í hópinn fyrir leikinn gegn Tékkum sem fer fram þriðjudaginn 7. september. Þeir Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki koma inn í hópinn.
1. september 2010
Það var létt yfir íslenska landsliðshópnum á æfingu í Keflavík á þriðjudag.  Liðið æfði á Keflavíkurvelli við afar góðar aðstæður og greinileg tilhlökkun í mannskapnum fyrir leikinn við Noreg á föstudag.  Strákarnir vonast eftir sem flestum á leikinn og treysta á öflugan og háværan stuðning.
31. ágúst 2010
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Noregur afhenta fimmtudaginn 2. september frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
31. ágúst 2010
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Tékkum, þriðjudaginn 7. september.  Leikurinn fer fram í Jablonec og hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Þrír nýliðar eru í hópnum að þessu sinni.
31. ágúst 2010
Senn líður að stórleik Íslands og Noregs fer fram á Laugardalsvelli, föstudaginn 3. september kl. 19:00.  Miðasala er í fullum gangi og um að gera fyrir knattspyrnuáhugafólk að tryggja sér miða á þennan fyrsta leik Íslendinga í undankeppni EM 2012.  Afsláttur er veittur af miðaverði ef keypt er í forsölu á netinu en forsölu lýkur fimmtudaginn 2. september.
31. ágúst 2010
Það verður ítalskur dómarakvartett á viðureign Íslands og Noregs á Laugardalsvelli á föstudag.  Dómarinn heitir Luca Banti.  Leikurinn hefst kl. 19:00 og er fyrstu leikur liðanna í undankeppni EM 2012.
31. ágúst 2010
Tilkynnt hefur verið um tvær breytingar á norska landsliðshópnum sem tilkynntur var fyrir fyrstu leiki liðsins í undankeppni EM 2012.  Þeir Per Ciljan Skjeldbred og John Carew eru meiddir og verða ekki með Norðmönnum í leikjunum gegn Íslandi og Portúgal.
30. ágúst 2010
Ingvar Þór Kale, markvörður Breiðabliks, hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Norðmönnum og Dönum í undankeppni EM 2012 og er hann 22. maðurinn í hópnum.  Fyrir eru markverðirnir Gunnleifur Gunnleifsson og Árni Gautur Arason. 
27. ágúst 2010
FIFA og UEFA standa nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 14. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997. Minnt verður á háttvísidagana hér á Íslandi í tengslum við leik A-landsliðs karla gegn Norðmönnum 3. september, sem er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2012.
25. ágúst 2010
Íslensku stelpurnar mæta stöllum sínum frá Eistlandi í lokaleik sínum í undankeppni fyrir HM 2011.  Ljóst er að annað sætið verður hlutskipti íslenska liðsins í riðlinum en stelpurnar engu að síður ákveðnar að ljúka keppni á sigurbraut.  Fylgst verður með leiknum á Facebook síðu KSÍ.
25. ágúst 2010
Þriðjudaginn 7. september leika Íslendingar við Dani í undankeppni EM 2010 á Parken í Kaupmannahöfn.  Hægt er að kaupa miða á þann leik hér á heimasíðunni en til að tryggja miða með kaupum á heimasíðu KSÍ, þarf að ganga frá pöntun í síðasta lagi föstudaginn 27. ágúst. 
25. ágúst 2010
Fyrir úrslitakeppni EM 2012 er fyrst keppt í riðlum, síðan umspili, og loks í 16 liða úrslitakeppni. Gestgjafarnir tveir eiga öruggt sæti í úrslitakeppninni og þurfa ekki að leika í riðlakeppninni. EM 2012 er síðasta keppnin með 16 liðum, því 2016 verður liðum í úrslitakeppninni fjölgað í 24.
25. ágúst 2010
Stelpurnar í íslenska landsliðinu léku í dag lokaleik sinn í undankeppninni fyrir HM 2011 sem fer fram í Þýskalandi.  Íslenska liðið vann öruggan sigur með fimm mörkum gegn engu eftir að hafa leitt með tveimur mörkum í leikhléi.
24. ágúst 2010
Íslensku stelpurnar mæta stöllum sínum frá Eistlandi í lokaleik sínum í undankeppni fyrir HM 2011 á morgun, miðvikudaginn 25. ágúst.  Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið sitt og má sjá það hér að neðan.
23. ágúst 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshópinn sem mætir Noregi á Laugardalsvelli 3. september og Danmörku ytra 7. september.  Ólafur hefur valið 21 leikmann í hópinn fyrir þessa leiki sem eru upphafið af undankeppni fyrir EM 2012.
23. ágúst 2010
Egil Olsen, landsliðsþjálfari Noregs, hefur valið hóp sinn fyrir leiki gegn Íslendingum 3. september og Portúgölum 7. september en leikirnir eru í undankeppni fyrir EM 2012. Leikurinn við Íslendinga fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:00 og er hægt að kaupa miða hér á síðunni.