22. ágúst 2010
Harpa Þorsteinsdóttir fer með íslenska kvennalandsliðinu til Eistlands fyrir lokaleikinn í riðlinum í undankeppni HM 2011, sem fram fer á miðvikudag. Hólmfríður Magnúsdóttir er í leikbanni í leiknum og því kemur Harpa í hennar stað.
21. ágúst 2010
Þrír leikmenn íslenska kvennalandsliðsins náðu áfanga í landsleikjafjölda á árinu.  Sara Björk Gunnarsdóttir og Rakel Hönnudóttir léku sinn 25. A-landsleik og Hólmfríður Magnúsdóttir lék sinn 50. A-landsleik á árinu.  Þær voru allar heiðraðar að loknum leik Íslands og Frakklands.
21. ágúst 2010
Tæplega fimmtíu ungum stúlkum sem sýndu góða ástundun og góðar framfarir í knattþrautum KSÍ í sumar voru veittar viðurkenningar í hálfleik á viðureign Íslands og Frakklands í undankeppni HM 2011. Fyrir leikinn stóðu þær heiðursvörð þegar liðin gegnu inn á völlinn og á meðan þjóðsöngurinn var leikinn.
21. ágúst 2010
Stelpurnar í kvennalandsliðinu gáfu sér góðan tíma til að spjalla við unga aðdáendur eftir leikinn við Frakka í laugardalnum í dag. Eiginhandaráritanir voru vinsælar og var skrifað á allt sem mögulegt var að skrifa á.
21. ágúst 2010
Íslensku stelpurnar biðu lægri hlut gegn Frökkum á Laugardalsvelli í dag.  Lokatölur urðu 0 - 1 eftir að markalaust var í leikhléi.  Þar með eru möguleikar íslenska liðsins úr sögunni um sæti á HM í Þýskalandi en franska liðið hefur tryggt sér sæti í umspili um að komast þangað.
20. ágúst 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt hvernig byrjunarliðið verður gegn Frökkum í hinum mikilvæga leik á Laugardalsvellinum á laugardag kl. 16:00. Katrín Jónsdóttir fyrirliði verður með í leiknum.
20. ágúst 2010
Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 kvenna og Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 kvenna hafa tilkynnt undirbúningshópa sína fyrir undankeppni EM 2011. Bæði liðin leika í riðlakeppni í Búlgaríu í september.
19. ágúst 2010
KSÍ stendur fyrir fjölskylduhátíð fyrir kvennalandsleik Íslands og Frakklands á Laugardalsvelli á laugardag. Hátíðin hefst kl. 14:30 og því er um að gera að mæta snemma og gera sér glaðan dag, ná góðri upphitun fyrir leikinn, fá sér eins og eina pulsu, spreyta sig á boltaþrautum og hoppa og skoppa í þar til gerðum kastölum. Leikurinn sjálfur hefst kl. 16:00.
19. ágúst 2010
Eins og kunnugt er mætast Ísland og Frakkland í undankeppni HM 2011 kvenna á Laugardalsvelli á laugardag.  Stelpurnar okkar komu saman til æfinga á miðvikudag og var æft á Hofstaðavelli í Garðabæ.  Mikil eftirvænting er í hópnum og leikmenn hlakka til verkefnisins.
19. ágúst 2010
Handhafar A-passa frá KSÍ þurfa ekki að sækja miða á landsleik Íslands og Frakklands á laugardag, heldur dugar að sýna passann við innganginn á völlinn. Frjálst sætaval er á leiknum, sem hefst kl. 16:00, en kl. 14:30 hefst fjölskylduhátíð með boltaþrautum, hoppukastala, pulsuveislu og fleiru.
18. ágúst 2010
Fyrsti útileikur Íslands í undankeppni EM 2010 er gegn frændum vorum Dönum. Leikið verður á hinum fræga Parken í Kaupmannahöfn og fer leikurinn fram þriðjudaginn 7. september. Hægt er að kaupa miða hér á þennan leik.
17. ágúst 2010
Ísland og Frakkland mætast á laugardalsvelli á laugardag kl. 16:00 í toppslag riðilsins í undankeppni HM 2011.  Þýskt dómaratríó verður á leiknum, Hvít-rússneskur eftirlitsmaður og tékkneskur dómaraeftirlitsmaður.  Fjórði dómarinn er hins vegar íslenskur.
16. ágúst 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna kynnti í hádeginu í dag 22 manna landsliðshóp fyrir leikinn við Frakka í undankeppni HM 2011, en Ísland og Frakkland mætast á Laugardalsvelli á laugardag kl. 16:00.
13. ágúst 2010
Íslenska kvennalandsliðið er í 16. sæti á styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag. Listinn er gefinn út á þriggja mánaða fresti og hefur Ísland hækkað um tvö sæti frá því listinn var síðast gefinn út.
13. ágúst 2010
Úrtökumót drengja 2010 fer fram að Laugarvatni dagana 20.-22. ágúst næstkomandi.  Á sjöunda tug drengja hafa verið boðaðir á úrtökumótið, allir fæddir 1995, og koma þeir frá félögum víðs vegar af landinu.
11. ágúst 2010
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Liechtenstein, en liðin mætast í vináttuleik á Laugardalvellinum í kvöld og hefst hann kl. 19:30.  Uppstillingin er nokkuð hefðbundin, 4-5-1 / 4-3-3.
11. ágúst 2010
Ísland situr áfram í 79. sæti á lítið breyttum styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið, sem gefinn var út í dag. Mjög lítið er um breytinga rá listanum, enda afar fáir leikir sem fara fram í mánuðinum eftir úrslitakeppni HM.
11. ágúst 2010
SportTV.is hefur náð samkomulagi við Sport Five og Stöð 2 Sport um að streyma útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar frá landsleik Íslands og Liechtenstein, sem hefst klukkan 19:30 í kvöld, út fyrir landssteinana.