3. ágúst 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag þá 18 leikmenn sem mæta Liechtenstein í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 11. ágúst kl. 19:30. Miðasala á leikinn opnaði í dag en sem fyrr fer salan fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
3. ágúst 2010
Íslensku stelpurnar mæta þeim frönsku í undankeppni fyrir HM 2011 en leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum, laugardaginn 21. ágúst kl. 16:00. Þetta er síðasti heimaleikur Íslands í undankeppninni og sá mikilvægasti til þessa því góður sigur fleytir íslenska liðinu í efsta sæti riðilsins. Miðasala á þennan leik var opnuð í dag
3. ágúst 2010
Strákarnir í U17 hefja leik í dag á Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi. Fyrstu mótherjar Íslendinga verða Danir og hefst leikurinn kl. 15:30 að íslenskum tíma. Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í leiknum í dag.
29. júlí 2010
Hans-Peter Zaugg, landsliðsþjálfari Liechtenstein, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn er mætir Íslendingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, 11. ágúst næstkomandi. Þetta er síðasti undirbúningsleikur íslenska liðsins áður en undankeppni EM 2012 en þar hefja Íslendingar leik gegn Noregi.
27. júlí 2010
Egil Olsen, landsliðsþjálfari Noregs, hefur tilkynnt leikmannahópinn er mætir Frökkum í vináttulandsleik, miðvikudaginn 11. ágúst í Noregi.  Norðmenn eru sem kunnugt er, fyrstu mótherjar okkar Íslendinga í undankeppni fyrir EM 2012.  Íslendingar mæta Liechtenstein í vináttulandsleik á Laugardalsvelli sama dag.
26. júlí 2010
Bæði U17 og U19 landslið kvenna unnu sína leiki gegn Færeyjum 7:0 í dag í Fuglafirði í Færeyjum. Um vináttuleiki er að ræða sem eru undirbúningur undir leiki liðanna í Evrópukeppni sem fram fer í Búlgaríu í september.
26. júlí 2010
Íslensku unglingalandsliðin í knattspyrnu kvenna unnu í dag góða sigra á stöllum sínum í Færeyjum. U17 sigraði 8:0 og U19 vann 6:0 í vináttuleikjum í Klaksvík.
24. júlí 2010
Stúlkurnar í unglingalandsliðum Íslands leika í dag vináttuleiki gegn Færeyjum í Klaksvík í Færeyjum. Eru þetta landslið U17 og U19 kvenna en leikið verður við stöllur þeirrar frá Færeyjum í dag og á morgun.
24. júlí 2010
Strákarnir í U18 biðu lægri hlut gegn jafnöldrum sínum frá Noregi í dag en leikurinn var síðasti leikur liðanna í Svíþjóðarmótinu.  Lokatölur urðu 2 - 0 Norðmönnum í vil eftir að þeir höfðu leitt með einu marki í leikhléi.
23. júlí 2010
Strákarnir í U18 báðu lægri hlut gegn Svíum i gær en leikurinn var liður í Svíþjóðarmótinu sem fram fer þessa dagana. Lokatölur urðu 4 - 1 fyrir heimamenn eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi. Á laugardaginn leika strákarnir lokaleik sinn í mótinu þegar þeir mæta Norðmönnum.
22. júlí 2010
Strákarnir í U18 karla mæta Svíum í dag í öðrum leik sínum á Svíþjóðarmótinu sem fram fer þessa dagana. Íslendingar lögðu Wales í fyrsta leiknum, 2 -1 en Svíar gerðu markalaust jafntefli gegn Norðmönnum. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn í dag sem hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma.
21. júlí 2010
Fyrsti útileikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012 verður gegn Dönum, þriðjudaginn 7. september, á Parken.  Það er jafnan einstök stemning sem fylgir landsleikjum á Parken og margir Íslendingar sem hafa áhuga á að sjá okkar stráka eiga við Dani.
20. júlí 2010
Strákarnir í U18 hófu í dag leik á Svíþjóðarmótinu og var leikið gegn Walesverjum. Íslensku strákarnir fóru með sigur af hólmi, 2 - 1. Staðan í leikhléi var 1 - 1 en það voru Walesverjar sem komust yfir á 35. mínútu.
20. júlí 2010
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn er leikur á Norðurlandamótinu sem fram fer í Finnlandi dagana 1. - 9. ágúst. Liðið er í riðli með Dönum, Finnum og Englendingum en einnig verður leikið um sæti á mótinu.
20. júlí 2010
Strákarnir í U18 landsliðinu hefja í dag leik á Svíþjóðarmótinu þegar þeir mæta Wales og hefst leikurinn kl. 14:30 að íslenskum tíma.  Leikið er á Laholm vellinum í Halland en auk þessara þjóða leika einnig Svíþjóð og Noregur og hefst þeirra leikur kl. 17:00.
19. júlí 2010
Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfarar U17 og U19 kvenna, hafa valið hópa sína fyrir vináttulandsleiki gegn Færeyjum sem fara fram 24. og 25. júlí næstkomandi.  Leikið verður ytra og fara leikirnir fram í Klaksvík og Fuglafirði.
14. júlí 2010
Íslenska karlalandsliðið fer upp um 11 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag.  Ísland er nú í 79. sæti listans.  Nýkrýndir heimsmeistarar Spánverja eru í efsta sætinu og mótherjar þeirra í úrslitaleik HM, Hollendingar, eru í öðru sæti.
13. júlí 2010
Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur valið hóp til að leika á Svíþjóðarmótinu sem leikið verður dagana 20. - 24. júlí.  Mótherjar Íslands í þessu móti eru, auk heimamanna, Noregur og Wales.