Verslun
Leit
SÍA

13. júlí 2010

Miðasala hafin á Ísland - Noregur í undankeppni EM 2012

Í dag hófst miðasala á leik Íslands og Noregs en þetta er fyrsti leikur Íslands í undankeppni fyrir EM 2012.  Leikurinn fer fram föstudaginn 3. september á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:00.  Miðasala fer fram, sem fyrr, í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

11. júlí 2010

Tap fyrir Noregi og 4. sætið staðreynd

Íslensku stelpurnar í U17 ára landsliðinu töpuðu í dag naumlega fyrir Noregi 2:1 í Norðurlandamótinu í knattspyrnu og enduðu því í 4. sæti mótsins. Noregur varð með sigrinum Norðurlandsmeistari þar sem tvö gestalið kepptu um sigurinn en þar bar Bandaríkin sigurorð af Þjóðverjum 2:0.

Landslið

10. júlí 2010

NM U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Noregi

Þorlákur Árnason, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands, sem mætir Noregi í leik um þriðja sætið á  Opna Norðurlandamótinu í dag.  Mótið fer fram í Danmörku og hefst leikurinn kl. 12:30 að íslenskum tíma.

Landslið

8. júlí 2010

Verðskuldaður sigur íslensku stelpnanna á Svíum

Íslenska unglingalandsliðið, U17 vann í kvöld verðskuldaðan 3:2 sigur á Svíum í síðasta leik liðanna í riðlinum á Opna Norðurlandamótinu sem haldið er í Danmörku. Ísland spilar því um þriðja sætið á mótinu gegn Noregi á laugardag og geta með sigri orðið Norðurlandameistarar þar sem USA og Þýskaland leika úrslitaleikinn, en þær þjóðir eru báðar gestaþjóðir á mótinu.

Landslið

8. júlí 2010

NM U17 kvenna - Sigur á Svíum og leikið um 3. sæti

Stelpurnar í U17 lögðu Svía að velli í dag í lokaleik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins sem fram fer í Danmörku.  Lokatölur urðu 3 -2 og leiddu íslensku stelpurnar í leikhléi, 2 - 0.  Þær Guðmunda Brynja Ólafsdóttir og Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoruðu fyrir íslenska liðið í fyrri hálfleik og í þeim síðari bætti Hildur Antonsdóttir marki við

Landslið

8. júlí 2010

NM U17 kvenna - Byrjunarlið Íslands gegn Svíum

Þorlákur Árnason, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands, sem mætir Svíum í Opna Norðurlandamótinu í dag.  Mótið fer fram í Danmörku og hefst leikurinn kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Landslið

6. júlí 2010

Naumt tap gegn Þjóðverjum á NM U17 kvenna

U17 ára lið Íslands í knattspyrnu kvenna tapaði í dag naumlega fyrir Þjóðverjum 1:0 á Norðurlandamótinu í knattspyrnu sem haldið er í Danmörku. Íslensku stelpurnar geta þrátt fyrir það verið stoltar af frammistöðu sinni í leiknum en þær sýndu aga, baráttu og sterka liðsheild.

Landslið

6. júlí 2010

Byrjunarlið Íslands U17 kvenna gegn Þjóðverjum

Þorlákur Árnason, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands, sem mætir Þjóðverjum í Opna Norðurlandamótinu í dag.  Mótið fer fram í Danmörku og hefst leikurinn kl. 17:30 að íslenskum tíma.

Landslið

6. júlí 2010

Viðtal við Þorlák Árnason þjálfara U17 kvenna

U17 landslið kvenna leikur um þessar mundir í Norðurlandamótinu, sem fram fer í Danmörku að þessu sinni.  Stelpurnar unnu góðan 1-0 sigur á Finnum í fyrsta leik og Íris Eysteinsdóttir tók viðtal við þjálfarann, Þorlák Árnason, að leik loknum.

Landslið

5. júlí 2010

NM U17 kvenna - Karakterssigur á Finnum

Stelpurnar í U17 unnu sigur í sínum fyrsta leik á Norðurlandamótinu sem hófst í dag í Svíþjóð.  Lokatölur urðu 1-0 íslensku stelpunum í vil og leiddu þær eftir fyrri hálfleikinn.  Á morgun verður leikið við Þýskaland.  Það var Íris Björk Eysteinsdóttir sem sendi okkur eftirfarandi umsögn um leikinn.

Landslið

5. júlí 2010

NM U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Finnum tilbúið

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Finnum í fyrsta leik liðsins á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku.  Leikurinn í dag hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

5. júlí 2010

U17 kvenna leikur gegn Finnum í dag

Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað stúlkum 16 ára og yngri kom til Danmerkur í gær þar sem það tekur þátt í Norðurlandamóti en mótið er eitt það sterkasta í heiminum í þessum aldursflokki. Um 25 gráðu hiti var á fyrstu æfingu liðsins sem æfði í gær.

Landslið

22. júní 2010

Króatar lagðir í Laugardalnum - Frakkar framundan

Ísland vann góðan sigur á Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld 3 - 0 eftir að staðan hafði verið 2 -0 í hálfleik.  Íslenska liðið er nú jafnt Frökkum að stigum en Frakkar eiga leik til góða.  Næsti leikur liðsins er einmitt gegn Frökkum hér á Laugardalsvelli, laugardaginn 21. ágúst.  Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir lék sinn 100. landsleik og hélt upp á áfangann með því að skora þriðja og síðasta mark leiksins.

Landslið

21. júní 2010

Byrjunarlið Íslands gegn Króatíu - 100 leikir hjá fyrirliðanum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Króatíu í undankeppni HM.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 22. júní og hefst kl. 20:00.  Katrín Jónsdóttir fyrirliði er sem fyrr í byrjunarliðinu og leikur sinn hundraðasta landsleik.

Landslið

21. júní 2010

U17 karla - 33 leikmenn á úrtaksæfingum um helgina

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt úrtakshóp sem verður við æfingar um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ og hefur Gunnar valið 33 leikmenn til þessara æfinga.

Landslið

21. júní 2010

Hundraðasti landsleikur Katrínar Jónsdóttur

Katrín Jónsdóttir  landsliðsfyrirliði, leikur sinn 100. landsleik gegn Króatíu þegar þjóðirnar mætast í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.  Katrín er leikjahæst allra landsliðskvenna frá upphafi og er annar íslenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem rýfur 100 leikja múrinn en Rúnar Kristinsson lék 104 landsleiki.

Landslið

21. júní 2010

Hópurinn hjá U16 kvenna - Norðurlandamótið í júlí

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 kvenna, hefur valið hóp sinn er tekur þátt á Norðurlandamótinu í Danmörku 5. - 10. júlí næstkomandi.  Hópinn skipa 18 leikmenn og koma þeir frá 12 félögum.  Ísland er í riðli með Finnlandi, Þýskalandi og Svíþjóð

Landslið

19. júní 2010

Ísland - Króatía á þriðjudag kl. 20:00

Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu halda áfram sókn sinni að sæti í úrslitakeppni HM 2011, sem fram fer í Þýskalandi.  Á þriðjudag kl. 20:00 er mikilvægur heimaleikur á leiðinni að þeim áfanga - leikur gegn Króatíu á Laugardalsvellinum sem hefst kl. 20:00.

Landslið