19. júní 2010
A-landslið kvenna tók í dag skref í átt að úrslitaleik riðilsins í undankeppni HM 2011 með átakalitlum 2-0 sigri á Norður-Írum á Laugardalsvellinum, að viðstöddum 1187 áhorfendum.  Úrslitaleikurinn sem um ræðir er heimaleikur gegn Frökkum í ágúst.  Næsti leikur og þar með næsta skref er heimaleikur gegn Króötum á þriðjudag.
18. júní 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Norður-Írlandi, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 16:00 á laugardag. Leikurinn er sá fyrri í gríðarlega mikilvægri tveggja leikja hrinu og stelpurnar okkar ætla sér sigur.
16. júní 2010
Rétt er að taka það fram að handhafar A skírteina þurfa ekki að sækja miða á skrifstofu KSÍ fyrir leik Íslands og Norður Írlands, heldur er nóg að sýna skírteinið við inngang Laugardalsvallar. Það sama mun verða upp á teningnum fyrir leik Íslands og Króatíu sem fer fram þriðjudaginn 22. júní.
14. júní 2010
Norður Írar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn er mætir Íslendingum á Laugardalsvelli.  Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2011 og fer fram laugardaginn 19. júní kl. 16:00.  Í 18 manna hópi Norður Íra eru tveir leikmenn sem leika með Grindavík sem og tveir aðrir sem leikið hafa með íslenskum félagsliðum
14. júní 2010
Í dag hófst miðasala á leik Íslands og Norður Írlands í undankeppni fyrir HM 2011kvenna.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 19. júní og hefst kl. 16:00.  Miðaverði er stillt í hóf, 1.000 krónur kostar fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.
11. júní 2010
EIns og flestum er kunnugt þá hefst heimsmeistarakeppnin í Suður Afríku í dag. Opnunarleikurinn verður á milli gestgjafanna í Suður Afríku og Mexíkó. Báðar þessar þjóðir hafa verið mótherjar Íslands á síðustu mánuðum.
10. júní 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag á blaðamannafundi þá 22 leikmenn sem hann velur fyrir leikina gegn Norður Írlandi og Króatíu.  Leikirnir verða báðir á Laugardalsvelli, Norður Írar verða mótherjarnir laugardaginn 19. júní og Króatar þriðjudaginn 22. júní.
31. maí 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, brá sér til Svíþjóðar og fylgdist með sannkölluðum Íslendingaslag í "Damallsvenskan" en svo kallast efsta deild kvenna í Svíþjóð. Þetta var leikur Kristianstads og Örebro og lauk leiknum sem sigri heimaliðsins, 3 - 1.
31. maí 2010
Íslenska kvennalandsliðið er í 18. sæti á styrkleikalista FIFA og er í sama sæti frá því að síðasti listi var gefinn út. Litlar breytingar eru á listanum en íslenska liðið bætir töluvert af stigum og er sú Evrópuþjóð á topp 20 sem bætir flestum stigum við sig.
29. maí 2010
A landslið karla vann í dag, laugardag, 4-0 sigur á liði Andorra á Laugardalsvellinum að viðstöddum rúmlega 2.500 áhorfendum. Sigurinn var nokkuð öruggur eins og tölurnar gefa til kynna, en leikmenn íslenska liðsins þurftu að sýna mikla þolinmæði gegn varnarmúr gestanna.
29. maí 2010
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti leikmönnum sínum byrjunarliðið í vináttulandsleiknum gegn Andorra í dag á fundi að loknum morgunverði.  Ólafur stillir upp í nokkuð hefðbundið 4-3-3 leikkerfi.
28. maí 2010
Lokaæfing íslenska landsliðsins fyrir leikinn við Andorra fór fram á æfingasvæði Fram seinnipartinn í dag, föstudag.  Lið Andorra æfði á Laugardalsvellinum á sama tíma. 
28. maí 2010
"Það er nú ekki oft sem við getum sagt að við eigum að vinna einhverjar þjóðir og auðvitað er það aldrei þannig. Við þurfum alltaf að hafa fyrir hlutunum og menn þurfa að fara í öll verkefni af fullri alvöru." - Óli Jóh.
28. maí 2010
Landsliðsmenn gera sér ýmislegt til dundurs milli æfinga.  Stundum þurfa menn að drepa tímann, stundum þurfa menn á meðferð sjúkraþjálfara og stundum þurfa menn að hvíla sig.  Og jú, ekki má gleyma öllum þessum matartímum, íþróttamenn verða auðvitað að nærast til að halda kröftum.
28. maí 2010
Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að bjóða bændum á gossvæðinu á vináttulandsleik Íslands og Andorra sem fer fram á Laugardalsvelli á morgun laugardaginn 29. maí kl. 16:00.
28. maí 2010
Aron Einar Gunnarsson meiddist á æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli á fimmtudag og getur ekki tekið þátt í vináttulandsleiknum gegn Andorra á Laugardalsvelli á laugardag. Aron lenti í samstuði við annan leikmann og meiddist á fæti.
27. maí 2010
A-landslið karla æfði á Laugardalsvellinum síðdegis í dag, fimmtudag, og var æfingin opin fjölmiðlum til að taka viðtöl og myndir. Nýliðarnir Birkir Bjarnason og Gylfi Sigurðsson voru vinsælir í viðtöl. Aðstæður á Laugardalsvelli voru eins og best verður á kosið.
27. maí 2010
Kristján Örn Sigurðsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir vináttulandsleikinn gegn Andorra á Laugardalsvelli á laugardag.  Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur valið Harald Frey Guðmundsson úr Keflavík í hópinn í stað Kristjáns.