27. maí 2010
Knattspyrnulandslið Andorra lék sinn fyrsta opinbera leik árið 1996.  Liðið tók fyrst þátt í undankeppni stórmóts fyrir EM 2000 og var þá með Íslandi í riðli.  Andorra hefur aðeins unnið þrjá leiki á þessum tíma, gegn Hvíta-Rússlandi, Albaníu og Makedóníu.
27. maí 2010
A landslið karla æfði á Fylkisvelli í Árbænum í morgun við fínar aðstæður. Eins og fyrr hefur komið fram eru 10 leikmenn á U21 aldri í hópnum og því er mikill munur á meðalaldri yngra og eldra liðsins þegar skipt er í lið.
27. maí 2010
Ísland og Andorra mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á laugardag.  Þessar þjóðir hafa mæst þrisvar sinnum áður í A-landsliðum karla og hefur Ísland unnið alla leikina.  Samanlögð markatala í leikjunum þremur er 8-0 Íslandi í vil.
27. maí 2010
A-landslið karla æfði á KR-vellinum í gær.  Góð stemmning er í hópnum og allir leikmenn klárir í slaginn gegn Andorra á laugardag.  Lyfjaeftirlitið mætti á æfinguna eins og oft tíðkast og voru fjórir leikmenn kallaðir í lyfjapróf.
26. maí 2010
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Andorra afhenta fimmtudaginn 27. maí frá kl. 12:00 - 16:00 og föstudaginn 28. maí frá 09:00 - 12:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
26. maí 2010
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Andorra sem fram fer á Laugardalsvelli 29. maí næstkomandi kl. 16:00. KSÍ vill hvetja fólk til að nýta tækifærið, koma á Laugardalsvöll og upplifa stemmninguna.
26. maí 2010
Íslenska karlalandsliðið situr í 90. sæti nýútgefins styrkleikalista FIFA. Þetta er hækkun um eitt sæti frá síðasta mánuði og hefur liðið því hækkað um fjögur sæti síðan í janúar á þessu ári. Næstu mótherjar Íslands, Andorra, eru áfram í 201. sæti.
25. maí 2010
Karlalandslið Andorra náði sínum besta árangri á styrkleikalista FIFA árið 2005, þegar liðið settist í 125. sæti listans.  Síðan þá hefur leiðin legið niður á við og frá síðasta ári hefur Andorra verið rétt neðan við sæti 200 á listanum og er nú í sæti 201.
25. maí 2010
Koldo (Jesus Luis Alvarez de Eulate) er þjálfari karlalandsliðs Andorra, en hann tók við stórn liðsins fljótlega eftir að hann hætti sme leikmaður liðsins á síðasta ári.  Koldo lék alls 79 sinnum fyrir landslið Andorra og var valinn "Gullni leikmaður" Andorra á 50 ára afmæli UEFA.
21. maí 2010
Landsliðshópur Andorra hefur verið tilkynntur fyrir tvo vináttulandsleiki um mánaðamótin maí/júní.  Alls hafa 26 leikmenn verið valdir í hópinn fyrir leikina tvo - gegn Íslandi á Laugardalsvelli 29. maí og gegn Albaníu í Tirana 2. júní.
19. maí 2010
Í dag fór fram blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ þar sem landsliðshópurinn sem mætir Andorra var tilkynntur sem og undirritaður var samstarfssamningur Borgun og KSÍ.  Sýnt var beint frá blaðamannafundinum hér á síðunni í samstarfi við SportTV og hér að ofan má sjá upptöku frá fundinum.
19. maí 2010
Knattspyrnusamband Íslands og Borgun undirrituðu í dag samkomulag um áframhaldandi samstarf til næstu fjögurra ára (2010-2013).  Í samningnum felst stuðningur Borgunar við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands af báðum kynjum.
19. maí 2010
Á blaðamannafundi í dag í höfuðstöðvum KSÍ var tilkynntur landsliðshópur Íslands gegn Andorra.  Af því tilefni hitti heimasíðan Ólaf Jóhannesson, landsliðsþjálfara og ræddi við hann um hópinn og leikinn framundan.
19. maí 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshóp sinn er mætir Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí næstkomandi.  Tveir nýliðar eru í landsliðshópnum og í tuttugu manna landsliðshóp eru tíu leikmenn sem ennþá eru gjaldgengir U21 landsliðið.
18. maí 2010
Í dag hófst miðasala á vináttulandsleik Íslands og Andorra sem fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí kl. 16:00. Sem fyrr fer miðasala fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is. Miðaverði er stillt í hóf en miðar kosta í forsölu 2.000 og 1.000 krónur. Börn 16 ára og yngri fá miða með 50% afslætti.
18. maí 2010
Miðvikudaginn 19. maí mun Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynna landsliðshóp sinn er mætir Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí kl. 16:00.  Haldinn verður blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ kl. 13:00 þar sem hópurinn verður tilkynntur.  Sýnt verður beint frá fundinum hér á síðunni
28. apríl 2010
Karlalandslið Íslands fellur niður um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er nú í 91. sæti en það eru Brasilíumenn sem steypa Spánverjum úr efsta sæti listans. Mótherjar Íslands í riðlakeppni EM 2012, Portúgal, eru svo í þriðja sæti listans.
27. apríl 2010
Næstkomandi sunnudag verða úrtaksæfingar í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði hjá U16 og U17 karla. Landsliðsþjálfararnir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson hafa valið 27 leikmenn frá átta félögum á Austurlandi fyrir þessar æfingar.