Verslun
Leit
SÍA

26. apríl 2010

Úrtaksæfingar hjá U16 karla í Boganum um komandi helgi

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 17 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Boganum á Akureyri og eru eingöngu valdir leikmenn frá félagsliðum á Norðurlandi.

Landslið

20. apríl 2010

Vináttulandsleikur við Andorra á Laugardalsvelli 29. maí

Knattspyrnusambönd Íslands og Andorra hafa komist að samkomulagi um að þjóðirnar leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí næstkomandi.  Þetta er í fjórða skiptið sem karlalandslið þjóðanna en Íslendingar hafa sigrað Andorra í leikjunum þremur.

Landslið

1. apríl 2010

U19 stelpurnar töpuðu fyrir Tékklandi

Lokaumferð milliriðils U19 kvenna fór fram í dag.  Stelpurnar okkar í U19 töpuðu 1-2 fyrir Tékklandi og hafna því í neðsta sæti riðilsins.  Hið sorglega er að ef Ísland hefði unnið leikinn hefði liðið tryggt sér sæti í úrslitakeppni EM annað árið í röð.

Landslið

1. apríl 2010

Aprílgabbið 2010:  Dregið aftur í töfluröð í undankeppni EM 2012

Í gær barst sú tilkynning frá UEFA að mistök hafi átt sér stað þegar dregið var í töfluröð fyrir riðla í undankeppni EM 2012.  Dregið var í töfluröð 25. mars og átti Ísland að leika fyrsta leikinn í undankeppninni 3. september, gegn Norðmönnum á Laugardalsvellinum.

Landslið

31. mars 2010

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Tékkum

Stelpurnar í U19 kvenna leika lokaleik sinn í milliriðli fyrir EM en leikið er í Rússlandi.  Mótherjarnir eru Tékkar og hefst leikurinn kl. 11:00 að íslenskum tíma.  Á sama tíma leika Spánn og Rússland.

Landslið

31. mars 2010

Þriggja marka sigur á Króötum

Íslenska kvennalandsliðið bar í dag sigurorð af Króötum í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikið var í Króatíu og urðu lokatölur 3 - 0 fyrir Íslendinga eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi.  Þær Katrín Jónsdóttir, Rakel Logadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk Íslendinga.

Landslið

31. mars 2010

Ísland upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA

Íslenska karlalandsliðið fór upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun.  Ísland er í 90. sæti listans en Spánverjar eru sem fyrr á toppnum og Brasilía kemur skammt á eftir.  Mótherjar Íslendinga í undankeppni EM 2012, Portúgal, er í fjórða sæti listans.

Landslið

30. mars 2010

U17 karla - Opna Norðurlandamótið í Finnlandi í ágúst

Leikjaniðurröðun er tilbúin fyrir Opna Norðurlandamót U17 karla en leikið verður í Finnlandi dagana 3. - 8. ágúst.  Íslendingar leika í A riðli með Finnum Dönum og Englendingum.  Í hinum riðlinum leika Svíar, Skotar, Norðmenn og Færeyingar.

Landslið

30. mars 2010

Byrjunarliðið er mætir Króatíu kl. 13:30

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Króatíu í undankeppni HM en leikið er í Króatíu.  Leikurinn hefst kl. 13:30 að íslenskum tíma og gerir Sigurður Ragnar eina breytingu frá byrjunarliðinu sem bar sigur af Serbíu síðastliðinn laugardag.  Rakel Hönnudóttir kemur inn í liðið í stað Dóru Maríu Lárusdóttur.

Landslið

29. mars 2010

U19 kvenna - Naumt tap gegn Rússum

Stelpurnar í U19 töpuðu naumlega gegn Rússum í dag en þetta var annar leikur liðsins í milliriðli fyrir EM.  Rússar komust yfir á 37. mínútu og var það eina mark leiksins.  Fyrr í dag unnu Spánverjar Tékka með fimm mörkum gegn engu.

Landslið

29. mars 2010

U19 kvenna - Leikið við Rússa í dag

Stelpurnar í U19 mæta í dag Rússum í milliriðli fyrir EM en riðillinn er leikinn í Rússlandi.  Þetta er annar leikur íslenska liðsins en sigur vannst á Spánverjum í fyrsta leik 3 - 2.  Rússar höfðu líka sigur í sínum fyrsta leik, lögðu Tékka 6 - 0.

Landslið

28. mars 2010

Sætur sigur á Serbíu

Íslenska kvennalandsliðið vann ákaflega sætan sigur á Serbíu í undankeppni HM 2011 en leikið var í Banatski Dvor.  Lokatölur urðu 2 - 0 Íslandi í vil eftir að markalaust hafði verið í hálfleik.  Það var Hólmfríður Magnúsdóttir sem skoraði bæði mörk Íslands.

Landslið

27. mars 2010

U19 kvenna - Baráttusigur í fyrsta leik

Stelpurnar í U19 unnu í dag baráttusigur á stöllum sínum frá Spáni en leikurinn var fyrsti leikur liðsins í milliriðli fyrir EM.  Íslensku stelpurnar höfðu sigur, 3-2 eftir að hafa verið undir í hálfleik, 1-2.  Næsti leikur Íslands er á mánudaginn þegar leikið verður við heimastúlkur í Rússlandi.   

Landslið

26. mars 2010

A kvenna - Byrjunarliðið gegn Serbum tilbúið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Serbum á morgun en leikið verður í Banatski Dvor.  Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2011 og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma.

Landslið

26. mars 2010

U19 kvenna mætir Spánverjum í milliriðli EM

Stelpurnar í U19 landsliðinu hefja leik í fyrramálið, laugardaginn 28. mars, í milliriðli fyrir EM.  Leikið er í Rússlandi en fyrstu mótherjar íslenska liðsins verða Spánverjar en hinn leikurinn í riðlinum verður á milli Rússa og Tékka.

Landslið

25. mars 2010

Nýr myndavefur KSÍ

Myndavefur KSÍ hefur farið í gegnum miklar breytingar að undanförnu og hefur nýr myndavefur nú verið settur í loftið.  Nýi myndavefurinn veitir knattspyrnuháhugafólki auðveldan aðgang að myndasafni KSÍ, sem telur tugþúsundir mynda frá ýmsum skeiðum íslenskrar knattspyrnusögu.

Landslið

25. mars 2010

Leikdagar Íslands í undakeppni EM 2012 tilbúnir

Í dag var dregið um leikdaga í riðli Íslands í undankeppni EM 2012 en dregið var á fundi framkvæmdastjórnar UEFA sem fram fer í Tel Aviv.  Íslendingar byrja leik í keppninni með því að taka á móti Norðmönnum á heimavelli, 3. september næstkomandi.

Landslið

25. mars 2010

Markalaust jafntefli gegn Mexíkó í Charlotte

Ísland og Mexíkó gerðu markalaust jafntefli í vináttulandsleik sem fór fram í nótt en leikið var á Bank of America vellinum í Charlotte.  Hið unga íslenska lið gaf Mexíkóum ekkert eftir og gáfu fá færi á sér.  Stemningin á vellinum var eins og best verður á kosið, 63.227 manns mættu á völlinn og voru vel með á nótunum.

Landslið