15. mars 2010
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út fyrir helgi, er íslenska kvennalandsliðið í 18. sæti og stendur í stað á listanum. Það eru Bandaríkin sem halda í toppsætið en liðið sigraði á Algarve Cup fyrr í þessum mánuði, lögðu þar Þjóðverja í úrslitaleik en Þýskaland er einmitt í öðru sæti listans.
12. mars 2010
Í dag var endurnýjaður samstafssamningur á milli Knattspyrnusambands Íslands og Icelandair Hotels.  Samningurinn felur í sér að öll landslið Íslands í knattspyrnu gista á hótelum Icelandair Hotels.
10. mars 2010
Brian Kerr, landsliðsþjálfari Færeyja, hefur valið landsliðshóp sinn er mætir Íslendingum í vináttulandsleik. Leikurinn fer fram í Kórnum, sunnudaginn 21. mars og hefst kl. 12:00.
9. mars 2010
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna, hefur valið hópa fyrir úrtaksæfingar um komandi helgi. Þorlákur boðar rúmlega 50 leikmenn til þessara æfinga en æft verður í Egilshöllinni og Kórnum.
8. mars 2010
Fulltrúar þjóða sem leika í H riðli, undankeppni EM 2012, hittust í dag í Kaupmannahöfn. Fundarefnið var leikdagar riðilsins en ekki náðist samkomulag á milli þjóðanna verður því dregið um leikdaga. UEFA sjá um dráttinn í næstu viku.
5. mars 2010
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er mætir Færeyjum og Mexíkó í vináttulandsleikjum í mars.  Leikurinn við Færeyjar fer fram í Kórnum, sunnudaginn 21. mars en leikið verður við Mexíkó í Charlotte í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 24. mars.
3. mars 2010
Íslenska kvennalandsliðið lauk keppni á Algarve-mótinu í dag þegar liðið lagði heimamenn í Portúgal með þremur mörkum gegn engu í leik um 9. sætið á mótinu.  Stelpurnar okkar hlutu síðan sérstaka viðurkenningu fyrir prúðmennsku.
3. mars 2010
Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í vináttulandsleik Íslendinga og Kýpverja, sem fram fór í larnaca á Kýpur í dag, miðvikudag. Íslenska liðið lék vel í leiknum og gaf fá færi á sér. Þrjú sláarskot í seinni hálfleik sýndu að lítið vantaði upp á íslenskan sigur.
3. mars 2010
Ísland og Portúgal mætast í A-landsliðum kvenna á Estadio Algarve í dag kl. 13:00, í leik um 9.-10. sætið á Algarve-mótinu.  Pórtúgalar eru vitanlega á heimavelli í þessum leik.  Smellið hér að neðan til að fylgjast með textalýsingu frá leiknum.
3. mars 2010
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir vináttulandsleikinn við Kýpverja, sem fram fer á Antonis Papadopoulos-leikvanginum í Larnaca á Kýpur.  Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
3. mars 2010
Ísland er í 91. sæti á styrkleikalista FIFA og Coca-Cola fyrir karlalandslið og hefur hækkað um þrjú sæti á listanum frá því í síðasta mánuði. Mótherjar Íslands í vináttulandsleiknum í dag, Kýpverjar, eru í 66. sæti og hækka sig um tvö sæti frá fyrri mánuði.
2. mars 2010
A landslið kvenna leikur um 9.-10. sætið á Algarve-mótinu á miðvikudag og mætir þar heimamönnum, Portúgölum.  Leikurinn fer fram á aðalleikvanginum, Estadio Algarve, og hefst kl. 13:00.  Þýskaland og Bandaríkin leika til úrslita.
2. mars 2010
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Portúgal á miðvikudag. Liðin mætast í leik um 9.-10. sætið á Algarve-mótinu og fer hann fram kl. 13:00 á aðalleikvangi svæðisins, Estadio Algarve, sama leikvangi og úrslitaleikur mótsins fer fram.
2. mars 2010
Strákarnir í U21 liðinu gerðu frábært jafntefli við Þjóðverja í Magdeburg í kvöld. Leikurinn var í undankeppni EM og urðu lokatölur 2 - 2 eftir að staðan hafði verið 1 - 1 í leikhléi. Þeir Kolbeinn Sigþórsson og Bjarni Þór Viðarsson sem skoruðu mörk íslenska liðsins.
2. mars 2010
Á áttunda tug leikmanna frá félögum víðs vegar af landinu verða á úrtaksæfingum vegna U19 og U17 landsliðs karla um komandi helgi.  Æft verður í Kórnum, í Egilshöll og á Framvelli.  Um einn hóp er að ræða hjá U17, en æfingahópur U19 er tvískiptur.  Smellið hér að neðan til að skoða æfingahópana og nánari upplýsingar.
2. mars 2010
Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Þjóðverjum í undankeppni EM.  Leikurinn hefst kl. 16:45 að íslenskum tíma og fer fram á MDCC vellinum í Magdeburg.  Fylgst verður með leiknum hér á síðunni með textalýsingu.
2. mars 2010
A-landslið karla æfir við góðar aðstæður í Limassol á Kýpur fyrir vináttulandsleikinn gegn heimamönnum á miðvikdag.  Veður er gott, hlýtt en smá gola, aðstæður allar hinar bestu og góð stemmning í hópnum.  Leikurinn hefst kl. 16:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.  Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska liðsins, mun tilkynna byrjunarliðið á leikdag.
1. mars 2010
Strákarnir í U21 landsliðinu eru staddir í Magdeburg þar sem þeir leika við Þjóðverja á morgun í undankeppni EM. Leikið verður á MDCC Stadium í Magdeburg og hefst leikurinn kl. 16:45 að íslenskum tíma.