Verslun
Leit
SÍA

1. mars 2010

Mikið undir í Magdeburg

Strákarnir í U21 karlalandsliðið Íslands eru klárir í slaginn fyrir leikinn á morgun á móti Þjóðverjum.  Æft var á keppnsvellinum í kvöld og fer vel um mannskapinn.  Tvær æfingar voru teknar í dag en leikurinn hefst kl. 16:45 að íslenskum tíma.

Landslið

1. mars 2010

Veigar Páll ekki með gegn Kýpur

Enn fækkar í leikmannahópnum hjá A-landsliði karla, sem mætir Kýpverjum í vináttulandsleik ytra á miðvikudag.  Veigar Páll Gunnarsson á við veikindi að stríða og getur því ekki ferðast.  Leikmannahópur íslenska liðsins telur nú 17 leikmenn.

Landslið

1. mars 2010

Norskur 3-2 sigur á Algarve

Ísland og Noregur mættust í Algarve-bikarnum í dag, mánudag og var þetta lokaumferðin í B-riðli.  Norðmenn reyndust sterkari í leiknum og knúðu fram 3-2 sigur gegn stelpurnum okkar, sem höfnuðu í neðsta sæti B-riðils.

Landslið

28. febrúar 2010

Byrjunarliðið gegn Noregi á Algarve-mótinu

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Noregi.  Liðin mætast í Algarve-bikarnum á mánudag kl. 15:00 að íslenskum tíma og er þetta lokaumferðin í B-riðli.  Leikir um sæti fara fram á miðvikudag.

Landslið

28. febrúar 2010

Breytingar á hópnum fyrir vináttuleikinn við Kýpur

Ólafur Jóhannesson hefur þurft að gera breytingu á leikmannahóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Kýpur, sem fram fer ytra 3. mars.  Þrír leikmenn sem valdir voru í hópinn verða ekki með.  Jónas Guðni Sævarsson hefur verið kallaður inn í hópinn.

Landslið

26. febrúar 2010

Ísland tapaði 1-5 fyrir Svíþjóð

A-landslið kvenna atti kappi við Svíþjóð í Algarve-mótinu í Portúgal í dag.  Ísland leiddi með einu marki í hálfleik, en sænska liðið sýndi mátt sinn í síðari hálfleik og skoraði 5 mörk..

Landslið

26. febrúar 2010

Kýpverski landsliðshópurinn gegn Íslandi

Í 22 manna leikmannahópi Kýpurs fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi 3. mars næstkomandi eru aðeins tveir leikmenn sem leika með félagsliðum utan heimalandsins, og leika þeir báðir í Grikklandi.

Landslið

25. febrúar 2010

Byrjunarliðið er mætir Svíþjóð á morgun

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Svíum á morgun, föstudag,  á Algarve Cup.  Leikurinn sem er annar leikur íslenska liðsins á mótinu, hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.  Sigurður Ragnar gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá leiknum gegn Bandaríkjunum.

Landslið

24. febrúar 2010

Kári kallaður í Kýpurhópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, gerði í dag eina breytingu á hópnum er mætir Kýpur í vináttulandsleik 3. mars næstkomandi en leikið verður á Kýpur.  Ólafur hefur valið Kára Árnason í hópinn og kemur hann í stað Hermanns Hreiðarssonar sem á við meiðsli að stríða.

Landslið

24. febrúar 2010

Tveggja marka tap gegn Bandaríkjunum á Algarve

Stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu hófu í dag leik á Algarve Cup og voru mótherjarnir Bandaríkin, sem eru í efsta sæti styrkleikalista FIFA.  Lokatölur urðu 2 - 0 Bandaríkjunum í vil eftir að staðan var markalaus í leikhléi.  Tvær vítaspyrnu fóru í súginn hjá íslenska liðinu í leiknum

Landslið

23. febrúar 2010

Byrjunarliðið sem mætir Bandaríkjunum - Textalýsing

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Bandaríkjunum í fyrsta leik kvennalandsliðsins á Algarve Cup.  Fylgst verður með leiknum hér á síðunni með textalýsingu.

Landslið

23. febrúar 2010

U17 karla - Æfingar um komandi helgi

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp til úrtaksæfinga um komandi helgi.  Gunnar velur 23 leikmenn að þessu sinni en æft verður í Kórnum og í Egilshöllinni.

Landslið

23. febrúar 2010

Kvennalandsliðið komið til Algarve

Kvennalandsliðið er komið til Algarve þar sem það tekur þátt á Algarve Cup sem hefst á morgun.  Fyrsti leikur Íslands er gegn Bandaríkjunum og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Landslið

22. febrúar 2010

U21 karla - Hópurinn valinn fyrir Þýskaland

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hóp sinn fyrir leik gegn Þýskalandi í undankeppni fyrir EM 2011.  Þarna mætast liðið í öðru og þriðja sæti riðilsins en Ísland hefur 12 stig eftir fimm leiki en Þjóðverjar 7 stig eftir fjóra leiki.

Landslið

22. febrúar 2010

Hópurinn fyrir Kýpurleikinn tilkynntur

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn er mætir Kýpur í vináttulandsleik á Kýpur, miðvikudaginn 3. mars.  Ólafur velur 20 leikmenn fyrir þennan leik sem er fyrsti vináttulandsleikur liðsins af þremur í marsmánuði.

Landslið

16. febrúar 2010

U17 og U19 kvenna - Æfingar og æfingaleikir um helgina

Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa fyrir æfingar hjá U17 og U19 kvenna um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og í Kórnum.

Landslið

15. febrúar 2010

Landsliðshópurinn valinn sem fer til Algarve

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 20 leikmenn sem taka þátt á Algarve Cup.  Mótið hefst 24. febrúar og leikur Ísland sinn fyrsta leik gegn Bandaríkjunum en einnig verður leikið við Noreg og Svíþjóð.  Fimm nýliðar eru í landsliðshópnum að þessu sinni.

Landslið

11. febrúar 2010

Leikstaðir í Serbíu og Króatíu tilbúnir

Nú er ljóst hvar íslenska kvennalandsliðið leikur útileiki sína gegn Serbíu og Króatíu en leikirnir, sem eru í undankeppni fyrir HM 2011, fara fram 27. og 31. mars.  Næsta verkefni kvennalandsliðsins er hinsvegar hið sterka Algarve Cup en það hefst 24. febrúar næstkomandi

Landslið