10. febrúar 2010
Dagana 23. og 24. júlí munu U17 og U19 kvennalandslið Íslands leika vináttulandsleiki við jafnaldra sína í Færeyjum. Hvort lið um leika 2 landsleiki en þessir leikir eru hluti af samstarfsverkefni knattspyrnusamband Íslands og Færeyja.
10. febrúar 2010
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið leikmenn fyrir þessar æfingar. Tveir hópar eru boðaðir hjá U19 karla.
7. febrúar 2010
Dregið var í riðla í undankeppni EM 2012 í dag og fór drátturinn fram í Varsjá í Póllandi. Úrslitakeppnin fer fram í Póllandi og Úkraínu. Ísland dróst í fimm liða H-riðil ásamt Kýpur, Noregi, Danmörku og Portúgal.
4. febrúar 2010
Á sunnudaginn, 7. febrúar,  verður dregið í undankeppni fyrir EM 2012 en úrslitakeppnin fer fram að þessu sinni í Póllandi og Úkraínu.  Dregið verður í Varsjá og hefst drátturinn kl. 11:00 að íslenskum tíma.
3. febrúar 2010
Framkvæmdastjórn FIFA hefur ákveðið að fjölga þjóðum í úrslitakeppni HM kvenna árið 2015, úr 16 í 24 þjóðir.  Ekki hefur verið ákveðið hvar sú úrslitakeppni fer fram né hversu mörg sæti falla í hlut Evrópu.
3. febrúar 2010
Ísland fellur niður um 2 sæti á styrkleikalista FIFA en nýr styrkleikalisti karlalandsliða var gefinn út í dag. Ísland er í 94. sæti listans en Spánverjar verma efsta sætið á þessum lista. Litlar hreyfingar eru á listanum á meðal Evrópuþjóða.
2. febrúar 2010
Um komandi helgi verða æfingar hjá A landsliði kvenna sem og U17 og U19 landsliðum kvenna. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöllinni og hafa landsliðsþjálfararnir, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Ólafur Þór Guðbjörnsson og Þorlákur Árnason, valið leikmenn til þessara æfinga.
28. janúar 2010
Knattspyrnusambönd Íslands og Mexíkó hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik, miðvikudaginn 24. mars næstkomandi.  Leikið verður í Charlotte í Norður Karólínu í Bandaríkjunum.
27. janúar 2010
Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið 36 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi og verður æft tvisvar um helgina, í Egilshöllinni og Kórnum.
27. janúar 2010
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmenn til æfinga um komandi helgi. Fyrsta æfingin fer þó fram á föstudaginn en þá eru leikmenn boðaðir í þolpróf.
26. janúar 2010
Knattspyrnusambönd Íslands og Liechtenstein hafa náð samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna mætist í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 11. ágúst. Þetta er í sjötta skiptið sem þjóðirnar mætast í landsleik
19. janúar 2010
Um komandi helgi fara fram æfinga hjá A landsliði kvenna, U17 og U19 kvenna og fara æfingarnr fram í Egilshöll og Kórnum sem og að allir leikmenn þreyta hlaupapróf. Tæplega 60 leikmenn eru boðaðir á þessar æfingar.
13. janúar 2010
Knattspyrnusamband Íslands og Vífilfell (Coca Cola) undirrituðu í gær samkomulag um áframhaldandi samstarf til næstu fjögurra ára.  Í samningnum felst stuðningur Vífilfells við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands af báðum kynjum.
12. janúar 2010
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur boðað 21 leikmann á úrtaksæfingu, miðvikudaginn 20. janúar og fer hún fram í Fjarðabyggðahöllinni.  Leikmennirnir koma frá fjórum félögum og verður fundur með leikmönnum á eftir æfingunni.
12. janúar 2010
Þeir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfarar U17 og U19 karla,  hafa valið úrtakshópa fyrir æfingar um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og í Egilshöllinni.
8. janúar 2010
Náðst hefur samkomulag á milli Knattspyrnusambands Íslands og Knattspyrnusambands Kýpurs um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Kýpur, miðvikudaginn 3. mars næstkomandi.
6. janúar 2010
Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 21. mars. Þetta er þriðja árið í röð sem að þjóðirnar leika vináttulandsleik í Kórnum í marsmánuði.
29. desember 2009
Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa tilkynnt úrtakshópa sína fyrir fyrstu landsliðsæfingarnar á nýjur ári.  Æfingarnar fara fram dagana 9. - 10 janúar og verður æft í Kórnum og Egilshöllinni.