Verslun
Leit
SÍA

29. október 2009

Landsliðshóparnir fyrir leiki gegn Íran og Lúxemborg

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópa fyrir tvo vináttulandsleiki sem fara fram 10. og 14. nóvember næstkomandi.  Leikið verður við Íran í Teheran þriðjudaginn 10. nóvember og við Lúxemborg í Lúxemborg, laugardaginn 14. nóvember.

Landslið

28. október 2009

Eins marks sigur í baráttuleik í Belfast

Stelpurnar í íslenska liðinu unnu dýrmætan sigur á stöllum sínum frá Norður Írlandi en leikurinn var liður í undankeppni HM 2011.  Lokatölur á The Oval í Belfast urðu 0 - 1 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Það var Katrín Ómarsdóttir sem skoraði sigurmarkið á 79. mínútu leiksins.

Landslið

28. október 2009

Stelpurnar í U17 og U19 við æfingar um helgina

Framundan eru æfingar hjá U17 og U19 kvenna en úrtaksæfingar eru nú um helgina.  Þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson hafa valið úrtakshópa fyrir þessar æfingar sem fara fram í Kórnum og í Reykjaneshöllinni.

Landslið

27. október 2009

Byrjunarliðið er mætir Norður Írum í Belfast - Bein textalýsing

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Norður Írum í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikurinn hefst kl. 19:30 að íslenskum tíma og fer fram á The Oval í Belfast.

Landslið

25. október 2009

Tveggja marka tap í Frakklandi

Stelpurnar okkar í A-landsliði kvenna biðu á laugardag lægri hlut gegn Frökkum í undankeppni HM 2011.  Frakkar unnu tveggja marka sigur í leiknum, sem fram fór á Stede Gerland-leikvanginum í Lyon. 

Landslið

23. október 2009

Soffíu Gunnarsdóttur bætt í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hefur bætt Soffíu Gunnarsdóttur, úr Stjörnunni, inn í hópinn sem mætir Frakklandi og Norður Írlandi.  Soffía hélt til móts við hópinn í dag og verður tilbúinn í slaginn á morgun þegar Ísland mætir Frökkum í Lyon.

Landslið

23. október 2009

Byrjunarlið Íslands gegn Frökkum

SIgurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið er mætir Frökkum í undankeppni fyrir HM 2011 en leikið er í Lyon.  Leikurinn hefst kl. 14:30 og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

23. október 2009

Stelpurnar æfa á keppnisvellinum í dag

Íslenska kvennalandsliðið æfir í dag á Stade de Gerland, heimavelli Lyon, en þar mætir liðið Frökkum á morgun í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.

Landslið

20. október 2009

Geysisterkur riðill Íslands á Algarve Cup

Íslenska kvennalandsliðið tekur sem fyrr þátt á Algarve Cup á næsta ári en mótið fer fram dagana 24. febrúar til 3. mars að þessu sinni.  Þarna mæta til leiks mörg af sterkustu landsliðum í kvennaknattspyrnunni en búið er að skipta í riðla.

Landslið

20. október 2009

Um 70 leikmenn á úrtaksæfingum hjá U17 og U19 karla um helgina

Úrtaksæfingar verða um komandi helgi hjá U17 og U19 karlalandsliðum Íslands.  Þjálfararnir Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson hafa valið um 70 leikmenn til þessara æfinga sem fara fram í Egilshöll og Kórnum.

Landslið

19. október 2009

Hópurinn sem mætir Frökkum og Norður Írum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn er mætir Frökkum og Norður Írum í undankeppni HM 2011 og fara báðir leikirnir fram ytra.  Leikið verður við Frakka laugardaginn 24. október í Lyon en leikurinn við Norður Íra fer fram í Belfast, miðvikudaginn 28. október.

Landslið

16. október 2009

Mikilvægir leikir framundan hjá kvennalandsliðinu

Framundan eru tveir mikilvægir landsleikir hjá kvennalandsliðinu síðar í mánuðinum og fara þeir báðir fram ytra.  Laugardaginn 24. október verður leikið gegn Frökkum og miðvikudaginn 28. október eru Norður Írar mótherjarnir.

Landslið

16. október 2009

Ísland upp um níu sæti á styrkleikalista karla

Íslenska karlalandsliðið fer upp um níu sæti á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag.  Ísland er nú í 87. sæti listans en Brasilíumenn tróna á toppnum en Spánverjar koma þar skammt á eftir.

Landslið

14. október 2009

Hundraðasti sigur A landsliðs karla

Þegar Suður Afríkumenn voru lagðir á Laugardalsvelli í gærkvöldi var það hundraðasti sigur A landsliðs karla.  Landsleikirnir eru orðnir 376 talsins og hafa sigrarnir verið 100, jafnteflin 68 og tapleikirnir 208 talsins.

Landslið

14. október 2009

Úrtaksæfingar hjá stelpunum í U17 og U19 framundan

Um komandi helgi verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og hafa þjálfararnir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson valið hópa til þessara æfinga.  Æft verður í Kórnum og Reykjaneshöllinni.

Landslið

13. október 2009

Baráttusigur á Norður Írum hjá U21 karla

Strákarnir í U21 lögðu Norður Íra að velli í dag í undankeppni EM en leikið var í Grindavík.  Lokatölur urðu 2 - 1 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið markalaust í leikhléi.  U21 liðið því nú náð sér í níu stig eftir fjóra leiki og eru í öðru sæti riðilsins á eftir Tékkum

Landslið

13. október 2009

Sigur á Suður Afríku í Laugardalnum

Íslendingar lögðu Suður Afríku að velli í vináttulandsleik í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur urðu 1 - 0 og kom sigurmarkið í síðari hálfleik og var Veigar Páll Gunnarsson þar á ferðinni með gott mark eftir lúmskt skot.

Landslið

13. október 2009

Byrjunarliðið gegn Suður Afríku tilbúið

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem að mætir Suður Afríku kl. 18:10 í kvöld á Laugardalsvelli.  Ólafur hefur einnig gert eina breytingu á hópnum, Björgólfur Takefusa kemur inn í hópinn í stað Eiðs Smára Guðjohnsen sem á við meiðsli að stríða.

Landslið