13. október 2009
Ísland tekur á móti Norður Írlandi í dag í undankeppni fyrir EM og fer leikurinn fram á Grindavíkurvelli kl. 15:00.  Þetta er fjórði leikur Íslands í undankeppninni og hefur liðið 6 stig úr leikjunum þremur til þessa. Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
12. október 2009
Ísland tekur á móti Suður Afríku á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 13. október og hefst leikurinn kl. 18:10. Miðasala á þennan vináttulandsleik er í fullum gangi í miðasölukerfi hjá midi.is og á leikdag opnar miðasala á Laugardalsvelli kl. 12:00.
12. október 2009
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt Gylfa Þór Sigurðssyni inn í hópinn er mætir Norður Írum í undankeppni EM.  Leikurinn fer fram á Grindavíkurvelli, þriðjudaginn 13. október og hefst kl. 15:00.
12. október 2009
Strákarnir í U19 léku í dag síðasta leik sinn í undankeppni fyrir EM en riðill þeirra var leikinn í Bosníu.  Íslenska liðið lék gegn Búlgaríu og unnu góðan sigur með þremur mörkum gegn tveimur eftir að hafa verið undir í hálfleik, 1 – 2. 
12. október 2009
Strákarnir í U19 karla mæta Búlgörum í dag en leikurinn er lokaleikur liðsins í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Bosníu. Með sigri getur íslenska liðið tryggt sér sæti í milliriðlum en verður þá að treysta á að Norður Írar vinni ekki sigur á heimamönnum.
11. október 2009
Knattspyrnusambönd Írans og Íslands hafa náð samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 10. nóvember næstkomandi.  Leikið verður á Azadi vellinum í höfuðborg Írans, Teheran.  Þetta er í fyrsta skipti sem að landsleikur í knattspyrnu fer fram á milli þessara þjóða.
9. október 2009
Íslendingar unnu öruggan sigur á liði San Marínó í undankeppni EM U21 karlalandsliða í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur urðu 8 - 0 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4 – 0 Íslandi í vil.
9. október 2009
Strákarnir í U19 mæta jafnöldrum sínum frá Norður Írlandi í dag en leikurinn er liður í undankeppni EM. Þetta er annar leikur liðsins í keppninni sem fer fram í Bosníu. Kristinn R. Jónsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn og gerir fjórar breytingar frá fyrsta leiknum.
9. október 2009
Strákarnir í U21 mæta San Marínó í kvöld en leikurinn er liður í undankeppni EM.  Leikið verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 19:00.  Þetta er þriðji leikur strákanna í riðlinum en þeir hafa þrjú stig eftir tvö leiki.
8. október 2009
Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur verið ákveðið að færa leik Íslands og San Marínó í undankeppni EM.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli kl. 19:00 á morgun en ekki á Akranesvelli kl. 15:00 eins áætlað var í fyrstu.
7. október 2009
Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson hefur þurft að draga sig út úr hópnum hjá U21 karla en leikið verður við San Marínó, föstudaginn 9. október. Aron Einar á við meiðsli að stríða en hann mun verða í hópnum þegar A landsliðið mætir Suður Afríku í vináttulandsleik
7. október 2009
Strákarnir í U19 verða í eldlínunni í dag en þá mæta þeir Bosníu í undankeppni EM en leikið er í Bosníu. Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
6. október 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið úrtakshóp sem æfir um komandi helgi. Æft verður í Kórnum og Egilshöll og hefur Gunnar valið 36 leikmenn til þessara æfinga.
6. október 2009
KSÍ hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna, ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Suður Afríku sem fram fer á Laugardalsvelli 13. október kl. 18:10. Jafnframt er öryrkjum og ellilífeyrisþegum boðinn ókeypis aðgangur að leiknum.
6. október 2009
Miðasala er hafin á vináttulandsleik Íslands og Suður Afríku sem fram fer á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 13. október kl. 18:10.  Miðaverði er stillt í hóf og er miðaverð í forsölu frá 1.000 krónum upp í 2.500 krónur.  Það er því um að gera að næla sér í miða í tíma.
4. október 2009
Strákarnir í U17 gerðu jafntefli í gær við Bosníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM en leikið var í Wales. Lokatölur urðu 1 -1 en Bosníumenn höfðu eins marks forystu í leikhléi. Íslenska liðið lék manni færra allan síðari hálfleikinn eftir að þeir misstu mann af velli vegna tveggja áminninga undir lok fyrri hálfleiks.
2. október 2009
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hóp sinn er mætir Norður Írlandi og San Marínó í undankeppni EM og fara báðir leikirnir fram hér á landi.  San Marínó verða mótherjarnir á Akranesvelli, föstudaginn 9. október og Norður Írar mæta til leiks á Grindavíkurvöll, þriðjudaginn 13. október.  Báðir leikirnir hefjast kl. 15:00.
1. október 2009
Strákarnir í U17 gerðu í gærkvöldi jafntefli gegn Rússum í undankeppni EM en leikið er í Wales. Lokatölur urðu 1 - 1 eftir að Rússar höfðu leitt í leikhléi. Kristján Gauti Emilsson jafnaði metin fyrir Ísland í síðari hálfleik.