Verslun
Leit
SÍA

30. september 2009

Landsleikir á þriðjudögum í stað miðvikudaga

Framkvæmdastjórn FIFA fundaði í gær í Ríó og meðal þeirra ákvarðana sem þar voru teknar var að framvegis yrðu landsleikjadagar á þriðjudögum í stað miðvikudaga áður.  Einnig ítrekaði framkvæmdastjórnin áherslur sínar og dagsetningar varðandi TMS félagaskiptakerfið.

Landslið

30. september 2009

Ólafur Jóhannesson ráðinn til ársloka 2011

Knattspyrnusamband Íslands framlengdi í dag samning við Ólaf Jóhannesson sem landsliðsþjálfara A landsliðs karla og gildir samningurinn til ársloka 2011.  Nýr samningur þess efnis var undirritaður í dag í höfuðstöðvum KSÍ.

Landslið

30. september 2009

Strákarnir í U17 leika við Rússa - Byrjunarliðið tilbúið

Strákarnir í U17 leika gegn Rússum í dag í undankeppni EM en leikið er í Wales.  Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og hefur Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.

Landslið

30. september 2009

Vináttulandsleikur við Suður Afríku - Hópurinn tilkynntur

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Suður Afríku í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þriðjudaginn 13. október kl. 18:10.  Ísland og Suður Afríka hafa tvisvar áður mæst hjá A landsliðum karla.

Landslið

29. september 2009

U19 karla leikur í Bosníu í undankeppni EM

Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið landsliðshóp sem leikur í Bosníu í undankeppni EM dagana 7. - 12. október.  Mótherjar Íslendinga í riðlinum eru ásamt heimamönnum, Norður Írar og Búlgarir.

Landslið

29. september 2009

Sigurður Ragnar velur æfingahóp

Framundan eru hjá íslenska kvennalandsliðinu gríðarlega mikilvægir leikir í undankeppni fyrir HM 2011.  Leikið verður við Frakka 24. október og Norður Íra 28. október og fara báðir leikirnir fram ytra.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið æfingahóp vegna þessara leikja.

Landslið

29. september 2009

Naumt tap í fyrsta leik hjá strákunum í U17

Strákarnir í U17 hófu leik í gær í undankeppni EM þegar þeir mættu Wales en riðillinn er leikinn þar í landi.  Lokatölur urðu 3 - 2 heimamönnum í vil eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. 

Landslið

28. september 2009

Strákarnir í U17 leika gegn Wales í dag

Strákarnir í U17 leika í dag fyrsta leik sinn í undankeppni EM en leikið er í Wales.  Mótherjarnir í dag eru heimamenn en einnig leika Bosnía og Rússland í þessum riðli.  Leikurinn í dag hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma

Landslið

25. september 2009

Keppni í milliriðlum bíður U19 kvenna

Stelpurnar í U19 báru sigurorð af Rúmenum í gær en leikurinn var liður í undankeppni fyrir EM.  Lokatölur urðu 5 - 0 Íslendingum í vil eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í hálfleik.  Stelpurnar tryggðu sér þar með sæti í milliriðlum keppninnar.

Landslið

25. september 2009

Kvennalandsliðið upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA

Ísland er í 17. sæti á nýjum styrkleikalista kvenna sem FIFA gaf út í dag.  Ísland fer upp um 2 sæti og sitja í sautjánda sætinu ásamt Rússum.  Það eru Bandaríkin sem eru í efsta sæti listans en nýkrýndir Evrópumeistarar Þjóðverja eru í öðru sæti.

Landslið

24. september 2009

U19 kvenna leikur gegn Rúmeníu - Byrjunarliðið tilbúið

Stelpurnar í U19 leika í dag gegn Rúmeníu í riðlakeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal.  Íslenska liðið er með fjögur stig eftir 2 leiki eins og það svissneska en Rúmenía hefur þrjú stig.  Jafntefli tryggir íslenska liðinu sæti í milliriðlum.

Landslið

23. september 2009

Æfingahelgi hjá U19 karla framundan

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 23 leikmenn til æfinga um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram á Tungubökkum og verða þrjár talsins.  Leikmennirnir 23 koma frá 16 félögum víðsvegar af á landinu.

Landslið

21. september 2009

Jafntefli hjá stelpunum í U19 gegn Sviss

Stelpurnar í U19 gerðu í dag jafntefli gegn stöllum sínum frá Sviss en leikurinn er í riðlakeppni EM U19 kvenna og er leikið í Portúgal.  Lokatölur urðu 1 - 1 en þannig var staðan í hálfleik.  Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði mark Íslands og jafnaði þá metin á 8. mínútu.

Landslið

21. september 2009

U17 karla leikur í Wales - Hópurinn valinn

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið landsliðshóp sinn er heldur til Wales og leikur þar í undankeppni EM.  Mótherjar strákanna, ásamt heimamönnum, eru Rússland og Bosnía.

Landslið

21. september 2009

Byrjunarlið Íslands gegn Sviss hjá U19 kvenna

Stelpurnar í U19 kvenna mæta Sviss í kvöld í undankeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal.  Þetta er annar leikur liðsins í riðlinum en sigur vannst á heimastúlkum í fyrsta leik með tveimur mörkum gegn engu.

Landslið

19. september 2009

Góð byrjun hjá U19 kvenna í Portúgal

Stelpurnar í U19 hófu leik í dag í undankeppni fyrir EM U19 kvenna en riðillinn er að þessu sinni leikinn í Portúgal.  Íslensku stelpurnar unnu sigur á heimastúlkum í fyrsta leik en leikið var gegn heimastúlkum.  Lokatölur urðu 0 -2 eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.

Landslið

18. september 2009

Þetta lá í loftinu!

Íslenska kvennalandsliðið vann í gær sinn stærsta sigur frá upphafi þegar að landslið Eistlands var lagt af velli með tólf mörkum gegn engu.  Það má segja að þetta hafi legið í loftinu því að skömmu fyrir leikinn mátti sjá glæsilegan regnboga yfir Laugardalsvelli

Landslið

18. september 2009

Flottir fánaberar á vellinum í gær

Á landsleik Íslands og Eistlands í gærkvöldi vöktu fánaberarnir sérstaka athygli.  Um var að ræða átta fatlaðar stúlkur sem að héldu á fánum FIFA á meðan leikmenn gengu inn á völlinn og þjóðsöngvar þjóðanna voru leiknir. 

Landslið