17. júlí 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn fyrir Norðurlandamót U17 karla sem fram fer í Noregi, dagana 27. júlí - 3. ágúst.  Ísland er í riðli með Skotum, Svíum og Finnum auk þess sem leikið verður um sæti.
16. júlí 2009
Stelpurnar í U19 kvenna biðu lægri hlut gegn stöllum sínum frá Svíþjóð í úrslitakeppni EM í Minsk í dag.  Lokatölur urðu 1 - 2 Svíum í vil eftir að íslensku stelpurnar höfðu leitt leikinn í leikhléi.
16. júlí 2009
Ísland og Svíþjóð eigast nú við í úrslitakeppni EM U19 kvenna en leikið er í Hvíta Rússlandi.  Þetta er annar leikur íslenska liðsins en liðið gerði jafntefli við Noreg í fyrsta leiknum 0-0.  Hægt er að fylgjast með textalýsingu hér á síðunni.
16. júlí 2009
Strákarnir í U18 karla leika sinn annan leik á Svíþjóðarmótinu í dag þegar þeir mæta heimamönnum.  Leikurinn hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
16. júlí 2009
Íslenska kvennalandsliðið vann glæstan sigur á því enska í vináttulandsleik sem fram fór í Colchester í kvöld.  Lokatölur urðu 2-0 fyrir íslenska liðið og voru það Hólmfríður Magnúsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir sem skoruðu mörk íslenska liðsins í sitt hvorum hálfleiknum.
16. júlí 2009
Strákarnir í U18 karla gerðu í dag jafntefli við Svía á Svíþjóðarmótinu og urðu lokatölur 3 - 3.  Staðan í leikhléi var 1 -1 en íslensku strákarnir náðu tveggja marka forystu í síðari hálfleik en Svíar skoruðu 2 mörk á síðustu mínútum leiksins og tryggðu sér þannig jafntefli.
16. júlí 2009
Íslenska kvennalandsliðið mætir því enska í vináttulandsleik í kvöld og fer leikurinn fram í Colchester í Englandi.  Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með textalýsingu af leiknum hér á síðunni.
15. júlí 2009
Íslenska kvennalandsliðið leikur á morgun vináttulandsleik við Englendinga og fer leikurinn fram í Colchester.  Leikurinn hefst kl. 18:45 að íslenskum tíma og hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
15. júlí 2009
Stelpurnar í U19 kvenna leika sinn annan leik á morgun í úrslitakeppni EM U19 kvenna sem fer fram í Hvíta Rússlandi.  Mótherjarnir eru Svíar og hefst leikurinn kl. 12:30 að íslenskum tíma.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem hefur leikinn á morgun.
14. júlí 2009
Strákarnir í U18 karla hófu leik í dag á Svíþjóðarmótinu þegar þeir mættu Wales.  Walesverjar höfðu betur með tveimur mörkum gegn engu og skoruðu þeir mörkin í sinn hvornum hálfleiknum.  Næsti leikur liðsins er næstkomandi fimmtudag þegar þeir mæta Svíum.
14. júlí 2009
Laugardaginn 18. júlí og mánudaginn 20. júlí fara fram fjórir vináttulandsleikir við Færeyjar og eru það U17 og U19 kvenna sem þar leika.  Leikið verður í Þorlákshöfn, Hveragerði og Hvolsvelli.
14. júlí 2009
Landslið U18 karla hefur í dag leik á Svíþjóðarmótinu og er fyrsti leikur liðsins við Wales.  Leikurinn hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og hefur Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U18 karla, tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn
13. júlí 2009
Íslenska U19 kvennalandsliðið lék í dag sinn fyrsta leik í úrslitakeppni EM U19 kvenna en keppnin er haldin í Hvíta Rússlandi.  Leikið var við Noreg í dag og lauk leiknum með markalausu jafntefli svo að fyrsta stigið er í höfn hjá íslenska liðinu.
13. júlí 2009
Í dag hefst úrslitakeppni U19 kvenna í Hvíta Rússlandi og þar er íslenska liðið í eldlínunni.  Fyrsti leikur liðsins er í dag við Noreg og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
13. júlí 2009
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum sem leikur í úrslitakeppni EM U19 kvenna í Hvíta Rússlandi.  Arna Ómarsdóttir úr Breiðabliki kemur inn í hópinn í stað Katrínar Ásbjörnsdóttur sem er meidd.
9. júlí 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem heldur til Englands í næstu viku og leikur vináttulandsleiki gegn Englandi og Danmörku.  Leikið verður við England á heimavelli Colchester, fimmtudaginn 16. júlí en við Dani verður leikið sunnudaginn 19. júlí á Wheatheafs Park sem er heimavöllur utandeildarliðsins Staines Town FC.
9. júlí 2009
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir Svíþjóðarferðina en hópurinn heldur utan á mánudag.  Páll Dagbjartsson úr Fjölni kemur í stað Andra Yeoman úr Breiðabliki.
7. júlí 2009
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U18 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt á alþjóðlegu móti í Svíþjóð dagana 13. - 19. júlí. Íslenska liðið hefur leik gegn Wales, 13. júlí.