4. júlí 2009
Íslenska U17 kvennalandsliðið lauk í dag keppni á Opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Svíþjóð. Stelpurnar léku gegn Dönum í dag um sjöunda sætið og höfðu góðan sigur, 1-0. Það var Sara Hrund Helgadóttir sem skorað mark Íslands í fyrri hálfleik.
3. júlí 2009
Stelpurnar í U17 töpuðu naumlega gegn Hollandi í lokaleik sínum í riðlakeppni opna Norðurlandamótsins í Svíþjóð. Lokatölur urðu 1 - 2 Hollendingum í vil eftir að íslenska liðið hafði leitt með einu marki í hálfleik.
2. júlí 2009
Stelpurnar í U17 mæta stöllum sínum frá Hollandi í dag en leikurinn er síðasti leikur liðsins í riðlakeppni opna Norðurlandamótsins. Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarliðið í leiknum gegn Hollendingum sem fram fer kl. 17 að íslenskum tíma.
1. júlí 2009
Íslenska stúlknalandsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri lék gegn Þjóðverjum í gær á opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð. Þýska liðið er gríðarlega sterkt og fór með sigur af hólmi, 6 - 0.
30. júní 2009
Þorlákur Árnason hefur tilkynnt byrjunarlið U16 ára stúlknalandsliðsins gegn Þjóðverjum en leikið er í bænum Forshaga og hefst leikurinn kl. 19:00 að staðartíma, 17:00 að íslenskum tíma.
30. júní 2009
Stelpurnar í U17 kvenna báðu lægri hlut gegn Norðmönnum í fyrsta leik Norðurlandamóts U17 kvenna sem haldið er í Svíþjóð. Lokatölur urðu 5 - 2 fyrir norska liðið eftir að þær höfðu leitt í hálfleik, 4 - 2.
29. júní 2009
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi en æft verður á Tungubökkum. 26 leikmenn eru valdir til þessara æfinga.
29. júní 2009
Stelpurnar í U17 hefja í dag leik í Norðurlandamóti U17 kvenna en það fer fram í Svíþjóð. Stelpurnar leika fyrsta leik sinn í dag kl. 17:00 en mótherjarnir eru stöllur þeirra frá Noregi. Byrjunarliðið hefur verið tilkynnt fyrir leikinn í dag.
25. júní 2009
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt íslenska leikmannahópinn fyrir úrslitakeppni EM, sem fram fer í Hvíta-Rússlandi og hefst mánudaginn 13. júlí.
25. júní 2009
Það verður nóg um að vera í Finnlandi þegar úrslitakeppni EM kvennalandsliða fer fram.  Sendiráð Íslands tekur þátt í sérstöku kynningarverkefni í Helsinki og hljómsveitin Hjaltalín mun halda þrenna tónleika.
24. júní 2009
Norðmenn hafa tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir úrslitakeppni EM kvennalandsliða, sem fram fer í Finnlandi í ágúst og september.  Um 22 manna hóp er að ræða og leika aðeins tveir leikmenn með liðum utan Noregs.
23. júní 2009
Úrtaksæfingar vegna U18 landsliðs karla verða haldnar um helgina. Alls hafa 28 leikmenn frá verið boðaðir á æfingarnar, sem fara fram laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. júní á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
22. júní 2009
U17 landslið kvenna tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð um næstu mánaðamót. Þorlákur Árnason, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt landsliðhópinn fyrir mótið.
19. júní 2009
Það er óhætt að segja að landslið Íslands í knattspyrnu verði á ferð og flugi í júlímánuði næstkomandi en þá fara fram um 20 landsleikir hjá nokkrum landsliðum Íslands. Leikirnir geta orðið fleiri en það fer eftir árangri liðanna í mótunum.
16. júní 2009
Frændur okkar Færeyingar munu heimsækja okkur í júlí með U17 og U19 kvennalandslið sín og leika fjóra landsleiki við íslenskar stöllur sínar. Leikið verður í Hveragerði, Þorlákshöfn og Hvolsvelli.
15. júní 2009
Í dag hefst úrslitakeppni landsliða U21 karla en keppnin fer fram í Svíþjóð. Fyrsti leikur keppninnar er í dag en þá eigast við England og Finnland. Hægt er að fylgjast með leikjum keppninnar í beinni útsendingu á heimasíðu UEFA án endurgjalds..
15. júní 2009
Eftir tæpan mánuð heldur U19 landslið kvenna til Hvíta Rússlands þar sem úrslitakeppni U19 kvenna bíður þeirra. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið undirbúningshóp til æfinga um helgina en úrslitakeppnin hefst 13. júlí.
12. júní 2009
Bruno Bini, landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Frakka, hefur valið hóp sinn fyrir úrslitakeppni EM kvenna í Finnlandi sem hefst í ágúst.  Frakkar verða fyrstu mótherjar Íslendinga í úrslitakeppninni en þjóðirnar mætast í Tampere 24. ágúst.