10. júní 2009
Makedónía lagði Ísland í dag í undankeppni fyrir HM 2010 en leikið var í Skopje. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu haft eins marks forystu í hálfleik.
10. júní 2009
Það styttist í leik Makedóníu og Íslands í undankeppni fyrir HM 2010 og hefst nú kl. 15:45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Mikill hiti er nú í Skopje og sýnir hitamælirinn á leikvellinum 38 gráður nú 90 mínútum fyrir leik.
10. júní 2009
Íslensku landsliðsmennirnir undirbúa sig nú undir leikinn við Makedóníu sem hefst í Skopje kl. 15:45 að íslenskum tíma. Í morgun kl. 10:00 að staðartíma brugðu leikmenn og fylgdarlið sér í hinn hefðbundna göngutúr á leikdag.
10. júní 2009
Í dag kl. 15:45 mætast Makedónía og Ísland í undankeppni HM 2010 og verður leikið í Skopje. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst upphitun fyrir leikinn þar kl. 15:10. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn.
9. júní 2009
Íslenska landsliðið æfði í dag á keppnisvellinum í Skopje. Mjög heitt er í veðri, um 37 stiga hiti og ekki ský á lofti. Leikurinn hefst á morgun kl. 15:45 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport.
9. júní 2009
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi. Framundan er Norðurlandamót U17 kvenna en það fer fram í Svíþjóð dagana 29. júní - 4. júlí.
8. júní 2009
Íslenska karlalandsliðið æfði í dag í Skopje í Makedóníu en liðið kom þangað um hádegið í dag. Þrír leikmenn hópsins eiga við meiðsli að stríða. Þeir Emil Hallfreðsson og Stefán Gíslason eru á batavegi.
8. júní 2009
Íslenska karlalandsliðið er nú komið til Skopje í Makedóníu en framundan er leikur í undankeppni HM 2010 við heimamenn. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 10. júní og hefst kl. 15:45 að íslenskum tíma.
7. júní 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert fimm breytingar á landsliðshópnum sem mætir Makedóníu á miðvikudaginn. Inn í hópinn koma þeir Jóhann Berg Guðmundsson, Hjálmar Jónsson, Guðmundur Steinarsson, Davíð Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason
6. júní 2009
Hollendingar reyndust of sterkir fyrir Íslendinga í kvöld á Laugardalsvelli þegar þjóðirnar léku í undankeppni fyrir HM 2010. Hollendingar sigruðu með tveimur mörkum gegn einu eftir að hafa leitt í leikhléi, 2-0. Holland tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni HM 2010 sem fram fer í Suður Afríku.
6. júní 2009
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem mætir Hollendingum á Laugardalsvelli kl. 18:45 í undankeppni HM 2010. Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega og forðast þannig biðraðir.
6. júní 2009
Fyrir landsleik Íslands og Hollands á Laugardalsvelli í dag mun lúðrasveitin Svanur marsera á hlaupabrautinni og leika ýmis lög. Jafnframt mun Svanur leika þjóðsöngva liðanna fyrir leik.
6. júní 2009
Í hálfleik á viðureign Íslands og Holland í undankeppni HM 2010, sem fram fer á laugardag, munu Guðmundur Guðbjörnsson, Magnús Edvardsson og Vigfús Þormar Gunnarssonfá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri þraut.
6. júní 2009
Í kvöld kl. 18:45 taka Íslendingar á móti Hollendingum í undankeppni fyrir HM 2010. Leikið verður á Laugardalsvelli og er uppselt á þennan stórleik. Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn og forðast þannig biðraðir.
5. júní 2009
Danir lögðu Íslendinga í vináttulandsleik hjá U21 karla í dag en leikið var í Álaborg. Lokatölur urðu 3-2 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 2-1. Þeir Bjarni Þór Viðarsson, úr víti og Skúli Jón Friðgeirsson skorðuðu mörk Íslendinga.
5. júní 2009
Miðasala á leiks Íslands og Hollands í undankeppni fyrir HM 2010 hefur gengið mjög vel. Kl. 13:30 voru fáir miðar eftir og lítur út fyrir að uppselt verði á leikinn fyrr en síðar. Það fer því hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þennan stórleik.
5. júní 2009
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið undirbúningshóp fyrir úrslitakeppni EM U19 kvenna sem fer fram í Hvíta Rússlandi í júlí. Ólafur hefur valið 25 leikmenn í þennan hóp.
5. júní 2009
Í dag kl. 12:30 að íslenskum tíma mæta Íslendingar Dönum í vináttulandsleik landsliða U21 karla. Leikið verður í Álaborg. Fylgst er með helstu atriðum leiksins hér að neðan.