Verslun
Leit
SÍA

5. júní 2009

Blár frá toppi til táar!

Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir viðureign Íslands og Hollands á morgun á Laugardalsvelli.  Leikurinn hefst kl. 18:45 og er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið, já eða allt andlitið!

Landslið

4. júní 2009

Bjarni ánægður með markverðina

Bjarni Sigurðsson, markavarðaþjálfari íslenska landsliðsins, er fullur tilhlökkunar fyrir stórleikinn gegn Hollandi á laugardaginn.  Hann segir markverði íslenska hópsins í fínu standi og hafi litið vel út á æfingum landsliðsins.

Landslið

4. júní 2009

Skylmingaatriði sýnd fyrir leikinn á laugardag

Sýnt verður sérstakt sýningaratriði í skylmingum og þá munu fjórir hópar skylmingamanna setja á svið orrustu.  Allt mun þetta fara fram á hlaupabrautinni á Laugardalsvelli fyrir leik. 

Landslið

4. júní 2009

Getur þú hitt þverslána frá vítateig?

Í hálfleik á viðureign Íslands og Holland á laugardag munu þrír vallargestir spyrna knetti frá vítateigslínu með það fyrir augum að hitta þverslána.  Ef það tekst er vinningurinn ferð fyrir tvo til Bandaríkjanna með Icelandair!

Landslið

3. júní 2009

Fundur um Kine próf fimmtudaginn 4. júní

Fimmtudaginn 4. júní verður fundur í höfuðstöðvum KSÍ þar sem farið verður yfir niðurstöður Kine prófanna sem leikmenn í undirbúningshópi U19 kvenna gengust undir í lok febrúar. Fundurinn hefst kl. 16:00.

Landslið

3. júní 2009

Karlalandsliðið upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA

Á nýjum styrkleikalista FIFA er birtur var í dag færist karlalandslið Íslands upp um tvö sæti.  Ísland er í 92. sæti ásamt Albaníu.  Mótherjar Íslendinga á laugardaginn, Holland, veltir Þjóðverjum í öðru sæti listans.

Landslið

2. júní 2009

Fleiri breytingar á U21 hópnum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert þrjár breytingar á hóp sínum fyrir vináttulandsleik gegn Dönum næstkomandi föstudag.  Eyjólfur hefur valið þá Almar Ormarsson, Kristin Jónsson og Eið Aron Sigurbjörnsson í hópinn.

Landslið

29. maí 2009

Breytingar á hópnum hjá U21 karla

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingar á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Dönum í Árósum.  Inn í hópinn koma þeir Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Jósef Kristinn Jósefsson og Rafn Andri Haraldsson.

Landslið

29. maí 2009

Hollenski hópurinn tilkynntur

Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollands, tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir landsleiki gegn Íslendingum og Norðmönnum.  Það er óhætt að segja að það sé valinn maður í hverju rúmi hjá hollenska liðinu sem mætir Íslendingum.

Landslið

29. maí 2009

Miðar á Ísland - Holland fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Holland afhenta miðvikudaginn 3. júní frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

28. maí 2009

Klæðum stúkuna í bláan lit!

Allir áhorfendur sem leggja leið sína á Laugardalsvöllinn laugardaginn 6. júní, þegar Íslendingar og Hollendingar mætast í undankeppni HM 2010, eru hvattir til að klæðast bláum lit, þannig að sá litur verði áberandi í stúkunni. 

Landslið

26. maí 2009

Eyjólfur velur hóp fyrir vináttulandsleik við Dani

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Dönum þann 5. júní næstkomandi.  Leikið verður í Álaborg á heimavelli AaB.

Landslið

26. maí 2009

Hópurinn valinn fyrir Holland og Makedóníu

Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag voru tilkynntur landsliðshópur hjá A landsliði karla.  Framundan tveir leikir í undankeppni HM 2010.  Tekið verður á móti Hollandi á Laugardalsvellinum, laugardaginn 6. júní kl. 18:45. Að neðan má sjá viðtal við landsliðsþjálfarann.

Landslið

25. maí 2009

Hópurinn tilkynntur á morgun fyrir Holland og Makedóníu

Á morgun verður haldinn blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ og hefst hann kl. 13:00. Á fundinum verður tilkynntur A landsliðshópur karla er mætir Hollandi á Laugardalsvelli 6. júní og Makedóníu ytra 10. júní.  Þá verður tilkynntur hópurinn hjá U21 karla en liðið leikur vináttulandsleik gegn Dönum, föstudaginn 5. júní.

Landslið

25. maí 2009

Miðasala á Ísland - Holland í fullum gangi

Miðasala á leik Íslands og Hollands í undankeppni HM 2010 er nú í fullum gangi. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 6. júní og hefst kl. 18:45.  Miðasala fer fram sem fyrr í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

20. maí 2009

Leikið við England á heimavelli Colchester 16. júlí

Vináttulandsleikur Englands og Íslands þann 16. júlí næstkomandi fer fram á heimavelli Colchester, Weston Homes Community Stadium.  Leikurinn verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Setanta.

Landslið

13. maí 2009

Finnland færist nær!

Miðasala á keppnina er nú í gangi og fær KSÍ úthlutað ákveðnum fjölda miða á hvern leik íslenska liðsins, fyrst á leikina þrjá í riðlakeppninni og síðan í útsláttarkeppnina í framhaldi af því ef liðið kemst upp úr riðlinum. Miðaverð á hvern leik er 20 evrur.

Landslið

12. maí 2009

Mótherjarnir klárir fyrir úrslitakeppni EM U19 kvenna

Í kvöld var dregið í riðla í úrslitakeppni U19 kvenna en keppnin fer fram í Hvíta Rússlandi dagana 13. - 25. júlí.  Dregið var í Minsk og lenti íslenska liðið í riðli með Englandi, Noregi og Svíþjóð.

Landslið