Verslun
Leit
SÍA

17. mars 2009

Enn og aftur Frakkland!

Íslenska kvennalandsliðið dróst í sex liða riðil í undankeppni fyrir HM kvenna 2011 en úrslitakeppnin fer fram í Þýskalandi.&nbsp; Íslenska liðið mætir Frökkum enn einu sinni en þjóðirnar spiluðu saman í undankeppni fyrir EM 2009.&nbsp; Þjóðirnar eru svo einnig&nbsp;saman í riðli í úrslitakeppni EM&nbsp;í sumar. Leikdagar Íslands í keppninni hafa verið ákveðnir.</

Landslið

17. mars 2009

Miðar á Ísland - Færeyjar fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland -&nbsp;Færeyjar afhenta fimmtudaginn 19.&nbsp;mars frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

17. mars 2009

Dregið í undankeppni HM kvenna 2011 í dag

Í dag kl. 12:30 verður dregið í undankeppni UEFA fyrir HM kvenna 2011 sem fer fram í Þýskalandi.&nbsp; Dregið verður í höfuðstöðvum UEFA í Sviss og verða þau Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, og Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, viðstödd dráttinn.

Landslið

16. mars 2009

Þúsund krónur fyrir fullorðna á Ísland - Færeyjar

Ísland og Færeyjar mætast í vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 22. mars kl. 14:00.&nbsp; Miðaverði á leikinn er stillt í hóf, 1000 krónur kostar fyrir 17 ára og eldri en frítt er fyrir börn 16 ára og yngri.

Landslið

16. mars 2009

30 leikmenn æfðu í Fjarðabyggðahöllinni

Síðastliðinn sunnudag fóru fram úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla og var æft tvisvar í Fjarðabyggðahöllinni.&nbsp; Það voru landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, sem stjórnuðu æfingunum.

Landslið

13. mars 2009

Hópurinn gegn Færeyjum tilkynntur

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn er mætir Færeyingum í vináttulandsleik í Kórnum þann 22. mars næstkomandi kl. 14:00.&nbsp; Hópurinn er ungur að árum og hefur leikreyndasti leikmaðurinn leikið 11 A landsleiki.

Landslið

11. mars 2009

Stelpurnar höfnuðu í 6. sæti á Algarve

Íslenska kvennalandslið hafnaði í 6. sæti á Algarvemótinu en Ísland lék lokaleik sinn á mótinu gegn Kína í dag.&nbsp; Kínversku konurnar fór með sigur af hólmi með tveimur mörkum gegn einu.&nbsp; Það var Harpa Þorsteinsdóttir sem skoraði mark Íslands.

Landslið

11. mars 2009

Ísland - Kína - Textalýsing

Núna kl. 11:30 hófst leikur Íslands og Kína en leikið er um 5. sætið á Algarvemótinu.&nbsp; Fylgst verður með leiknum hér á síðunni en þetta er síðasti leikur Íslands á þessu móti.

Landslið

11. mars 2009

Ísland upp um tvö sæti á styrkleikalista FIFA

Í dag var birtur nýr styrkleikalisti FIFA hjá karlalandsliðum og fer íslenska liðið upp um tvö sæti og er nú í 75. sæti listans.&nbsp; Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.

Landslið

10. mars 2009

Byrjunarliðið gegn Kína - Leikurinn hefst kl. 11:30

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, leika Ísland og Kína um 5. sætið á Algarve Cup og hefst leikurinn kl. 11:30.&nbsp; Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið fyrir leikinn.&nbsp; Heimasíðan verður með textalýsingu frá leiknum.

Landslið

10. mars 2009

Leikið við Kína kl. 11:30

Ísland mætir Kína í leik um 5. sætið á Algarve mótinu en leikurinn hefst kl. 11:30 á morgun.&nbsp; Leikið er um öll sæti á mótinu en úrslitaleikurinn á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna hefst kl. 16:00.

Landslið

9. mars 2009

Danskur sigur á Algarve

Danir lögðu Íslendinga í lokaumferðinni í riðlakeppni Algarve Cup í dag með tveimur mörkum gegn engu.&nbsp; Danir höfðu eins marks forystu eftir fyrri hálfleikinn og þrátt fyrir að íslenska liðið hefði sótt meira í síðari hálfleik, bættu Danir við marki.&nbsp;Íslendingar mæta því Kínverjum í leik um 5. sæti mótsins.

Landslið

9. mars 2009

Ísland - Danmörk - Textalýsing

Núna kl. 15:00 hófst leikur Íslands og Danmörku í lokaumferð riðlakeppni á Algarve Cup.&nbsp; Með jafntefli eða sigri tryggir Ísland sér annað sætið í riðlinum og þar með leik um 3. sætið á mótinu.&nbsp; Fylgst verður með leiknum hér að neðan.

Landslið

9. mars 2009

Æfingar hjá U16 og U17 karla á Austurlandi

Um komandi helgi verða æfingar fyrir úrtakshópa hjá U16 og U17 karla á Austurlandi.&nbsp; Það verða þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, er stjórna æfingunum.

Landslið

9. mars 2009

Dómararnir koma langt að

Fjörtíu dómarar eru að störfum á Algarve og koma þeir frá 27 þjóðlöndum.&nbsp; Dómarar leiksins í dag koma langt að en dómari leiksins og annar aðstoðardómarinn koma frá Guyana á meðan hinn aðstoðardómarinn kemur frá Guatemala.

Landslið

8. mars 2009

Byrjunarliðið gegn Dönum á Algarve

Íslenska kvennalandsliðið mætir því danska á morgun, mánudaginn 9. mars og hefst leikurinn kl. 15:00.&nbsp; Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Dönum en með jafntefli tryggir íslenska liðið sér 2. sæti riðilsins og þar með leik um þriðja sæti mótsins.

Landslið

7. mars 2009

Undirbúningur fyrir Danaleikinn hafinn

Í morgun æfði&nbsp;kvennalandsliðið á Algarve en þar með hófst undirbúningur fyrir leikinn gegn Danmörku sem fer fram kl. 15:00 á mánudaginn.&nbsp; Allir leikmenn hópsins, fyrir utan Söru Björk Gunnarsdóttur, tóku þátt í æfingunni.

Landslið

6. mars 2009

Sigurmark Bandaríkjanna á síðustu stundu

Íslenska kvennalandsliðið tapaði ákaflega naumlega gegn því bandaríska á Algarve Cup í dag.&nbsp; Lokatölur urðu 0-1 og kom sigurmark þeirra bandarísku á 89. mínútu.&nbsp; Gríðarleg barátta var allan leikinn og fast leikið.

Landslið