Verslun
Leit
SÍA

1. apríl 2009

Skotland - Ísland í kvöld kl. 19:00

Í kvöld mætast Skotland og Ísland í undankeppni fyrir HM 2010.  Leikurinn fer fram á Hampden Park í Glasgow og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport. Byrjunarlið Íslands verður tilkynnt hér á síðunni þegar það verður tilbúið

Landslið

31. mars 2009

Vel tekið á leikmönnum

Á milli æfinga og funda eru leikmenn í meðferð hjá starfsmönnum landsliðsins en með hópnum eru til taks læknir, sjúkraþjálfari og nuddari.  Á myndinni sem fylgir má sjá Eggert Gunnþór Jónsson í meðferð hjá Stefáni Stefánssyni sjúkraþjálfara. 

Landslið

31. mars 2009

Æft á Hampden Park í kvöld

Undirbúningur íslenska hópsins fyrir leikinn gegn Skotum á morgun er í fullum gangi og var æft tvisvar sinnum í gær.  Ein æfing verður í kvöld og fer hún fram á leikstaðnum sjálfum, Hampden Park.

Landslið

30. mars 2009

Landsliðið æfir á Broadwood Stadium

Strákarnir í íslenska landsliðinu eru nú í Glasgow þar sem þeir undirbúa sig fyrir landsleikinn við Skota á miðvikudaginn.  Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2010 og verður leikinn á Hampden Park.  Leikurinn hefst kl. 19:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Landslið

27. mars 2009

Davíð Þór Viðarsson í landsliðshópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Skotum á Hampden Park, miðvikudaginn 1. apríl næstkomandi.  Ólafur hefur valið Davíð Þór Viðarsson úr FH í hópinn.

Landslið

27. mars 2009

Kvennalandsliðið í 18. sæti FIFA listans

Íslenska kvennalandsliðið situr nú í átjánda sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag.  Ísland fer upp um eitt sæti frá síðasta lista en Bandaríkin eru á toppnum sem fyrr.

Landslið

26. mars 2009

Tvær breytingar á landsliðshópnum fyrir Skotaleikinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á landsliðshóp sínum er mætir Skotum næstkomandi miðvikudag.  Þeir Ármann Smári Björnsson og Birkir Bjarnason koma inn í hópinn

Landslið

24. mars 2009

Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna framundan

Framundan eru úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og hafa landsliðsþjálfararnir, þeir Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, valið leikmenn til þessara æfinga um komandi helgi.

Landslið

24. mars 2009

Þurfum að eiga mjög góðan leik - Viðtal við Óla Jó

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, kynnti í gær á blaðamannafundi hópinn er mætir Skotum ytra þann 1. apríl næstkomandi.  Í stuttu spjalli við heimasíðuna segir Ólafur að liðið þurfi að eiga mjög góðan leik í Glasgow.

Landslið

23. mars 2009

Landsliðshópurinn er mætir Skotum 1. apríl

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari hefur valið 22 leikmenn í hóp sinn er mætir Skotum í undankeppni fyrir HM 2010.  Leikurinn fer fram á Hampden Park í Glasgow og fer fram miðvikudaginn 1. apríl kl. 19:00.

Landslið

22. mars 2009

Færeyskur sigur í Kórnum

Færeyingar lögðu Íslendinga í dag í vináttulandsleik sem leikinn var í Kórnum.  Gestirnir fóru með sigur af hólmi með tveimur mörkum gegn einu eftir að hafa leitt í leikhléi með tveimur mörkum.  Jónas Guðni Sævarsson skoraði mark Íslendinga.

Landslið

22. mars 2009

Þeir byrja gegn Færeyjum

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Færeyjum í vináttulandsleik í Kórnum k. 14:00.  Miðasala hefst kl. 12:00 á leikstað og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.

Landslið

20. mars 2009

Kristinn Jónsson inn í hópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum er mætir Færeyingum í vináttulandsleik í Kórnum, á sunnudaginn kl. 14:00.  Kristinn Jónsson kemur inn í hópinn í stað Ásgeirs Gunnars Ásgeirssonar

Landslið

19. mars 2009

Ísland - Færeyjar á sunnudaginn kl. 14:00

Sunnudaginn 22. mars kl. 14:00 mætast Ísland og Færeyjar í vináttulandsleik og verður leikið í knattspyrnuhúsinu í Kórnum í Kópavogi.  Miðaverði er stillt mjög í hóf, 1.000 krónur kostar fyrir fullorðna 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.

Landslið

17. mars 2009

Burley velur 26 leikmenn í skoska hópinn

George Burley, landsliðsþjálfari Skotlands, hefur valið 26 leikmenn í hóp sinn fyrir leiki gegn Hollandi 28. mars og Íslandi, miðvikudaginn 1. apríl.  Skotar leika gegn Hollendingum  í Amsterdam en leikurinn við Ísland verður á Hampden Park.

Landslið

17. mars 2009

Úrtakshópur hjá U17 karla á ferðinni um helgina

Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið úrtakshóp fyrir æfingar um næstu helgi og hefur valið 21 leikmann til þessara æfinga.  Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum.

Landslið

17. mars 2009

Æfingar hjá U16 og U17 kvenna um komandi helgi

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna hefur valið úrtakshópa fyrir æfingar um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram á Stjörnuvelli og í Egilshöll og hafa 38 leikmenn verið boðaðir í þessum tveimur úrtakshópum.

Landslið

17. mars 2009

EB/Streymur með fimm leikmenn í færeyska hópnum

Sex nýliðar eru í færeyska landsliðshópnum er mætir Íslendingum í vináttulandsleik í Kórnum, næstkomandi sunnudag kl. 14:00.  Þrír leikmenn hópsins hafa leikið meira en 10 landsleiki.

Landslið