Verslun
Leit
SÍA

16. júní 2008

Góður árangur hingað til gegn Grikklandi

Framundan eru gríðarlega mikilvægir leikir gegn Slóveníu og Grikklandi hjá kvennalandsliðinu en liðið er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni EM 2009.   Lliðinu hefur gengið vel gegn Grikkjum en aðeins einu sinni hefur verið leikið gegn Slóveníu.

Landslið

13. júní 2008

Hópurinn fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi valinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 22 leikmenn í landsliðshóp sinn fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi sem fara fram á Laugardalsvelli 21. og 26. júní næstkomandi.  Tveir nýliðar eru í hópnum.

Landslið

13. júní 2008

Ísland - Slóvenía laugardaginn 21. júní

Ísland tekur á móti Slóveníu í undankeppni EM kvenna 2009, laugardaginn 21. júní kl. 14:00.  Íslensku stelpurnar eru í baráttu um sæti í úrslitakeppni EM 2009 og yrði það í fyrsta skipti sem A landslið Íslands í knattspyrnu tæki þátt í úrslitakeppni stórmóts.

Landslið

13. júní 2008

Norðmenn sterkari á Vodafonevellinum

Norðmenn lögðu Íslendinga í gærkvöldi í vináttulandsleik hjá U21 karla en leikið var á Vodafonevellinum.  Lokatölur urðu 1-4 eftir að Norðmenn leiddu í hálfleik, 0-1.  Það var Jón Vilhelm Ákason sem að skoraði mark Íslendinga.

Landslið

12. júní 2008

Ísland - Noregur í kvöld

Í kvöld fer fram á Vodafonevellinum vináttulandsleikur hjá U21 karlalandsliðum Íslands og Noregs.  Leikurinn hefst kl. 19:15 og er aðgangur ókeypis.  Luka Kostic hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn í kvöld.

Landslið

11. júní 2008

Úrtaksæfingar fyrir Norðurlandamót hjá U16 kvenna

Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari, hefur valið hóp til úrtaksæfinga og eru þetta síðustu úrtaksæfingarnar fyrir Opna Norðurlandamótið er hefst hér á landi 30. júní næstkomandi.

Landslið

10. júní 2008

Guðmundur Pétursson í landsliðshópinn

Luka Kostic hefur kallað inn nýjan mann í hópinn hjá U21 karla.  Guðmundur Pétursson úr KR kemur inn í hópinn í stað Alberts Brynjars Ingasonar úr Val sem er meiddur.

Landslið

10. júní 2008

Skúli Jón inn í landsliðshópinn

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á hópnum er mætir Norðmönnum á fimmtudaginn.  Skúli Jón Friðgeirsson úr KR kemur inn í hópinn í stað liðsfélaga síns, Eggerts Rafns Einarssonar, sem er meiddur.

Landslið

9. júní 2008

Tvær breytingar á hópnum hjá U21 karla

Luka Kostic, landsliðsþjálfari, hefur gert tvær breytingar á hóp sínum er mætir Norðmönnum í vináttulandsleik, fimmtudaginn 12. júní kl. 19:15.&nbsp; Leikurinn fer fram á hinum nýja Vodafonevelli.</

Landslið

9. júní 2008

Úrtaksæfingar um helgina hjá strákunum í U17

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 29 leikmenn til úrtaksæfinga um komandi helgi.&nbsp; Æfingarnar fara fram á Tungubökkum í Mosfellsbæ en einnig sækja strákarnir fyrirlestur þessa helgi.

Landslið

6. júní 2008

Tólfan ætlar að fjölmenna

A landslið kvenna leikur tvo heimaleiki í undankeppni EM 2009 á næstu vikum.&nbsp; Fyrst gegn Slóvenum 21. júní og síðan gegn Grikkjum 26. júní.&nbsp; Tólfan, stuðningssveit íslenska landsliðsins í knattspyrnu, ætlar að fjölmenna.

Landslið

6. júní 2008

Kvennlandsliðið upp um eitt sæti

Íslenska kvennalandsliðið hækkaði sig upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA er gefinn var út í dag.&nbsp; Ísland er&nbsp;nú í 18. sæti listans og í því 11. ef aðeins eru taldar Evrópuþjóðir.

Landslið

4. júní 2008

Hópurinn hjá U21 karla er mætir Norðmönnum

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið landsliðshóp sinn er mætir Norðmönnum í vináttulandsleik á hinum nýja Vodafonevelli.&nbsp; Leikurinn verður leikinn 12. júní næstkomandi og hefst kl. 19:15.

Landslið

4. júní 2008

Karlalandsliðið stendur í stað

Íslenska karlalandsliðið stendur í stað á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag.&nbsp; Ísland er í 85. sæti listans en það eru Argentínumenn sem eru á toppi listans en litlar breytingar eru á efstu sætum listans.

Landslið

3. júní 2008

Tveir vináttulandsleikir við Dani hjá U21 karla

Knattspyrnusambönd Íslands og Danmerkur hafa komist að samkomulagi um að U21 karlalandslið þjóðanna leiki 2 vináttulandsleiki.&nbsp; Fyrri leikurinn fer fram hér á landi þann 20. ágúst nk. en seinni leikurinn fer fram ytra, 19. ágúst 2009.

Landslið

28. maí 2008

Eins marks tap gegn Wales

Íslendingar töpuðu gegn Wales í vináttulandsleik sem fram fór á Laugardalsvellinum í kvöld.&nbsp; Lokatölur urðu 0-1 gestunum í vil og kom sigurmarkið í lok fyrri hálfleiks.&nbsp; Arnór Smárason spilaði sinn fyrsta A landsleik í kvöld.

Landslið

28. maí 2008

Mikilvægur sigur á Serbum

Íslenska kvennalandsliðið lagði það serbneska í dag með fjórum mörkum gegn engu.&nbsp; Mikill hiti setti mark sitt á leikinn en um 37 stig voru á leikvellinum á meðan leikurinn fór fram. Íslenska liðið hefur nú hlotið 12 stig eftir fimm leiki&nbsp;og er í öðru sæti riðilsins, með markatöluna 14 - 2.&nbsp;

Landslið

28. maí 2008

Leikur Serbíu og Íslands hafinn

Leikur Serbíu og Íslands er hafinn í Serbíu og er mjög heitt í veðri, hitinn um 35 - 37 stig.&nbsp; Íslensku stelpurnar byrjuðu engu að síður af krafti, í hvítum búningum og áttu fyrsta markskotið á 3. mínútu sem fór reyndar langt&nbsp; framhjá. Fylgst verður með leiknum hér á síðunni.

Landslið