Verslun
Leit
SÍA

28. maí 2008

KSÍ klúbburinn í 18 ár

Í ár er KSÍ klúbburinn að hefja sitt 18. starfsár og er fyrirkomulag klúbbsins að mestu með sama sniði og undanfarin ár.  Síðustu ár hefur klúbburinn verið fullsetinn en nú eru örfá sæti laus og eru áhugasamir hvattir til þess að hafa samband

Landslið

28. maí 2008

Byrjunarlið Íslands gegn Wales

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Wales í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld.  Leikurinn hefst kl. 19:35 og hefst miðasala á Laugardalsvelli hefst kl. 17:00 á leikdag.

Landslið

28. maí 2008

Heimir Einarsson inn í hópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hópnum fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales í kvöld.  Heimir Einarsson úr ÍA kemur inn í hópinn í stað Grétars Rafn Steinssonar sem á við meiðsli að stríða og getur ekki leikið í kvöld.

Landslið

28. maí 2008

Stund á milli stríða

Karlalandslið Íslands undirbýr sig nú af kappi fyrir vináttulandsleik gegn Wales en leikið verður í kvöld kl. 19:35.  Æft var tvisvar mánudag og þriðjudag og þess á milli voru leikmenn í meðhöndlun sjúkraþjálfara og nuddara.

Landslið

27. maí 2008

Byrjunarlið Íslands gegn Serbíu

Ísland mætir Serbíu á morgun, miðvikudag, og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir þennan mikilvæga leik.  Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 14:50 en leikurinn sjálfur hefst kl. 15:00.

Landslið

27. maí 2008

Birkir Már inn í hópinn

Ólafur Jóhannesson hefur valið Valsmanninn Birki Má Sævarsson í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales, en liðin mætast á Laugardalsvelli á miðvikudag kl. 19:35.

Landslið

27. maí 2008

Leikskráin fyrir leikinn gegn Wales

Fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales á miðvikudag verður gefin út 24 blaðsíðna leikskrá með ýmsum áhugaverðum og gagnlegum upplýsingum. Leikskráin verður seld við innganginn á Laugardalsvelli fyrir leik.

Landslið

26. maí 2008

Andlitsmálun fyrir leik gegn Wales

Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir vináttu landsleik Íslands og Wales á miðvikudag.  Því er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið, jafnvel að láta mála allt andlitið!

Landslið

26. maí 2008

Védís Hervör syngur þjóðsöngvana

Fyrir vináttulandsleik Íslands og Wales á miðvikudag mun Védís Hervör Árnadóttir syngja þjóðsöngva landanna.  Þá mun Gunni Óla halda uppi fjörinu í hálfleik með gítar og söng.

Landslið

26. maí 2008

Kvennalandsliðið hélt utan í morgun

Í morgun hélt kvennalandsliðið utan og er förinni  heitið til Serbíu.  Þar verður leikið við heimamenn í undankeppni fyrir EM 2009 og er leikurinn í beinni útsendingu á RÚV.  Leikurinn hefst kl. 15:00, miðvikudaginn 28. maí.

Landslið

26. maí 2008

Eiður Smári fær ekki leyfi

Í morgun fékkst það staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í landsliðshópnum í vináttulandsleik gegn Wales á miðvikudaginn.  Ekki fékkst leyfi hjá félagsliði hans, Barcelona, en leikdagurinn er ekki alþjóðlegur leikdagur.

Landslið

26. maí 2008

Indriði Sigurðsson inn í landsliðshópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales á miðvikudaginn.  Indriði Sigurðsson kemur inn í hópinn í stað Ragnars Sigurðssonar sem er meiddur.

Landslið

26. maí 2008

Fyrsta æfingin körlunum var í morgun

Landsliðshópurinn æfði í morgun á Framvelli og var þetta fyrsta æfingin síðan að hópurinn kom saman fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales á miðvikudaginn.  Þetta var fyrsta æfingin fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales á miðvikudaginn

Landslið

23. maí 2008

Ísland - Wales miðvikudaginn 28. maí

Ísland og Wales mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 28. maí og hefst leikurinn kl. 19:35.  Leikurinn er liður í undirbúningi fyrir þátttöku Íslands í undankeppni fyrir HM 2010.  Miðasala er í fullum gangi og er hægt að fá miða á forsöluafslætti ef keypt er á netinu fyrir leikdag.

Landslið

23. maí 2008

Landsliðshópur Wales skorinn niður

Sá landsliðshópur sem John Toshack, landsliðsþjálfari Wales hafði áður tilkynnt fyrir vináttulandsleikina gegn Íslandi 28. maí og Hollandi 1. júní hefur nú verið skorinn niður úr 35 leikmönnum í 27.

Landslið

22. maí 2008

Atli Sveinn Þórarinsson inn í hópinn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Wales þann 28. maí næstkomandi.  Atli Sveinn Þórarinsson, úr Val, kemur inn í hópinn. 

Landslið

21. maí 2008

Aðgöngumiðar á Ísland-Wales fyrir handhafa A-passa

Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Wales afhenta föstudaginn 23. maí frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.  Takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.

Landslið

21. maí 2008

Hóparnir gegn Serbíu og Wales tilbúnir

Þeir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna og Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla, tilkynntu í dag hópa sína fyrir næstu verkefni. Dagur Sveinn Dagbjartsson hitti landsliðsþjálfarana eftir fundinn í dag og heyrði í þeim hljóðið.

Landslið