17. maí 2007
Íslenska kvennalandsliðið laut í lægra haldi gegn stöllum sínum frá Englandi er þjóðirnar mættust í vináttulandsleik á Roots Hall í kvöld. Lokatölur urðu þær að Englendingar gerður fjögur mörk án þess að Íslendingar næðu að skora.
16. maí 2007
Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari U19, hefur valið 18 leikmenn til að taka þátt í milliriðli Evrópumóts U19 landsliða í Noregi 28. maí – 6. júní. Efsta þjóð riðilsins tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM í Austurríki.
14. maí 2007
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Englendingum ytra á fimmtudaginn. Guðný Petrína Þórðardóttir, úr Keflavík, kemur inn í hópinn í stað Ásthildar Helgadóttur sem er meidd.
9. maí 2007
Englendingar hafa tilkynnt landsliðshóp sinn er leikur vináttulandsleik gegn Íslendingum á heimavelli Southend, Roots Hall, fimmtudaginn 17. maí nk. Níu leikmenn frá nýkrýndum Evrópumeisturum Arsenal eru í hópnum.
8. maí 2007
Margrét Lára Viðarsdóttir verður fulltrúi Íslands þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni EM U19 kvenna. Úrslitakeppnin fer sem kunnugt er fram hér á landi dagana 18. - 29. júlí. Dregið verður í riðla 23. maí í höfuðstöðvum KSÍ.
8. maí 2007
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 18 manna hóp er mætir Englandi í vináttulandsleik ytra 17. maí nk. Leikurinn fer fram á heimavelli Southend United, Roots Hall.
8. maí 2007
Íslenska U17 karlalandsliðið lauk í gær þátttöku sinni í úrslitakeppni EM í Belgíu þegar liðið tapaði gegn gestgjöfum Belga. Lokatölur urðu 5-1 heimamönnum í vil eftir að staðan í hálfleik hafði verið jöfn, 1-1.
7. maí 2007
Íslenska U17 karlalandslið Íslands leikur í dag lokaleik sinn í riðlakeppni úrslitakeppni EM. Leikið er við gestgjafa Belga en með sigri í leiknum komast Íslendingar í umspilsleik um sæti á HM sem fram fer í Suður Kóreu síðar á þessu ári.
7. maí 2007
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið byrjunarliðið er mætir Belgum í dag kl. 15:30. Leikurinn er lokaleikur riðlakeppninnar í þessum úrslitum EM. Með sigri komast Íslendingar í umspilsleik um sæti á HM í Suður Kóreu.
4. maí 2007
Landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, er staddur í Slóveníu þar sem hann mun fylgjast með leik Slóveníu og Serbíu á morgun. Þessar þjóðir eru í riðli með Íslendingum í undankeppni fyrir EM í Finnlandi 2009.
4. maí 2007
Íslendingar töpuðu sínum öðrum leik í úrslitakeppni EM U17 karla er fram fer í Belgíu. Hollendingar knúðu fram sigur með þremur mörkum gegn engu. Lokaleikur liðsins í riðlinum er leikinn á mánudaginn þegar að strákarnir mæta gestgjöfum Belga.
4. maí 2007
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem leikur gegn Hollandi í kvöld. Þetta er annar leikur liðsins í úrslitakeppni EM í Belgíu en liðið tapaði gegn Englandi í fyrsta leiknum á miðvikudaginn.
3. maí 2007
Arnar Darri Pétursson, markvörður úr Stjörnunni, hefur verið valinn í hópinn hjá U17 karla er leikur nú í úrslitakeppni EM U17. Arnar kemur í stað Trausta Sigurbjörnssonar er meiddist í leiknum gegn Englandi í gær.
2. maí 2007
Íslenska U17 karlalandsliðið tapaði fyrsta leik sínum í úrslitakeppni EM U17 sem fram fer í Belgíu. Lokatölur urðu 0-2 en þannig var staðan í hálfleik. Íslensku strákarnir leika annan leik sinn í riðlinum á föstudaginn við Holland kl. 18:15.
2. maí 2007
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Englendingum kl. 14:00 í dag. Leikurinn er fyrsti leikur íslenska liðsins í úrslitakeppni EM U17.
2. maí 2007
Tvær efstu þjóðirnar í hvorum riðli komast í undanúrslit. Þær þjóðir er lenda í þriðja sæti í riðlunum munu hinsvegar leika leik um fimmta sætið en sigur í þeim leik tryggir þátttöku á HM U17 sem fram fer í Suður Kóreu í ágúst og september
27. apríl 2007
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum er heldur til Belgíu á mánudaginn til að taka þátt í úrslitakeppni EM U17 karla. Dofri Snorrason kemur inn í hópinn í stað Kristins Steindórssonar sem er meiddur.
20. apríl 2007
Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem heldur til Belgíu til þess að taka þátt í úrslitakeppni EM U17 karla. Keppnin fer fram dagana 2. til 13. maí.