1. apríl 2020
50 leikmenn eru skráðir í fyrsta Íslandsmótið í eFótbolta í FIFA, en mótið hefst miðvikudaginn 1. apríl.
31. mars 2020
Samkvæmt leyfisreglugerð verður leyfisumsækjandi að birta á vefsíðu sinni síðasta endurskoðaða ársreikning sinn eftir yfirferð KSÍ.
31. mars 2020
Í "Áfram Ísland!" eru birt daglega myndbönd á Instagram og Facebook síðum KSÍ. Mörg aðildarfélög KSÍ eru að keyra sams konar eða svipuð verkefni af miklum myndarskap og eiga hrós skilið.
31. mars 2020
"Það mun birta til um síðir og við munum hefja aftur æfingar og mótahald. Íslenskur fótbolti á bjarta framtíð fyrir sér og það verður spennandi verkefni að þróa hann áfram."
30. mars 2020
Mótanefnd hefur sent erindi á aðildarfélög KSÍ til að upplýsa um stöðu mála varðandi upphaf knattspyrnumótanna 2020.
30. mars 2020
Teknar voru fyrir tillögur mannvirkjanefndar um vallarleyfi á fundi stjórnar þann 26. mars. Stjórnin samþykkti 18 vallarleyfi í samræmi við tillögur nefndarinnar. Afgreiðslu vallarleyfa fjögurra keppnisvalla var frestað.
30. mars 2020
Á fundi sínum þann 26. mars staðfesti stjórn KSÍ skipan vinnuhóps um fjármál félaga í tengslum við þá stöðu mála sem komin er upp varðandi COVID-19.
30. mars 2020
Á fundi stjórnar KSÍ þann 26. mars voru ítrekuð fyrri tilmæli um að allt íþróttastarf falli niður tímabundið.
27. mars 2020
Ísland er í 19. sæti á nýjum heimslista FIFA sem gefinn hefur verið út og fellur um eitt sæti frá síðustu útgáfu.
27. mars 2020
Í ljósi þess ástands sem nú ríkir þá hefur Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) og Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) ákveðið breytingar á mótafyrirkomulagi fyrirhugaðs Íslandsmóts í eFótbolta.
26. mars 2020
Ísland og Rúmeníu áttust við í eFótbolta, en um var að ræða vináttuleiki í FIFA, og endaði viðureignin með sigri Rúmena.
26. mars 2020
Handbók leikja 2020 var samþykkt af stjórn KSÍ 19 mars. Bókin inniheldur ábendingar og tilmæli til félaga um framkvæmd leikja í meistaraflokki.
26. mars 2020
Miðakaupendur geta óskað eftir endurgreiðslu á miðum á leik Íslands og Rúmeníu í umspili undankeppni EM sem átti að fara fram 26. mars, en frestur til þess er til og með mánudagsins 6. apríl.
26. mars 2020
Í dag, fimmtudaginn 26. mars, fagnar Knattspyrnusamband Íslands 73 ára afmæli sínu. Fjórtán félög og íþróttabandalög stofnuðu KSÍ 26. mars 1947 og var Agnar Klemens Jónsson fyrsti formaður KSÍ.
24. mars 2020
Ísland og Rúmenía munu leika vináttuleiki í FIFA 20 fimmtudaginn 26. mars, en það er einmitt dagurinn sem A landslið þjóðanna áttu að mætast í umspili undankeppni EM 2020.
24. mars 2020
Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda.
24. mars 2020
Íslenska landsliðið í PES lék síðari umferð riðils síns í undankeppni eEURO 2020 á mánudag, en þar mætti liðið Rússlandi, Austurríki, Póllandi og Ísrael.
23. mars 2020
Alls voru fimm leiki í beinni útsendingu á miðlum KSÍ á dögunum, en um var að ræða leik A kvenna á Pinatar Cup og U19 kvenna á La Manga.