23. mars 2020
Heilbrigðisyfirvöld hafa kynnt að á miðnætti mánudaginn 23. mars taki gildi hert samkomubann. Allar samkomur verða takmarkaðar við 20 manns.
23. mars 2020
Umsóknarfrestur í Rannsóknarsjóð UEFA rennur út þriðjudaginn 31. mars næstkomandi.
23. mars 2020
Íslenska landsliðið í PES leikur í undankeppni eEURO 2020 í dag, en þá fer síðari umferð riðilsins þess fram.
20. mars 2020
ÍSÍ og UMFÍ hafa sent frá sér sameiginlega tilkynningu um að allt íþróttastarf falli tímabundið niður.
20. mars 2020
Ráðuneyti mælast til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna þar til takmörkun skólastarfs lýkur.
20. mars 2020
Mótanefnd KSÍ skoðar nú hvernig leikjum sumarsins verði best fyrir komið. Þegar fyrir liggur hvenær hægt verður að hefja keppni aftur verður gefin út ný niðurröðun leikja.
20. mars 2020
UEFA hefur gefið út að áætlað sé að leikur Íslands og Rúmeníu fari fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní.
20. mars 2020
KSÍ hefur ákveðið að keyra í gang verkefni sem kallast "Áfram Ísland!" og gengur út á að hvetja þjóðina og iðkendur til dáða, til að halda áfram að æfa daglega (með eða án bolta), þrátt fyrir þær takmarkanir sem eru tilkomnar vegna samkomubanns í tengslum við heimsfaraldur COVID-19.
19. mars 2020
Heilbrigðisyfirvöld og ÍSÍ hafa upplýst KSÍ að birt verði frekari tilmæli fyrir æfingar og keppni íþróttafélaga og -iðkenda á föstudag og verður þeim komið á framfæri við knattspyrnuhreyfinguna eins fljótt og mögulegt er.
19. mars 2020
Stjórn KSÍ fundaði í dag, fimmtudaginn 19. mars, og fjallaði m.a. um tillögur mótanefndar um breytingar á mótahaldi í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp vegna þess heimsfaraldurs sem nú geisar.
19. mars 2020
Fyrirhugaðar eru breytingar á Þjálfarasáttmála UEFA. Þær fela meðal annars í sér að allar aðildarþjóðir UEFA þurfa að innleiða UEFA C þjálfaragráðu.
17. mars 2020
Umspilsleikjum frestað fram í júní og úrslitakeppni EM frestað um eitt ár eru á meðal helstu niðurstaðna af fundi UEFA með aðildarsamböndum og öðrum hagsmunaaðilum vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í evrópskri knattspyrnu vegna þess heimsfaraldur sem nú geisar.
16. mars 2020
Vegna samgöngubanns sem sett hefur verið á næstu fjórar vikurnar hefur námskeiði fyrir aðstoðardómara sem halda átti 19. mars verið frestað um óákveðinn tíma.
15. mars 2020
Forseti og framkvæmdastjóri ÍSÍ hafa sent frá sér áríðandi skilaboð vegna íþróttastarfs í landinu í því samkomubanni sem nú er í gildi.
14. mars 2020
Annar fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2020 fór fram á föstudag og voru þátttökuleyfi 15 félaga samþykkt. Tvö af leyfunum 15 eru gefin út með fyrirvara.
14. mars 2020
Vefsíða ÍSÍ hefur birt grein með umfjöllun um stöðuna gagnvart samkomubanni, m.a. í tengslum við íþróttaæfingar.
13. mars 2020
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum í dag að fresta öllum leikjum á vegum KSÍ frá og með deginum í dag, 13. mars, sem og landsliðsæfingum og tengdum viðburðum.
12. mars 2020
Þessum viðburði hefur verið frestað.