6. október 2016
Strákarnir okkar buðu upp á háspennuleik á Laugardalsvelli í kvöld í fyrsta heimaleik Íslands í undankeppni HM. Leikurinn var frábær skemmtun og þrátt fyrir að lenda undir í tvígang vann Ísland að lokum magnaðan 3-2 sigur á Laugardalsvelli.
6. október 2016
Ennþá er eitthvað til af miðum á leik Íslands og Finnlands í undankeppni HM en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli í kvöld kl. 18:45. Eitthvað var skilað af miðum og eru þessir miðar nú í sölu í miðasölu Laugardalsvallar. Um kl. 14:30 í dag voru enn eftir um 250 miðar og eru þeir í blátt og rautt svæði og kosta 5.000 og 7.000 krónur. Það er svo 50% afsláttur á miðaverði fyrir 16 ára og yngri.
6. október 2016
Strákarnir í U19 töpuðu gegn Úkraínu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Úkraínu.  Lokatölur urðu 2 - 0 en markalaust var í leikhléi.  Í hinum leik riðilsins gerðu Lettland og Tyrkland jafntefli, 2 - 2 en Ísland mætir Tyrkjum á laugardaginn. 
6. október 2016
Strákarnir í U19 hefja í dag leik í undankeppni EM en leikið er í Úkraínu.  Það eru einmitt heimamenn sem eru mótherjarnir í fyrsta leiknum sem hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Hægt er að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA og þar koma einnig fréttir af byrjunarliði.
6. október 2016
Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ I þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október, tvö helgina 21.-23. október og eitt helgina 28.-30. október. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði sem þýðir 70 laus pláss helgina 21.-23. október og 35 laus pláss helgina 28.-30. október. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega.
6. október 2016
Ísland tekur á móti Finnlandi í undankeppni HM 2018 í kvöld og hefst leikurinn kl. 18:45 á Laugardalsvelli.  Þetta er fyrst heimaleikur Íslands í keppninni en liðið gerði jafntefli í fyrsta leiknum, gegn Úkraínu á útivelli. Miðasala á Laugardalsvelli opnar kl. 12:00 en þar verður eitthvað af miðum til sölu sem t.a.m. var skilað.
5. október 2016
U21 landslið karla leikur hreinan úrslitaleik um æsti í lokakeppni EM 2017 í Póllandi en liðið vann 2-0 sigur á Skotlandi í kvöld. Vinni Ísland sigur á Úkraínu þann 11. október þá er farseðillinn á EM tryggður.
5. október 2016
Rafræn leikskrá fyrir komandi leiki í undankeppni HM 2018 karla og undankeppni EM U21 er komin út. Í leikskránni má finna viðtöl, greinar og upplýsingar um leiki liðanna sem eru leiknir á komandi dögum.
5. október 2016
Strákarnir í U21 mæta Skotum í dag í undankeppni EM og hefst leikurinn kl. 15:30 á Víkingsvelli. Með sigri stígur íslenska liðið stórt skref í áttina að úrslitakeppninni sem haldin verður í Póllandi á næsta ári. Miðasala fer fram hjá www.midi.is og einnig verður miðasala á Víkingsvelli frá kl. 14:30.
5. október 2016
Uppselt er á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM sem fram fer sunnudaginn 9. október á Laugardalsvelli.  Um 1100 miðar fóru í sölu í gær en um var m.a. að ræða miða sem Tyrkir nýttu sér ekki. Ef fleiri miðum verður skilað til KSÍ verða þeir seldir á leikdag í miðasölunni á Laugardalsvelli og á það bæði við um Tyrkjaleikinn sem og á Finnaleikinn
4. október 2016
Knattspyrnusamband Íslands hefur þekkst boð frá Knattspyrnusambandi Kína um þátttöku í fjögurra þjóða móti í Kína en leikið verður 20. – 24. október næstkomandi.  Leikið verður gegn heimamönnum, Dönum og Úsbekum
4. október 2016
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) auglýsir eftir þjálfara fyrir meistaraflokk karla í knattspyrnu. Félagið hefur á undanförnum árum leikið í 2.deild en mun næsta tímabili leika í 3.deild.
4. október 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í æfingahelgi vegna undirbúnings U17 ára liðs kvenna fyrir Undankeppni EM sem fram fer í Írlandi dagana 24. okt - 1. nóv 2016.
3. október 2016
Strákarnir í U21 munu standa í ströngu á næstu dögum en þeir eru í góðu færi á að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer í Póllandi á næsta ári.  Framundan er tveir leikir á heimavelli, gegn Póllandi 5. október á Víkingsvelli og gegn Úkraínu, 11. október á Laugardalsvelli.
3. október 2016
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM A landsliða karla, mánudaginn 3. október frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
3. október 2016
Miðar á leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018, fara í sölu þriðjudaginn 4. október og hefst kl. 12:00 á hádegi.  Um er að ræða miða, 1104 talsins, sem m.a. voru teknir frá fyrir stuðningsmenn Tyrkja.  Miðarnir sem fara í sölu eru í aðallega í hólfum: B, J, K og T.  Einnig eru nokkrir miðar lausir í annars staðar þó í minna magni en í fyrrgreindum hólfum. 
3. október 2016
Helgina 7.-9. október mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði á höfuðborgarsvæðinu. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B/UEFA B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í skriflega KSÍ B prófinu. Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu. Seta á þessu námskeiði framlengir einnig gildistíma KSÍ B skírteinis (UEFA B skírteinis) um þrjú ár.
3. október 2016
Stjarnan í Garðabæ og íþróttafélagið Ösp munu í samstarfi við ÍF og KSÍ standa að knattspyrnuæfingum fyrir stelpur / konur með fötlun. Æfingar hefjast 8. október og verða í Garðabæ