3. október 2016
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Skotland í undankeppni EM U21 landsliða karla, þriðjudaginn 4. október frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
30. september 2016
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem mætir Finnum þann 6. október og Tyrkjum þann 9. október á Laugardalsvelli. Leikirnir eru í undankeppni fyrir HM 2018 sem fram fer í Rússlandi.
28. september 2016
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið hópinn sem mætir Skotlandi 5. október á Vikingsvelli og Úkraínu 11. október á Laugardalsvelli í undankeppni EM 15/17. Íslenska liðið er í góðri stöðu í riðlinum og getur með sigrum í leikjunum sem eftir eru tryggt sér sæti í lokakeppni EM 2017 sem fram fer í Póllandi.
27. september 2016
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Finnlands í undankeppni HM A landsliða karla, fimmtudaginn 29. september frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
27. september 2016
Fimmtudaginn 22. september hélt Hákon Sverrisson, yfirþjálfari yngri flokka Breiðabliks, fyrirlestur í KSÍ. Viðfangsefnið var ráðleggingar fyrir þjálfara hvernig halda skuli foreldrafundi. Rétt rúmlega 50 manns mættu til að hlýða á Hákon en hér að neðan er upptaka í þremur hlutum og glærurnar frá fyrirlestrinum.
26. september 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U 17 liðs karla. Æfingarnar eru liður að undirbúningi fyrir Undankeppni EM 2017 sem fram fer í Ísrael dagana 30. október – 7. nóvember.
24. september 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í landsliðshóp U19 liðs karla fyrir undankeppni EM 2017 sem haldin verður í Úkraínu dagana 4. – 12. október.
21. september 2016
Þóroddur Hjaltalín og Frosti Viðar Gunnarsson eru þessa dagana í Rúmeníu þar sem þeir dæma á UEFA Regions Cup. Um er að ræða keppni áhugamannaliða á vegum UEFA en leikið er í riðlakeppni núna. Úrslitakeppni fer fram næsta sumar.
21. september 2016
Hæfileikamót KSÍ og N1 stúlkna fer fram í Kórnum í Kópavogi dagana 30. sep. – 2. okt. Mótið fer fram undir stjórn Halldórs Björnssonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem boðaðir eru til leiks.
20. september 2016
Kvennalandsliðið endaði á toppi Riðils-1 í undankeppni EM en liðið tapaði aðeins einum leik á mótinu. Tapið kom á heimavelli í kvöld en það voru Skotar sem náðu að vinna íslenska liðið 1-2. Lokastaða riðilsins er þannig að Ísland er með 21 stig eins og Skotland en hefur betur í innbyrðis viðureignum eftir að vinna 0-4 í Skotlandi.
20. september 2016
Lokaleikur íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni EM verður í dag gegn Skotum á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 17:00. Stelpurnar okkar hafa nú þegar tryggt sér sæti á EM í Hollandi næsta sumar en í dag verður barist um efsta sætið í riðlinum þar sem Skotarnir geta ennþá stolið því sæti. Markmið dagsins er ekki síður að klára keppnina með fullt hús stiga og án þess að fá á sig mark sem verður að teljast mögnuð tölfræði.
20. september 2016
U19 ára landslið kvenna þurfti að lúta í lægra haldi fyrir liði Finna í undankeppni EM í dag. Leikurinn sem var síðasti leikur liðanna í undankeppninni fór fram í Finnlandi fyrr í dag og endaði 3-0 fyrir finnska liðið.
19. september 2016
FH er Íslandsmeistari í knattspyrnu en það varð ljóst eftir að Breiðablik og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í kvöld í Pepsi-deildinni. FH er með 7 stiga forskot í Pepsi-deildinni þegar tvær umferðir eru eftir en ekkert lið getur náð FH að stigum og Hafnfirðingar verja því titilinn en þeir eru ríkjandi meistarar.
19. september 2016
Leikur Íslands gegn Skotlandi á morgun verður merkilegur fyrir margar sakir. Farseðillinn á EM í Hollandi hefur nú þegar verið tryggður en einnig eru liðin 35 ár frá því að íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik.
19. september 2016
Ísland mætir Skotlandi í lokaleik Íslands í undankeppni EM en leikurinn fer fram á Laugardalvelli, klukkan 17:00 á morgun, þriðjudag. Dómari leiksins er hin ungverska Katalin Kulcsar, reynslumikill dómari sem m.a. dæmdi úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu kvenna í ár. 
18. september 2016
Fjölmenni fylgdist með opinni æfingu hjá kvennalandsliðinu í dag en Ísland mætir Skotlandi í lokaleik undankeppni EM á þriðjudaginn. Um 200-300 manns mættu og fengu eiginhandaráritun eftir æfinguna.
17. september 2016
Í tengslum við landsleikina gegn Slóveníu og Skotlandi mun KSÍ heiðra sex knattspyrnukonur sem hafa náð þeim merkilega áfanga að spila yfir 100 leiki fyrir íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu. Allar hafa þær spilað gríðarlega stórt hlutverk fyrir íslenska liðið.
17. september 2016
U19 landslið kvenna vann stórsigur á Kasakstan í öðrum leik sínum í undankeppni EM en leikurinn endaði með 10-0 sigri Íslands. Anna Rakel Pétursdóttir og Agla María Albertsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor í dag og þær Selma Sól Magnúsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir gerðu sitt markið hvor fyrir Ísland.