Verslun
Leit
SÍA

16. september 2016

A-kvenna - Ísland mætir Slóveníu í kvöld

Næst síðasti leikur Íslands í undankeppni EM kvennalandsliða verður í kvöld þegar tekið verður á móti liði Slóveníu á Laugardalsvelli. Lokaundirbúningur fyrir leikinn hefur gengið vel hjá stelpunum okkar en aðeins eitt stig vantar til að liðið tryggi sig inn á lokakeppnina sem verður í Hollandi næsta sumar.

Landslið

16. september 2016

A kvenna – ÍSLAND Á EM!

Ísland vann öruggan 4-0 sigur á Slóveníu  í undankeppni EM en leikurinn fór fram á Laugardalsvelli í kvöld. Fyrr í dag var ljóst að liðið væri þá þegar komið með farseðilinn á EM í Hollandi næsta sumar.

Landslið

16. september 2016

A kvenna – Opin æfing í dag, sunnudag

Sunnudaginn 18. september nk. mun æfing A landsliðs kvenna verða opin fyrir almenning og geta ungir sem aldnir áhangendur liðsins komið á Laugardalsvöllinn og fylgst með æfingu. Æfingin hefst kl. 15.30 og í lok hennar munu landsliðskonurnar veita áritanir í anddyri Laugardalsvallar.

Landslið

16. september 2016

A kvenna - A og DE skírteini gilda við innganginn

Handhafar A og DE skírteina geta framvísað þeim við innganginn fyrir leik Íslands og Slóveníu í undankeppni EM sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld kl. 18:45.  Ekki þarf að sækja miða fyrir leikinn, eins og venja er, á skrifstofu KSÍ.  Frítt er inn fyrir 16 ára og yngri en almenn miðasala hefst kl. 12:00 á Laugardalsvelli.

Landslið

15. september 2016

Úrskurður í máli Leiknis gegn ÍA

Á fundi sínum 13. september síðastliðinn tók Aga- og úrskurðarnefnd fyrir mál Leiknir R gegn ÍA vegna leik félaganna í 3. flokki karla.  Kærandi kærði framkvæmd leiksins.

Agamál

15. september 2016

Leikskrá fyrir leiki Íslands gegn Slóveníu og Skotlandi komin út

Leikskrá fyrir leiki Íslands gegn Slóveníu og Skotlandi er komin út en í leikskránni eru viðtöl við Margréti Láru Viðarsdóttur, fyrirliða íslenska liðsins, og Frey Alexandersson, landsliðsþjálfara. Einnig má finna ýmsar greinar um leikina.

Landslið

15. september 2016

Íslenskir stuðningsmenn fá verðlaun fyrir EM

UEFA hefur ákveðið að verðlauna stuðningsmenn Íslands, Írlands, Wales og Norður-Írlands fyrir góða frammistöðu á EM í sumar. Stuðningsmenn Íslands fóru mikinn í stúkunni á leikjum Íslands og vöktu heimsathygli fyrir vaska framgöngu sína.

Landslið

15. september 2016

U19 kvenna - Frábær byrjun í undankeppni EM

U19 kvenna byrjaði vel í und­anriðli Evr­ópu­keppn­inn­ar í Finn­landi í dag þegar það sigraði Fær­ey­inga ör­ugg­lega, 5-0, í fyrsta leik sín­um á mótinu.

Landslið

15. september 2016

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Færeyjum

Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Færeyjum í fyrsta leiknum í undanriðli EM en leikið er í Finnlandi.  Aðrar þjóðir í riðlinum eru Finnland og Kasakstan.  Leikurinn hefst kl. 16:00 og er í beinni textalýsingu á heimasíðu UEFA.

Landslið

14. september 2016

U19 kvenna – Undankeppni EM 2017 hefst á fimmtudag

U19 ára landslið kvenna er nú statt í Finnlandi þar sem liðið tekur þátt í undankeppni fyrir EM 2017. Liðið mun spila þrjá leiki í undanriðlinum og verður sá fyrsti gegn frændum okkar frá Færeyjum á morgun, annar leikurinn verður gegn Kazakhstan laugardaginn 17. september og síðasti leikurinn verður gegn Finnum þriðjudaginn 20. september.

Landslið

14. september 2016

Hæfileikamót N1 og KSÍ drengja 2016

Hæfileikamót KSÍ og N1 drengja fer fram í Kórnum í Kópavogi  dagana 23. – 25. september. Mótið fer fram undir stjórn Halldórs Björnssonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem boðaðir eru til leiks. 

Fræðsla

13. september 2016

A kvenna – Undirbúningur fyrir leikina gegn Slóveníu og Skotlandi í fullum gangi

Stelpurnar okkar í A landsliði kvenna eru komnar á fullt í undirbúningi fyrir leikina mikilvægu gegn Slóveníu og Skotlandi. Um er að ræða síðustu tvo leiki liðsins í undankeppni EM 2017, fyrri leikurinn er gegn Slóveníu og fer hann fram föstudaginn 16. september kl. 18.45 en síðari leikurinn verður þriðjudaginn 20. september kl. 17.00. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli.

Landslið

13. september 2016

Mikill áhugi á íslenska landsliðinu meðal Vestur Íslendinga í sumar

Á liðnu sumri fylgdust Vestur íslendingar í Kanada grannt með gengi íslenska liðsins á EM í Frakklandi.  Frændur okkar söfnuðust saman til að fylgjast með gengi liðsins og þegar á leið jókst áhuginn þannig að aðrir Kanadamenn slógust í hópinn.  Tímaritið Lögberg - Heimskringla, sem fagnar í ár 130 ára afmæli, gerði landsliðinu m.a. góð skil. 

Landslið

13. september 2016

U21 karla - Nýir leikstaðir

Strákarnir í U21 landsliðinu munu leika síðustu tvo leiki sína í undankeppni fyrir EM 2017 í október.  Fyrri leikurinn, sem er á móti Skotum verður á Víkingsvelli miðvikudaginn 5. október kl. 15.30.  Síðari leikurinn er á móti Úkraínu á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 11. október kl. 16.45.

Landslið

12. september 2016

Gunnar Jarl dæmir í Ungmennadeild UEFA

Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Manchester City Youth og PVfL Borussia Mönchengladbach Youth í Ungmennadeild UEFA en þar eru lið skipuð leikmönnum 19 ára og yngri. 

Dómaramál

8. september 2016

Úrskurður á máli Stjörnunnar gegn FH

Á fundi sínum 6. september síðastliðinn tók Aga- og úrskurðarnefnd fyrir mál Stjörnunnar gegn FH vegna leik liðanna í 2. flokki kvenna.  Kærandi taldi kærða hafa teflt fram ólöglega skipuðu liði

Agamál

7. september 2016

A kvenna - Hópurinn sem mætir Slóvenum og Skotum

Freyr Alexanderson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Slóvenum og Skotum í undankeppni EM en þetta eru lokaleikir Íslands í undankeppninni.  Leikið verður gegn Slóvenum, 16. september og gegn Skotum 20. september og fara báðir leikirnir fram á Laugardalsvelli.

Landslið

6. september 2016

U19 karla - Jafntefli gegn Wales

Strákarnir í U19 gerðu í dag markalaust jafntefli gegn Wales en þetta var seinni vináttulandsleikur þjóðanna á þremur dögum.  Ísland vann fyrri leikinn, 2 - 1, en í dag var boðið upp á mikla baráttu en engin mörk.

Landslið